18.11.1955
Sameinað þing: 15. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í D-deild Alþingistíðinda. (2395)

79. mál, milliliðagróði

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég er einn þeirra manna, sem leyfðu sér að brosa, þegar þessi till. kom fram. Ég tek undir það með hv. 1. þm. Eyf., að ekki finnst mér nú taka því að fara að setja neina stofnun á fót til þess að sálgreina flutningsmennina eða rannsaka að leiðum sálfræðinnar, hvað fyrir þeim vaki með till. Mér finnst það nefnilega alveg óþarft. Mér finnst það skína út úr þeim. Tillagan er flutt af því, að Sjálfstfl. líður illa undir því almenningsáliti, að milliliðagróðanum í þjóðfélaginu sé gert of hátt undir höfði og að framleiðsluatvinnuvegirnir séu látnir búa við of þröng kjör. Og þá segja þeir: Ja, við skulum láta Alþingi kjósa nefnd. — Og það er rétt, sem hv. 8. landsk. þm. benti hér á, að það eru allar líkur til þess, að sjálfstæðismenn eigi þau ítök í slíkri fimm manna nefnd, að þeir hefðu góða aðstöðu til að verja sína umbjóðendur þar, ef þeir skyldu þá vera sannir að sök um að vera öðrum fremur umbjóðendur milliliðanna. Og þá er nefndarkosning og nefndarstarf ágætt skálkaskjól, þegar aðstaðan er góð til þess að gæta þar hagsmuna sinna brjóstmylkinga. Sjálfstfl. hefur þá sterku aðstöðu og hefur haft lengi, þar sem hann hefur stjórnarvaldið í höndum síns flokksformanns, að hann gæti gert miklu meira en að skipa nefnd til þess að athuga þetta. Hann gæti þrengt að milliliðagróðanum, en það lætur hann bara vera. Það væri það, sem talaði miklu skýrara máli til mín og annarra, ef Sjálfstfl. hefði sýnt einhvern lit á því að taka í lurginn á milliliðum og takmarka þeirra vald til milliliðagróða. Hvað hafa sjálfstæðismenn gert í því? Ekkert. Þeir hafa tekið þær einu hömlur í burtu, sem á því voru, að hér væri frjáls álagning á vörur. Verðlagseftirlitið hafa þeir lagt niður og enginn þarf að ætla, að við það hafi álagning minnkað, heldur hefur hún auðvitað aukizt, og þetta er af því, að Sjálfstfl. vill, að milliliðir reki hér gróðavænlegan atvinnurekstur, og hirðir þá stundum ekki um sem skyldi að gæta hagsmuna framleiðsluatvinnuveganna.

Hv. þm. N-Ísf. (SB) sagði hér áðan, að ef milliliðagróðinn væri óhóflegur, þá væri þjóðfélagið sjúkt. Um þetta er ég honum alveg sammála og vildi gjarnan, að hugur fylgdi máli hjá honum um það. Ég er einn af þeim mönnum, sem telja, að það beri því miður vott um sjúklegt þjóðfélagsástand, þegar ástandið er eins og það er í dag, að allir framleiðsluatvinnuvegir þjóðarinnar eru reknir með tapi og látið heita, að þeir lífi á bónbjörgum, að sjávarútvegurinn baslist áfram með hjálp og styrkjum til hans, að landbúnaðurinn bjargist áfram með hjálp og styrkjum til hans o. s. frv., en að gróði sé einungis af milliliðastarfsemi. Þetta tel ég sjúklegt þjóðfélagsástand.

