03.11.1955
Sameinað þing: 9. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í D-deild Alþingistíðinda. (2271)

65. mál, fræðsla í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég tel sjálfsagt, að þetta mál fari til nefndar. En áður en það fer þangað, þykir mér rétt að segja hér örfá orð, og ég vil byrja á því að lýsa ánægju minni yfir því, að því máli, sem þessi till. fjallar um, er hreyft hér. Skal ég ekki mótmæla neinum þeim rökum, er fram komu hjá hv. flutningsmanni, en vil minna á, að það munu vera milli 10 og 20 ár síðan við hv. 5. landsk. (EmJ) fluttum hér frv. um að gefa út á ríkisins kostnað tímarit um þjóðfélagsmál, sem allir þeir stjórnmálaflokkar, er fulltrúa ættu á þingi, hefðu aðgang að og stjórn á. Þessi hugmynd var byggð á því, að þjóðin skyldi fá í einu og sama tímariti upplýsingar um það, sem fyrst og fremst er byggt á af hálfu hvers stjórnmálaflokks, og flokkarnir fengju þar með ríkt aðhald til að segja rétt frá um það, á hverjum aðalatriðum þeir byggja sína stefnu. Þessu frv. var mjög dauflega tekið hér á hv. Alþingi á þeirri tíð og ef ég man rétt sérstaklega af þáverandi aðalvaldaflokki, Framsóknarflokknum, sem nú mjög ánægjulega flytur þetta mál, þótt í annarri mynd sé. En ég held, að það sé miklu líklegra til æskilegs árangurs á þessu sviði að fara þá leið að hafa sérstakt tímarit, sem allir flokkar þingsins eða allir stjórnmálaflokkar landsins standa að, heldur en að fara að gefa út kennslubækur, eins og mér skilst helzt að flutningsmenn þessarar till. leggi aðallega til, — gefa út kennslubækur, sem maður veit aldrei um, hvaða skoðana menn standa aðallega að. Og ef sú nefnd verður skipuð, sem ég er sízt á móti, sem þessi till. fjallar um, þá fyndist mér eðlilegt, að í þeirri n. ættu sæti beint fulltrúar frá hverjum stjórnmálaflokki, en ekki frá stéttarfélögum, fulltrúar í nefndina væru tilnefndir af þingflokkunum öllum og fylgt þeirri hugmynd, sem við höfðum áður og höfum ekki breytt neitt skoðun á, að ég held, að gefa út slíkt fræðslutímarit, sem allir flokkarnir stæðu að. Við verðum allir að játa, að flokksblöðin, sem gefin eru út á okkar landi, eru skrifuð á nokkuð einhliða hátt, og þess vegna er það svo, að blaðamennskunni er ekki eins vel treyst og ella mundi vera. En í tímariti, sem allir flokkar stæðu að, gæti landsfólkið séð, hvaða grundvöllur, hvaða skoðanir, hvaða stefna það er, sem hver og einn stjórnmálaflokkur byggir sína tilveru og baráttuaðferðir á.

Ég skal nú ekki fjölyrða um þetta að sinni meira, nema tilefni gefist til, en ég vildi nú þegar benda á það, að þetta er ekki í fyrsta sinn, sem þessu máli hefur verið hreyft hér á hv. Alþingi.