16.11.1955
Sameinað þing: 13. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í D-deild Alþingistíðinda. (2183)
78. mál, Alþingistíðindi
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Það er ástæðulaust að ítreka það, sem ég sagði áðan, en ég skal játa, að auðvitað er hægt að hafa útdrátt svo beinaberan og stuttan, að ekki sé hægt að finna beint að neinu, sem í honum stendur, en spurning er, hvort menn eru nokkru nær með slíkum útdrætti. Í mörgum tilfellum og þegar um flókin mál er að ræða nægir slíkur útdráttur engan veginn til þess að gefa rétta hugmynd af því, sem fram fer, svo að þótt hægt sé að lýsa sem sagt ágreiningi um eitt tiltekið atriði með einni setningu á hvora hlið, þá fer því fjarri, að það sé almennt hægt. Mér kemur til hugar dæmi, sem er frægt úr veraldarsögunni, og það er þegar ófriðurinn hófst milli Prússa og Frakka 1870. Því hefur lengi verið haldið fram af sumum, að Bismarck, þáverandi forsætisráðherra í Prússlandi, hafi falsað fréttaskeyti, sem honum hafði borizt frá konungi sínum, og sú fölsun hafi orðið ástæðan til þess, að Frakkar fóru í stríðið. Þetta hefur verið kennt í sögubókum, sem ég hygg að bæði hv. þm. og ég höfum lært. Af öðrum hefur verið mjög stranglega borið á móti þessu. Skoðun á þessu hefur nokkuð farið eftir almennum pólitískum skoðunum manna, en ég minnist þessa nú vegna þess, að fyrir nokkrum vikum las ég rit um þennan mikla stjórnmálamann eftir brezkan flokksbróður hv. þm., þar sem hann segir, að þessi ákæra sé algerlega röng. Það hafi einungis verið gerður útdráttur úr skeytinu, sem í alla staði hafi verið réttur, og ekki með nokkru móti hægt að saka höfundinn um fölsun.
Svona eru dæmin oft og ákaflega örðugt úr að skera. Við sjáum það t. d. úr dómgæzlunni. Það er hafður mikill málflutningur, dómstig höfð fleiri en eitt, margir dómarar í hæstarétti, vegna þess að jafnvel þar, sem gefinn er kostur á að leggja öll rök fram, er erfitt að greina á milli. Og ég efast mjög um, að við værum betur komnir, þó að slíkur útdráttur yrði gerður, og vil vara mjög við honum. Það má segja, að hann ætti þó að tryggja það, sem engan veginn er tryggt nú, að blöð segja, að maður hafi haldið fram þveröfugu við það, sem maður gerir varðandi meginatriði máls. Að því leyti ætti hann að geta verið til einhverrar tryggingar, en sem undirstaða fréttaflutningsins dugir hann ekki, og í því efni dugir ekkert annað en þroskuð blöð og þroskaðir blaðamenn. Og við skulum játa það, að þótt ávíta megi blöð nokkuð í þessu efni, þá er framför í þeim efnum. Það er enginn vafi á því, eins og fram hefur komið í almennum umræðum um blaðamennsku nýlega, að blaðamennskan hér stendur nú á mun hærra stigi en hún stóð fyrir 40–50 árum og jafnvel en hún stóð fyrir 20–25 árum. Og ég er á því, að það megi stöðugt merkja vissa framför í þessum efnum. Það yrði, eins og ég drap á, til stórs munar, ef blaðamennirnir fengju sig til þess að hafa í sérstökum greinum sína gagnrýni og túlkun og fréttirnar í sérstökum greinum og létu sér nægja að skýra eingöngu frá staðreyndunum. Látum vera, þó að þeir veldu staðreyndirnar eins og þeirra sannfæring segir til. Við því verður aldrei gert. Og þegar við tölum um fréttaflutning hinna stóru og ágætu blaða, hvort sem þau eru á Norðurlöndum eða annars staðar, þá er auðvitað það sama vandamál alls staðar í heiminum, að blöðin, jafnvel þau, sem kölluð eru ópólitísk, eru stöðugt ákærð fyrir að velja úr fréttunum í samræmi við einhverjar ákveðnar hugsjónir eða hagsmuni. Það er stöðugur ágreiningur um það. Við skulum taka dæmi, sem er okkur svo fjarri, að skoðanamunur okkar skiptir þar ekki máli, ágreining milli demókrata og repúblíkana í Bandaríkjunum. Þar er því stöðugt haldið fram af demókrötum, að repúblikanar ráði yfir meginhluta blaðanna og noti þau til þess að skjóta undan eða gera minna úr þeim fréttum, sem séu hinum flokknum til hags, þó að það sé ekki sagt, að þeir haldi nokkurn tíma beinlínis röngu fram eða fölsuð séu ummæli, eins og við eigum því miður enn þá við að búa hér á landi og blöðin verða að hafa samvinnu um sín á milli að bæta úr. Það er alveg rétt, að ef þingið getur orðið þar til leiðbeiningar og hjálpar, þá er það mjög gott. En fyrst og fremst er þar um að ræða samvinnu milli blaðamannanna sjálfra og að þeir átti sig á, að það hefur enginn hag af, heldur allir óhag af þeim rangsnúna fréttaflutningi, sem nú á sér oft stað, vegna þess að árangurinn verður sá einn, að stjórnmálamennirnir sem slíkir, alveg án tillits til þess, í hvaða flokki þeir eru, fá minna álit og minni tiltrú hjá þjóðinni en þeir þó eiga skilið.
Að lokum vildi ég segja það, að hv. þm. hefur mjög rangt fyrir sér, ef hann heldur, að fréttir frá Sameinuðu þjóðunum séu á sama veg á Íslandi og þær eru annars staðar. Það er áreiðanlegt, án þess að ég geri lítið úr okkar ágætu fulltrúum þar, að þeirra ummæli, svo góð og merk sem þau eru þegar þeir segja eitthvað, vekja miklu meiri athygli hjá hinum íslenzka fréttamanni en hjá fréttamönnum annarra þjóða. Það þarf ekki heldur annað en að hafa tekið þátt í hvaða alþjóðafundi sem er og hvaða ráðstefnu sem er til þess að sjá, að aðalvandinn er alltaf sá að semja lokafréttatilkynningu, og yfirleitt verður hún svo litlaus og lítið á henni að græða sem raun ber vitni um af því, að menn treysta sér ekki út í neina allsherjargreinargerð, sem þá hvort eð er yrði ekki fullnægjandi. En segja má, að þessar hugleiðingar mínar varði alls ekki það aðalefni málsins, sem lýsir sér í till. hv. þm., að hér er um að ræða vanda, sem þarf að leysa betur en enn hefur tekizt að gera.