Ég læt mér ekki detta í hug, að hv. þm. N-Ísf. eða flokksmenn hans segi frá því t. d. í útlöndum, að á Íslandi er það svo, að það er ekkert nema tap af sjávarútvegi og það er ekkert nema tap af landbúnaði og við verðum að fleyta þessu áfram, sjávarútveginum með afgangi af gróða af tóbakssölu og landbúnaðinum og öðru í atvinnulífinu með brennivínsgróða. Það eru máttarstólparnir hjá okkur á Íslandi, brennivín og tóbak. Töpin eru öll á framleiðsluatvinnuvegunum, og við erum að styrkja þá af þessum gróða þessara nautnavara, og svo er verið að kría náttúrlega út úr heiðarlegum kaupmönnum líka og öðrum, sem selja aðrar vörur, til þess að halda landbúnaði og sjávarútvegi uppi. Ég veit ósköp vel, að hv. þm. N-Ísf. er það eins ljóst og mér, að öll milliliðastarfsemi í landinu sýgur sína næringu frá sjávarútvegi og landbúnaði fyrst og fremst og að einhverju leyti frá jákvæðri iðnaðarstarfsemi og að styrkjaþörfin hjá landbúnaði og sjávarútvegi er einungis af því, að milliliðir hafa komizt inn á sjávarútveginn og landbúnaðinn og kroppa þar of mikið, og svo er látið heita, að það sé verið af miskunnsemi að styrkja þennan grundvöll þjóðfélagsins, framleiðsluatvinnuvegina. En það er ekki hægt að fá nokkurn mann innanlands eða utan til að trúa því, að máttarstoðirnar séu verzlun með brennivín, verzlun með tóbak, ekki einu sinni verzlun með bíla, ekki einu sinni verzlun með kornvörur, með nauðsynjavörur. Nei, allt er það milliliðastarfsemi, sem ætti að vera svo þröngur stakkur skorinn, að hún væri aðeins þjónustustarfsemi við framleiðslulífið, en gengi fyrst og fremst ekki of nærri því.

Hv. þm. N-Ísf. sagðist viðurkenna það, að tölurnar í þeirri skýrslu, sem hv. 1. landsk. lagði hérna fram, hefðu verið uggvænlegar tölur. Hann viðurkenndi, að það væri sýnt, að þegar sú rannsókn fór fram, hefði átt sér stað svo mikill gróði í milliliðastarfseminni, að það væri uggvænlegt. Hvað halda menn að hafi gerzt síðan? Halda menn, að gróði milliliðanna hafi minnkað síðan fyrir 10 árum, síðan 1945? Nei, það benda allar líkur til þess, að milliliðagróðinn hafi aukizt síðan, einkanlega vegna þess, að hömlur á álagningu hafa verið niður felldar og verzlunarstéttin hefur nú sjálfdæmi um það, hvað hún leggi á vöruna. Auðvitað hefur hún ekki verið að þrengja sjálf að sér, heldur rýmka sitt olnbogarúm með aukinni álagningu. Og þetta þýðir því auðvitað það, að færi rannsókn fram nú, þá má búast við því sem sjálfgefnu, að tölurnar, sem nú kæmu í ljós, yrðu uggvænlegri en hjá hagfræðinganefndinni 1945.

Ég hygg, að það hafi verið hv. 3. þm. Reykv., sem viðurkenndi að vísu afstöðu hv. 1. landsk., að hann hefði fagnað till. og lofað að fylgja henni, en hér væru menn að bölsótast út af þessari till. og væru sýnilega hræddir víð hana. Þetta er alger misskilningur hjá hv. þm. Hér hefur enginn maður harmað, að þessi till. sé komin fram. Menn hafa sagt, að það þyrfti að framkvæma þessa rannsókn, og ég heyrði ekki betur en hv. 8. landsk. segði: Það þarf að vera ekki aðeins tryggt, að kákrannsókn fari fram, heldur að ýtarleg rannsókn fari fram, og þá má búast við, að hún verði tímafrek. Ég heyrði ekki, að hann legðist á móti þessari till. og vildi ekki, að það væri rannsakað, hver milliliðagróðinn væri; þvert á móti skildist mér á honum, að hann vildi, að rækileg rannsókn færi fram á milliliðagróðanum, svo að þar næðist rétt niðurstaða.

Ég undirstrika það, að þó að Sjálfstfl. vilji ekki taka svo myndarlega til höndum að sýna í verki, að hann vilji þrengja að milliliðagróðanum, t. d. til hagsbóta fyrir framleiðslustarfsemina í þjóðfélaginu, þá vil ég þó fylgja honum í því, að það verði skipuð nefnd, í trausti þess, að sú nefnd vinni vel sitt verk og fái aðstöðu til að rannsaka allt ofan í kjölinn.

