14.03.1956
Sameinað þing: 46. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í D-deild Alþingistíðinda. (2240)

177. mál, samgöngur innanlands

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hef, eins og kunnugt er, ásamt hv. þm. Snæf. borið fram á síðustu þremur þingum till. til þál. um að koma betri skipan á strandferðir í kringum landið með tilliti til þess, að meira gagn mætti verða af ferðunum og kostnaðurinn þó allmiklu minni en hann nú er í sambandi við útgerð á skipum ríkisins.

Hv. frsm. og formaður fjvn. hefur nú gert grein fyrir þeirri till., sem n. ber fram á þskj. 446, og hefur þar verið tekið upp meginatriðið úr þeirri till., sem við höfum borið fram, ég og hv. þm. Snæf., á þskj. 78, eins og hann einnig lýsti. Get ég hér lýst yfir, að ég er ekki einasta samþykkur þeirri málsmeðferð, sem hér hefur verið höfð á, heldur vil og leyfa mér að flytja hv. fjvn. þakkir fyrir afgreiðslu málsins á þann hátt, sem hér kemur fram í þáltill. Það er að sjálfsögðu mér aðeins gleðiefni, að þessi athugun eigi að vera víðtækari en gert er ráð fyrir í till. okkar hv. þm. Snæf., og ég er fyllilega sammála því, að það sé bæði rétt og viturlegt, að málið sé tekið upp á þeim grundveili, sem hv. fjvn. leggur til.