27.03.1956
Sameinað þing: 50. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í D-deild Alþingistíðinda. (2353)

156. mál, bátagjaldeyrishlunnindi til sjómanna í Vestmannaeyjum

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Það er rétt, sem hv. frsm. og form. fjvn. hermdi hér um það, er af minni hálfu hefur gert verið í þessu máli á þessu þingi. Það, að ég fór fyrst þá leið að flytja brtt. við fjárl., eins og hann lýsti, var að öllu leyti réttilega með farið.

Þetta mál hefur að borið á dálítið einkennilegan hátt, þar sem hér vaktist upp skuldakrafa á hendur útvegsmönnum í Eyjum frá hálfu háseta, — skuldakrafa, sem þeir áttu ekki von á og höfðu á sínum tíma gert upp við fólk sitt í góðri trú um, að það væri rétt uppgjör, eins og vera ber og yfir höfuð er venja, að útvegsmenn austur þar, eins og ég hygg annars staðar, leysi frá sér fólk sitt samkvæmt samningum.

Þessi krafa um hlutdeild í bátagjaldeyrisfríðindum kom mjög óvænt og fast að því eins og reiðarslag yfir hina fátækari af útvegsmönnum, þegar dómar féllu þannig, að bakkröfur voru dæmdar á útveginn út af bátagjaldeyrisfríðindunum til handa sjómönnum.

Yfir höfuð hafa útvegsmenn haft mikinn hug á að fá þessu máli kippt í lag, en öllum er kunnugt um það, að í byrjun vertíðar, og raunar er jafnvel enn, leit svo út, að mjög væri þröngt um venjuleg útgerðarlán hjá bönkunum, auk heldur ný lán til þess að borga upp gamlar kröfur. Fyrir því þótti nauðsynlegt að leita á náðir hins opinbera til fyrirgreiðslu á einn hátt eður annan. Ég þakka hv. fjvn. fyrir afskipti hennar af þessu máli og þakka líka formanni fjvn. fyrir þá yfirlýsingu, er hann gaf um það, að hæstv. ríkisstj. mundi hafa á því fullan hug og vilja að leysa málið eftir þeim leiðum, er hv. frsm. minntist á og koma að svipuðu eða sama gagni og þó að brtt. mín við fjárl. á sínum tíma hefði verið samþ. Hér hefur því verið mikið gott lagt til málefnis, sem snertir hóp framleiðenda, bæði sjómanna og útvegsmanna, í einu stærsta fiskiveri landsins, og fagna ég því að sjá hilla undir lausn á deilu, sem annars hefði getað orðið alvarleg, ekki einasta fyrir þá, heldur fyrir þjóðarbúið.

Ég vil svo vænta þess, að hv. Alþ. vilji styðja þetta málefni eins og það er fram borið af hv. fjvn. og leggi þannig sitt lóð á metaskálina. Um vilja og væntanlegar aðgerðir hæstv. ríkisstj. í þessu máli þarf ég ekkert að efast, eftir að ég hef hlustað á ræðu hv. frsm. fjvn.