Það hryggir mig að vísu að heyra, að hv. 3. þm. Reykv. skuli tala í þeim tón, að hann vilji, að þessi nefnd sé sett á laggirnar, en hafa hana eins valdalitla og hægt sé. Hann sagðist telja, að það væri óþarft, að hún hefði vald til að heimta skýrslur. Já, einmitt það. Slíka nefnd vilja þeir, en slíka nefnd vil ég ekki. Ég vil, að hún hafi tvímælalaust vald til þess að heimta skýrslur af öllum þeim aðilum, sem hún telur ástæðu til. Mér heyrðist líka því miður á hv. frsm. till., að hann teldi, að það væri nóg að snúa sér til aðilanna sjálfra og fá þeirra skýrslu, fá þeirra svör, fá skýrslu frá Sölusambandi íslenzkra fiskframleiðenda um það, hvort það teldi sig hafa óhóflegan milliliðagróða, hvort það hefði nokkuð safnazt fyrir í pokahorni t. d. á Ítalíu, og svo þegar skýrslan væri fengin, þá væri allt í lagi, þá væri rannsóknin búin, það þyrfti ekkert annað en spyrja þá sjálfa. Slíka nefnd vil ég ekki, en nefnd með valdi og nefnd með vilja til þess að komast að sannleikanum í þessum efnum, það vil ég.

Hv. þm. N-Ísf. skaut því hér fram í seinni ræðu sinni, þegar hann hafði fullyrt, að niðurstöðutölur hagfræðinganefndarinnar 1945 hefðu verið uggvænlegar: Hví framkvæmdi þáverandi viðskmrh., Emil Jónsson, ekki rannsókn á þessum uggvænlegu tölum? Ja, það er ástæða til að spyrja. Mér hafði dottið í hug, að það kynni að vera af því, að Sjálfstfl. var með í þeirri stjórn, og að honum hafi ekki verið gefið um slíka rannsókn, og bendingu í þá átt gefur það, að fjárhagsmál heyrðu undir alla ríkisstj. og að einn flokkur í ríkisstj. gat því ekki knúið fram slíka rannsókn án samþykkis hinna stjórnarflokkanna. Og ég vildi þá snúa spurningunni við: Hvers vegna ætli Sjálfstfl. sem flokkur í þeirri stjórn hafi þá ekki getað sýnt áhuga sinn á því, þegar þessar uggvænlegu tölur lágu fyrir, að knýja þá fram rannsókn? Mér þætti vænt um, ef það væri hægt að upplýsa það, að Sjálfstfl. hafi þá haft uppi tilburði um að knýja fram rannsókn á málinu, eftir að þessar uggvænlegu tölur vísindamannanna, þ. á m. fulltrúa frá Sjálfstfl., höfðu komið fram, en það þurfti samþykki allra stjórnarflokkanna til ákvarðana um fjárhagsmál.

Eitt af því, sem hv. frsm. tók hér fram í seinni ræðu sinni, var það, að einn af þm. Sjálfstfl., hv. þm. Vestm. (JJós), hefði átt hlut að því, að útgerðarmenn í Eyjum hefðu komið upp félagssamtökum hjá sér — til hvers? Til þess að komast hjá milliliðagróða. Og nú vil ég spyrja: Halda ekki Vestmanneyingar áfram þessari félagsstarfsemi sinni? Bendir það ekki einmitt til þess, að þeir með því að útvega sér sínar vörur sjálfir komist hjá einhverjum milliliðakostnaði, sem sé hægt að sneiða hjá? Þeir verða auðvitað að hafa allan nauðsynlegan kostnað af útvegun sinna vara gegnum sinn félagsskap, en sleppa þeir ekki ódýrara en með því að láta það fara hinar venjulegu leiðir? Ef þeir slyppu ekkert ódýrara á þennan hátt og högnuðust ekkert á því, þá mundu þeir, hygg ég, hætta þessari fyrirhöfn allri saman. Þeir halda því áfram. Það bendir til þess, að þeir komist fram hjá milliliðagróða með þessu móti, enda er það staðreynd, að útgerðin í Vestmannaeyjum, m. a. af þessari ástæðu, stendur ekki eins höllum fæti og víða annars staðar, þar sem milliliðagróðinn hefur fengið sinn skerf af framleiðsluverðmætinu.

