23.11.1955
Sameinað þing: 17. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í D-deild Alþingistíðinda. (2116)

55. mál, alþýðuskólar

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég er nú feginn því, að ég hreyfði þessu máli hér, því að nú er málið komið í það horf, sem bæði hæstv. forseti áleit að það ætti að vera í, þegar hann ákvað eina umr., og er allt annað en till. segir, eins og hæstv. ráðh. hefur skýrt frá. Og það er alveg sýnilegt, að ef ekki hefði komið slík yfirlýsing hér frá hv. frsm., þá bar hæstv. ríkisstj. skylda til þess að láta undirbúa löggjöf um stofnun eins eða fleiri æskulýðsskóla í landinu, og ekki einungis að athuga, hvort það væri heppilegra, heldur bar henni fyrst og fremst skylda til þess að láta undirbúa löggjöf um stofnun slíks skóla. Það var svo aukaatriði í till., sem ég hafði lesið, að það skyldi jafnframt verða athugað, hvort ekki væri hægt að ná þessu marki með því að breyta einum eða fleiri skólum. En ef það sýndi sig, að það væri ekki hægt, þá stóð hitt eftir enn óhaggað, að það skyldi stofna lýðháskólana, og það hlaut að kosta allmikið fé, eins og ég hef bent á.

Ég vil í sambandi við þetta leyfa mér að benda á, að till. frá síðasta þingi er allmikið um annað efni. Hún var þó eingöngu um það, að á þessu yfirstandandi ári skyldi láta starfrækja eitthvað af þeim skólum, sem fyrir voru í landinu, sem æskulýðsskóla, og til þess brast lagaheimild, eins og hæstv. ráðherra tók þá fram og eins og hefur verið upplýst hér. Þess vegna er farið í það nú að fyrirskipa ríkisstj. að breyta lögunum í þá átt, að slíkir skólar skuli settir á stofn.

Eftir ræðu hv. frsm. og ummæli hæstv. ráðh. um skilning hans á þeirri yfirlýsingu, er þar kom fram, get ég einnig sætt mig við, að till. nái fram að ganga, því að þá verður hún ekki framkvæmd á annan hátt en hæstv. forseti ætlaðist til og eðlilegt er að framkvæma hana.