21.03.1956
Sameinað þing: 48. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í D-deild Alþingistíðinda. (2293)

76. mál, súgþurrkun

Jón Pálmason:

Herra forseti. Það eru nú liðnir einir fjórir mánuðir síðan þessari till. var vísað til hv. fjvn., og verð ég að segja, að þrátt fyrir viðleitni frá n. hálfu sé nú lítið orðið úr þeim tilgangi, sem fyrir okkur flm. vakti með þessari till., með þeirri brtt., sem hér er flutt af n. hálfu. Þrátt fyrir það þakka ég hv. fjvn. fyrir að hafa þó skilað till., því að ég kann þó, þrátt fyrir það að mér þyki þessi till. heldur lítilfjörleg, betur við að fá hana afgreidda en að málið sé alveg saltað.

Sannleikurinn er sá, að hér er um stærra mál að ræða en margir menn gera sér grein fyrir. Auðvitað er ekki um nema tvær leiðir að velja í því að draga úr kostnaði á þessu sviði, sem þó leiða báðar til sömu niðurstöðu. Önnur er sú, að það sé lagt fyrir rafveitur ríkisins að selja raforkuna í þessu skyni ódýrara en gert er, en hitt er að borga það beint úr ríkissjóði, sem þarna væri um að ræða.

Samkv. þeim upplýsingum, sem fram koma í bréfi raforkumálastjóra, virðist það vera svo, að að meðaltali sé um 2000 kr. á býli sá kostnaður, sem við raforkuna eina er árlega. Auk þess vita menn náttúrlega, að kostnaður við að koma upp súgþurrkunarkerfi er stórkostlegur í byrjun fyrir utan þetta. Að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða nánar um þetta mál, því að eins og komið er dettur mér að sjálfsögðu ekki í hug að fara að flytja brtt. við þessa till. hv. fjvn., og eins og ég tók áðan fram, þykir mér þó betra að fá hana samþykkta heldur en að málið væri alveg saltað, ef vera mætti, að hæstv. ríkisstj. léti fara fram nánari athugun á þessu þýðingarmikla máli.