Ég get ekki komizt hjá því að gera athugasemd við það, þegar hv. þm. N-Ísf. sagði, þegar hann var að svara hv. 8. landsk., að á dögum verðlagseftirlitsins hefði vissulega átt sér stað smygl og fleira. Ef það stæði eitthvað í sambandi við verðlagsákvæðin, þá ætti smyglið að vera horfið núna. Nú er ekki neitt verðlagseftirlit. En einkennilegt er, að hafi þetta verið orsökin, þá hefur afleiðingin samt ekki horfið. Það eru ekki ómerkari menn en hv. 1. landsk. og hv. 3. þm. Reykv., einn aðalhöfuðsmaður heildsalastéttarinnar í þessu landi, Björn Ólafsson, sem hafa fyrir örskömmu viðurkennt hér á Alþingi, að nú væri slíkt smygl í landinu, að óviðunandi sé.

Það lítur því út fyrir, að þetta standi ekki í beinu sambandi við verðlagseftirlit, ófögnuðurinn eigi sér stað ekki síður, þó að búið sé að afnema verðlagseftirlit. Aldrei þótti heldur ástæða til að nota ákvæði stjórnarskrárinnar til að setja á laggir valdamikla nefnd til þess að glugga ofan í okrið, meðan einmitt þetta verðlagseftirlit var. Nú á s. l. ári, þegar verzlunarfrelsið var komið í algleyming, var sett á fót — ég held með samþykki allra þingflokka — valdamikil nefnd til þess að rannsaka okurstarfsemina í landinu, sem þá þótti keyra svo úr hófi, að það væri ekki lengur neinum vafa bundið, að hér væri stórkostleg okurstarfsemi rekin.

Nei, það er ekki til neins að nefna þetta þjóðfélagsböl, okur og smygl, sem eitthvað, sem heyri liðinni tíð til, þeim tíma, þegar höft og bönn hafi neytt menn út í slíka starfsemi. Þetta hefur allt saman dafnað og magnazt því meir sem hið svokallaða verzlunarfrelsi hefur fengið að breiða úr sér, sem, eins og margsinnis hefur verið sýnt fram á, er aðallega og nær eingöngu fólgið í frjálsri álagningu, frjálsum gróða, en ekki frelsi í verzlun að öðru leyti.

Hv. 1. landsk. taldi það sannaða staðreynd, að milliliðagróðinn sé of hár og hv. 3. þm. Reykv. viðurkenndi hans ræðu hafa verið öfgalausa í þessu máli, og þar með viðurkenndi hann, að mér skildist, niðurstöðu hans.

Ég tek því undir það með hv. 1. landsk„ að ég tel það eitt höfuðverkefni nefndarinnar, ekki að sýna fram á það, sem þegar er sannað, heldur að undirbyggja tillögur um, hvernig ætti að draga úr milliliðaokrinu á þann hátt, að framleiðsluatvinnuvegirnir hefðu betri möguleika til að starfa.

