23.11.1955
Sameinað þing: 17. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í D-deild Alþingistíðinda. (2117)
55. mál, alþýðuskólar
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Ég verð nú að segja, að mér kemur það á óvart, hve geysilega mikið er lagt upp úr mínum orðum, að minn skilningur á þessari till. skuli alveg ráða afstöðu hv. þm. Barð. og jafnvel hæstv. ráðherra.
Ég held, að í mínum orðum hafi ekki falizt annað en það, að það beri vitanlega að leggja sama skilning í þessa þáltill. og aðrar þáltill. Ég hygg, að það sé það sanna í því, að þó að skorað sé á ríkisstj. af Alþingi að undirbúa löggjöf um ákveðið efni, ef ríkisstj. við nánari athugun kemst að þeirri niðurstöðu, að þetta sé ekki framkvæmanlegt eða óheppilegt á einhvern hátt, þá beri henni engin stjórnskipuleg skylda til þess, og hæstaréttardómur mun vera fyrir því, að þál. hafa ekki lagagildi, heldur eru viljayfirlýsing. Það verður enginn dæmdur samkvæmt þál. Það er auðvitað mál, að ef ríkisstj. við nánari athugun álítur óheppilegt og er á móti því að framkvæma það, sem þál. fer fram á, þá gerir hún ekki till. um að framkvæma það, heldur leggur þá till. fyrir næsta þing, — við getum kallað það till., það væri auðvitað yfirlýsing, — að ekkert sé gert í málinu, og ég fullyrði, að þetta hefur komið fyrir. Hér hafa verið samþykktar þál. svipaðs eðlis, sem aldrei hefur orðið neitt meira úr. Þess vegna kannast ég ekki við, að þetta sé orðið neitt annað mál en upprunalega þrátt fyrir þessi orð mín. Þetta er nákvæmlega sama með þessa þál. eins og aðrar.
Ég fellst ekki heldur á það, sem hv. þm. Barð. sagði, að það sé neitt aukaatriði í till., að jafnframt verði athugað, hvort ekki er hægt að ná þessu marki með því að breyta einum eða fleiri skólum gagnfræðastigsins í þessa átt. Fyrir mér er þetta hreint og beint meginatriði, því að fyrir mér hefur það aldrei verið meiningin að fara að byggja nýjan skóla eða nýja skóla, heldur hitt, að taka einhvern af þeim skólum, sem fyrir eru og sumir eru eða hafa a. m. k. ekki verið einu sinni vel sóttir, og breyta í þessa átt. En ég get ekki annað en fagnað því samt sem áður, að ræða mín áðan hefur þó haft þau áhrif, að það virðast allir ásáttir um að samþ. tillöguna.