24.11.1955
Neðri deild: 23. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (22)
12. mál, verðlagsuppbót á laun opinberra starfsmanna
Jón Pálmason:
Herra forseti. Eins og kunnugt er, hef ég frá upphafi verið andvígur þeirri verðskrúfu, sem vísitölu- og verðlagsuppbótafarganið hefur leitt af sér. Þess vegna get ég ekki samþykkt slíkt frv. sem þetta, því að það fer fram á að afnema allar takmarkanir á greiðslu verðlagsuppbóta til opinberra starfsmanna og borga alveg upp í topp, sem ekki hefur nú lengi verið. Frá mínu sjónarmiði er þess vegna þetta frv. byggt á reglunni: Því vitlausara, því betra. Ég skal ekkert fara lengra út í það, en að sjálfsögðu greiði ég atkv. gegn þessu máli.