19.10.1955
Sameinað þing: 5. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (2159)

23. mál, nýbýli og bústofnslán

Flm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér liggur fyrir á þskj. 23, fjallar um skipun n. til þess að endurskoða ákvæði l. um nýbýli og bústofnslán, og er hún auk mín flutt af hv. þm. Dal. (ÁB), hv. 1. þm. Árn. (JörB) og hv. þm. V-Ísf. (EirÞ). Við leggjum þar til, að Alþ. feli ríkisstj. að skipa 5 manna n. til að endurskoða þau lagaákvæði, sem nú gilda um þessi mál, í því skyni, að greitt verði fyrir fjölgun nýbýla meir en nú á sér stað og að efnalitlum bændum verði gert kleift að koma sér upp hæfilegum bústofni. Eigum við þar alveg sérstaklega við unga menn, sem eru að hefja búskap. Leggjum við til, að n. sé skipuð þannig, að tveir nm. séu skipaðir samkvæmt till. Búnaðarfélags Íslands og tveir samkvæmt tilnefningu Stéttarsambands bænda, en fimmta nm. skipi ríkisstj. án tilnefningar og sé hann form. nefndarinnar.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að fólkinu fjölgar ekki í sveitum landsins þrátt fyrir stórbætt skilyrði þar á margan hátt, og margt af ungu fólki leitar þaðan til kaupstaðanna. Ýmsu er kennt um, t. d. dugleysi eða þá skemmtanafíkn unga fólksins o. s. frv. Ég hygg þó, að aðalástæðan sé sú, að margt af ungu fólki getur blátt áfram ekki stofnað heimili og tryggt framtíð sína í sveitunum. Þetta er sá sorglegi sannleikur, sem við þurfum að horfast í augu við og reyna að ráða bót á. Flestar bújarðir landsins hafa verið stórbættar á síðustu árum, enda hefur ríkið stutt þær framkvæmdir á ýmsan hátt, íbúðarhús og peningshús hafa verið byggð og ræktun stóraukin, og til þess hafa verið veitt hagkvæm lán að tilhlutan ríkisins. En þessar jarðir eru orðnar dýrar, búpeningur er líka orðinn dýr.

Hvernig á ný bændakynslóð að geta tekið við jörðunum og eignazt hæfilegan bústofn? Sú spurning hefur verið mér mesta áhyggjuefnið undanfarið viðvíkjandi íslenzkum landbúnaði. Sumir erfa að vísu jörð og bú eftir foreldra sína eða taka við af þeim, en séu þeir ekki einbirni, og það eru fáir, kemur að því, að þeir þurfa að kaupa hluta systkina sinna. Það hefur sumum reynzt erfitt og sumum ókleift. En svo eru aðrir, sem lítið eða ekkert erfa, hvernig eiga þeir að eignast jörð og bú, ef þeir vilja verða bændur? Áður fyrr var ekki svo erfitt að byrja búskap á leigujörð, því að ráðdeildarsamir vinnumenn gátu á fáum árum eignazt nægilega margar skepnur til að byrja með, og orf og hrífu áttu flestir, en önnur áhöld þurfti þá ekki að heitið gæti. Nú er öldin önnur. Leigujarðir eru færri en áður, a. m. k. þar sem ég þekki til, og menn sætta sig ekki við það að vera leiguliðar nú á dögum. Flestir vilja eiga ábýlisjörð sína. Bústofninn er tiltölulega dýrari en áður var, og nútímabúskapur krefst dýrra véla og áhalda í stað orfsins og hrífunnar og annarra handverkfæra áður. Menn vinna fyrir háu kaupi nú, og einstaka menn geta lagt fyrir fé, ef þeir eru ráðdeildarsamir, og gera það sumir. En jafnvel þótt ungur ráðdeildarmaður sé búinn að draga saman, segjum 100 þús. kr., þegar hann giftir sig og vill fara að reisa bú, og jafnvel þótt kona hans eigi eitthvað líka, þá hrekkur þetta skammt til að kauna jörð, sem búið er að byggja upp á og rækta, og til að kaupa nægilegan bústofn á jörðina auk nauðsynlegra véla og áhalda, og það jafnvel þó að byggingarsjóðs- og ræktunarsjóðslán hvíldu á jörðinni, sem hann fengi að taka við upp í kaupverðið. Slíkur ráðdeildarmaður sem ég tók dæmi af mundi að vísu kljúfa þetta, m. a. sökum þess, að hann mundi hafa lánstraust og geta slegið sér víxla, eins og það er orðað. En hvað svo um hina, sem annaðhvort skortir sömu ráðdeild eða hafa ekki getað lagt fyrir fé af öðrum ástæðum? Þeir geta áreiðanlega fæstir hafið búskap, sem nokkur mynd sé á, þó að þeir fegnir vildu. Ef ekkert er að gert, sýnist mér því flest benda til þess, að þegar þeir bændur, sem hafa byggt upp og ræktað sveitina, falla frá eða verða að hætta búskap vegna elli eða þreytu, þá muni margar jarðir annaðhvort fara í eyði eða komast í eigu efnamanna kaupstaðanna, sem síðan leigðu þær út eða notuðu sér til skemmtunar fyrir sumarbústaði og þess háttar. Slík þróun í sveitum landsins held ég að fáum finnist æskileg.

