14.03.1956
Sameinað þing: 46. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (2279)
65. mál, fræðsla í þjóðfélags- og þjóðhagsfræðum
Frsm. (Bernharð Stefánsson):
Herra forseti. Við fyrri umr. þessa máls gerði ég grein fyrir þeirri till., sem hér liggur fyrir, og hef ég engu við það að bæta, sem ég sagði þá.
Allshn. Sþ. hefur haft till. til meðferðar, og eins og sjá má á nál. á þskj. 413, mælir n. með, að till. verði samþykkt óbreytt.
Einn nm., hv. þm. Snæf. (SÁ), var ekki viðstaddur, þegar n. afgreiddi þetta mál, og nú ber hann fram brtt. á þskj. 453. Er hún ekki mikil efnisbreyting að vísu, en n. hefur ekki haldið fund, síðan þessi till. var borin fram, og þar af leiðandi enga afstöðu til hennar tekið. Ef hv. þm. Snæf. óskar eftir því, að n. taki þessa brtt. hans til athugunar, mundi þurfa að fresta umr. nú, og hef ég ekkert á móti því út af fyrir sig.