16.11.1955
Sameinað þing: 13. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2181)
78. mál, Alþingistíðindi
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hv. flm. lét þau orð falla hér áðan, að ég hefði fellt óvægan dóm yfir blaðamönnunum á Alþingi í sambandi við fréttaflutning. En ég vil benda honum á, að ég held, að sá dómur, sem hann felldi hér í sinni ræðu, hafi verið allmiklu harðari. Hann hélt því beinlínis fram, sem ég hef aldrei látið mér detta í hug að halda fram, að þessum mönnum væri fyrirskipað af sínum yfirboðurum að flytja rangar fréttir af Alþingi, þeim væri bókstaflega fyrirskipað að túlka málin eins og blöðin bera með sér að þau eru túlkuð og eins og hv. þm. og aðrir þm. hér hafa lýst að þau eru túlkuð, þ. e. algerlega ranglega. Hann hefur lýst því, að blaðamennirnir væru þau leiguþý, að þeir létu kaupa sig til þess að flytja þannig fréttirnar úr þinginu. Ef þetta er ekki harður dómur, þá veit ég ekki, hvað er harður dómur á blaðamennina.
Ég á ákaflega bágt með að trúa því, að þetta sé rétt, að nokkurt blað kaupi nokkurn ákveðinn mann til þess að flytja rangar fréttir frá þinginu, eins og hv. flm. þessarar till. hefur haldið hér fram, og vil ekki trúa því fyrr en ég tek á.
Hins vegar benti hv. flm. hér á alveg nýtt atriði, sem ég tel að væri rétt af hæstv. forsetum þingsins að taka til athugunar, og vil ég þá snúa máli mínu til hæstv. forseta sameinaðs þings: það er að hafa samráð við blaðamennina um að flytja fréttir hér af þingi nokkru nær sannleikanum en gert er, taka þar upp samkomulag við þingið og við blaðamenn og útvarp, því að það er engum til sóma eins og þetta er rekið í dag, eins og komið hefur hér á daginn. Og mér þætti líklegt, að hæstv. forseti Sþ. vildi reyna, hvort hægt væri að koma á meiri samvinnu á milli þingsins annars vegar og blaðamannanna hins vegar, og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á, að það séu svo ákveðnar fyrirskipanir frá yfirboðurum þeirra, að þeir treysti sér ekki til þess að hafa um það samkomulag að flytja fréttirnar nær sannleikanum en gert hefur verið, því að það þarf ekki eingöngu mín orð til þess að sanna það, það hefur verið margsannað hér af öðrum en mér, að þar er ekki allt flutt sannleikanum samkvæmt.
Að síðustu vildi ég aðeins benda á, að ef till. verður samþ., er alveg nauðsynlegt að athuga um leið, að hér í alþingishúsinu er engin aðstaða til þess að uppfylla ákvæði tillögunnar. Það þarf miklu meira húsnæði en hér er fyrir hendi, til þess að það sé hægt að koma þessu á. Þess vegna teldi ég rétt, að sú n., sem ég vænti að verði hv. fjvn., sem fær þetta mál til meðferðar, ræði málið ekki eingöngu við blaðamennina, heldur og við forseta þingsins, hvernig hægt sé að koma þessu verki í framkvæmd og hvað mikið fé það mundi kosta, ef þyrfti að útvega húsnæði, hvað mikið húsnæði o. s. frv. og hvar ætti að koma því fyrir, því að hér í alþingishúsinu er ekki hægt að bæta á þessu verkefni, eins og ætlazt er til að gert sé með þáltill.