En hvað er þá til ráða? Ég held, að í þessu efni komi einkum þrennt til greina: 1) að efla veðdeild Búnaðarbankans, svo að bændur, einkum frumbýlingar, eigi þar kost á sæmilega hentugum lánum til jarðakaupa; 2) að greiða enn meira en nú fyrir fjölgun nýbýla, svo að ungt fólk, sem vill búa, en getur ekki fengið byggða jörð, geti samt stofnað heimili í sveit; 3) að komið verði upp lánastarfsemi til bústofnskaupa.

Hvað veðdeildina snertir virðist ekki þurfa ný lagaákvæði um hana, þau eru til. Þess vegna er ekkert minnzt á hana í till. Það, sem vantar til að gera veðdeildina starfhæfa, er ekki ný lög, heldur peningar, og þá peninga verður að útvega, en það mál er ekki nú til umræðu. Fer ég því ekki fleiri orðum um það.

Það eru líka til lög um nýbýli, en við flm. till. teljum, að þau þurfi að endurskoða og samhæfa betur því ástandi, sem nú ríkir, og er nánari grein gerð fyrir því í grg. till. Þess vegna viljum við fela fyrirhugaðri n. endurskoðun löggjafarinnar um nýbýli.

Að nafninu til eru einnig í gildi lagaákvæði um bústofnslán, þannig að ræktunarsjóði er heimilað að veita slík lán, en sú heimild hefur víst aldrei verið notuð, sem tæplega er heldur að vænta, því að bæði hefur ræktunarsjóð skort fé til þess, meira að segja tæplega haft fé til að fullnægja eftirspurn eftir byggingar- og ræktunarlánum, og auk þess tel ég, að tæplega væri hægt að veita bústofnslán samkv. þeim lagaákvæðum, jafnvel þó að fé væri fyrir hendi. Við flm. teljum því mikla nauðsyn bera til þess að setja ný lög um bústofnslán og jafnvel að breyta fleiri lögum í sambandi við það, t. d. eins og um búfjártryggingar. Er því fullkomin ástæða til að fela sérstakri n. athugun þessara mála, eins og hér er lagt til.

Að sjálfsögðu gæti komið til mála að skipa n. á annan veg en hér er lagt til, t. d. að hún væri kosin af Alþingi. Okkur flm. till. fannst þó eðlilegast, að stofnanir landbúnaðarins, Búnaðarfél. Íslands og Stéttarsamband bænda, tilnefndu flesta nefndarmennina, en ríkisstj. ætti þó sinn fulltrúa í henni og yrði hann form. n. Að sjálfsögðu mundi þessi nefnd hafa samráð við ýmsa aðila, t. d. stjórn Búnaðarbankans og stjórn nýbýlasjóðs.

Mér er það fullljóst, að til þess að verulegar framkvæmdir geti orðið í þeim efnum, sem ég hef rætt hér um, þarf fjármagn. Flestir gera kröfur til ríkissjóðs, þegar þeim finnst vanta fé til eins eða annars. Nú er það vitað, að ríkissjóður er ofhlaðinn gjöldum, og ég sé ekki, að hægt sé að bæta miklu við þær klyfjar. En ég álít, að hægt væri að beina fjármagni, sem nú þegar er fyrir hendi, til þessara þarfa, ef Íslendingar gætu lært að geyma a. m. k. verulegan hluta af sparifé sínu í bankavaxtabréfum til nokkurs tíma í stað þess að hafa það hér um bil allt laust og óbundið, og ráðstafanir í þá átt gætu ef til vill orðið til hjálpar í þessum efnum.

Annars er það að sjálfsögðu þeirrar nefndar, sem hér er lagt til að skipuð verði, að gera till. um það, hvernig fjár verði aflað til framkvæmda.

Hæstv. forseti hefur ákveðið tvær umr. um þessa till. Ég skil það svo, að hann líti svo á, að hún hafi í för með sér útgjöld fyrir ríkissjóð. Þess vegna mun sennilega rétt að vísa till. til hv. fjvn.