08.02.1956
Sameinað þing: 38. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (2209)

142. mál, varnargarður í Vestmannaeyjum

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Á þskj. 292 hef ég leyft mér að bera fram þáltill., er svo hljóðar, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fara fram verkfræðilega athugun á því, hversu megi fyrir koma á Eiðinu í Vestmannaeyjum traustum vörnum gegn hafróti, og undirbúa varnaraðgerðir að athugun lokinni.“

Þeim, sem ekki eru kunnugir staðháttum í Vestmannaeyjum, sem raunar munu nú fáir vera af þeim, sem hér eru viðstaddir, skal ég segja það, að Eiðið, sem talað er um og er þegar nefnt í Landnámu, er grandi, er tengir saman Stóra-Klif og Heimaklett og skýlir höfninni að norðanverðu fyrir sjógangi, einkum þeim mesta og sterkasta sjógangi, sem til er við Vestmannaeyjar, útsynningsbriminu. Þetta Eiði hefur verið varnargarður hafnarinnar og raunar byggðarlagsins má segja að sínu leyti öldum saman, og virtist lengi vera, að á því væru litlar breytingar. A. m. k. minnist ég þess úr mínum uppvexti á þessum stað, að þegar hafrót gekk svo fram af öllum á vetrum, að sópaði yfir Eiðið, sem kallað var, eða gengi yfir Eiðið, þá þótti það með ódæmum. En því miður er orðið æ tíðara, að hafrótið gangi hærra en svo, að Eiðið megi fullkomlega við því sporna.

Með vaxandi bátafjölda í Eyjum og auknum hafnarmannvirkjum verður æ augljósara, hversu mikil hætta bátum og mannvirkjum stafar af því, að þessi grandi milli Stóra-Klifs og Heimakletts, Eiðið, sem svo er nefnt, virðist síga æ meira í sæ. Eiðið, sem liggur að höfninni norðanverðri, hefur um allan aldur verið vörn hafnarinnar fyrir útsunnanbrimi. Það virðist nú stöðugt vera að lækka og veður hafrót yfir það í miklu minna brimi en áður gerðist. Þessi varnarveggur, sem hefur ávallt hindrað öldur Atlantshafsins frá því að falla óbrotnar inn í Vestmannaeyjahöfn, virðist óðum vera að lækka. Áður fyrr þótti það annálshæft, ef fyrir kom í mestu stórbrimum, að sjór félli yfir Eiðið. Nú er það alltítt. Ekki verður annað séð en að hafið sé á nokkurri leið með að mola niður þær varnir, sem Eiðið veitir höfninni, nema aðgerðir verði hafnar til að styrkja þær og auka viðnám grandans.

Fyrir nokkrum árum fór fram lítils háttar viðgerð til styrkingar grandans á vegum vita- og hafnamálaskrifstofunnar og mun hafa borið nokkurn árangur í bili, þótt mjög væri ófullnægjandi.

Fyrir því er þessi till. til þál. borin fram, að þörf virðist mikilla aðgerða á þessum stað til að styrkja þennan varnarvegg hafnarinnar og skapa höfninni og bátaflotanum öryggi umfram það, sem nú er.

Það leiðir af sjálfu sér, að eftir því sem hafnarmannvirki innan hafnarinnar og bátafjöldinn vex, þá margfaldast þau verðmæti, sem í húfi eru á þessum stað, ef sjór gæti brotið niður Eiðið. Það er leikmanna mál, og af öðrum hefur þetta mál verið lítið athugað enn þá, að með hæfilegum aðgerðum mundi mega ganga svo frá styrkingu grandans, að sjór gengi trauðlega yfir eða jafnvel ekki. En vitaskuld er með það eins og önnur verk af slíku tagi, að til þess að vel og skynsamlega sé af stað farið, þarf verkfræðilega athugun, áður en framkvæmdir eru hafnar, og í því skyni er þessi till. borin fram.

Það leiðir af sjálfu sér, þótt það sé ekki nefnt í till., að ég ætlast til þess sem flm., að vita- og hafnamálaskrifstofunni yrði falin sú athugun, sem þörf er á og réttmæt þykir.

Ég ætla, að ég þurfi ekki að hafa hér um fleiri orð. Það er almenn skoðun, að hér sé brýn þörf skjótra aðgerða. Og ég vil vænta, þegar athygli er vakin á þeirri hættu, sem þarna er á ferð fyrir land ríkissjóðs, að hið háa Alþ. vilji að því stuðla á sinn hátt, að varnir þær, sem Eiðið hefur veitt fram að þessu, megi haldast í framtíðinni fyrir Vestmannaeyjar og þann atvinnuveg, sem þar er rekinn.

Ég býst við, að það muni vera rétt að biðja um að vísa þessari till. að lokinni þessari umr. til hv. fjvn., þar eð ég ætla, að vel geti svo farið, að sá undirbúningur, sem nefndur er í till., þurfi að vera það umfangsmikill, að einhverja fjárveitingu þurfi til þess og sem sagt afskipti hv. fjvn. á fyrsta stigi málsins frekar en annarra n. Alþ., og vil þess vegna mælast til þess, að málið fari til hv. fjvn. að lokinni þessari umr.