Ég undraðist það, þegar ég heyrði hv. 3. þm. Reykv. vitna til þeirra tíma, þeirra sældartíma skildist mér, þegar við hefðum búið við milliliðalaust þjóðfélag, og það átti að hafa verið á dögum einokunarverzlunarinnar, á dögum ósjálfstæðis og þjáninga undir erlendri þjóð. Eru menn virkilega búnir að falsa svo Íslandssöguna fyrir sjálfum sér, að hæstv. dómsmrh. geti borið þetta á borð, þó að á Varðarfundi sé, að tala um milliliðalaust þjóðfélag á okkar þjáninga- og niðurlægingartímum, og að hv. 3. þm. Reykv. leyfi sér svo í framhaldi af þessari kenningu ráðherrans að bera þetta á borð fyrir okkur á Alþingi? Hvenær hefur íslenzkt þjóðfélag verið mergsogið eins og pínt eins og meðan við lutum erlendri þjóð, sem hafði milliliði sína í öðru landi og sprengdi undan blóðugum nöglum hvers Íslendings allt það, sem hægt var að ná í sambandi við framleiðslu okkar, svo lítil sem hún þá var? Og svo segja menn, að þetta hafi verið milliliðalaust þjóðfélag, og spyrja, hvort menn vilji aftur þá sæld, sæld þeirra tíma. — Hér er annars ekkert verið að tala um það, hvort við viljum milliliðalaust þjóðfélag eða ekki. Það hefur aldrei verið til. Við viljum viðurkenna þá þróun, að milliliðastarfsemi er auðvitað nauðsynleg. Það er aðeins verið að tala um hitt: Á að marka milliliðunum sanngjarnan bás, á að hafa takmörk á því, sem þeir geta tekið af framleiðslustéttum þjóðfélagsins, og láta þá ekki sitja í fyrirrúmi fyrir framleiðslustéttunum sjálfum? Við viljum það, en ekki afnám allra milliliða, það væri fjarstæða, firra. Við viljum láta takmarka rétt milliliða til þess að maka krókinn, þannig að sjálf framleiðslustarfsemin sé örmagna og liggi við stöðvun á hverjum tíma, og við teljum það alveg ósæmilegt að láta framleiðslustarfsemina draga fram lífið af hörmungum styrkja og svokallaðs náðarbrauðs.

Ég fer ekkert í launkofa með það, að mér skilst, að það þurfi að vera lýðum ljóst, hvaða ágóðahluti rennur í vasa heildsala, — það hafði gleymzt einmitt að minnast á þá stétt í hinni merku ræðu hæstv. dómsmrh., eftir því sem Morgunblaðið sagði frá, sú stétt var aldrei nefnd þar, þegar gengið var á röðina að telja upp hina nauðsynlegu milliliði þjóðfélagsins. Ég tel alls ekki, að það sé hægt að vera án þeirrar stéttar, en hún þarf að vera eins mannfá og hægt er að komast af með, og hver heildsali á að fá eins lítinn gróða af sinni starfsemi og forsvaranlegt er að láta hann hafa fyrir þá þjónustu, sem hann innir af hendi. Ég veit ekki, hvað rennur í vasa þessarar stéttar sem gróði fyrir þá þjónustu, sem hún innir af hendi, en grunur minn er sá, að hann sé ekkert lítill.

Það liggja fyrir skýrslur um gróða bankanna, þeir annast þjónustu, útvegun fjármagns, leigu á fjármagni fyrir atvinnureksturinn. Mig minnir, að skýrslur hermi, að gróði bankanna á Íslandi hafi verið 50 millj. s. l. ár. Mér finnst, að hann gæti verið minni og hann ætti að vera minni á þann hátt, að það væru ákveðnir lægri vextir til sjávarútvegs og landbúnaðar, til undirstöðuatvinnuveganna, svo að það þyrfti minna að gefa þeim af ölmusum.

Mér sýnist, að það sé allblómlegur búskapur hjá olíufélögunum. Ég sé ekki annað en þau hafi leyfi til milljónatuga fjárfestingar á hverju ári, og ég gæti trúað því, að eitthvað ættu þau í lausum aurum líka. Mér finnst, að það mætti athuga það og rannsaka það, komast að réttri niðurstöðu um, hver gróði olíufélaganna er á hverju ári, og ef hann er umfram það, sem hóflegt verður að teljast, þá eigi það fyrst og fremst að renna til sjávarútvegsins og annarra undirstöðuatvinnuvega, sem þurfa á miklum brennsluolíum að halda í sambandi við rekstur sinn. Mér sýnist líka allt benda til þess, að tryggingafélögunum sé ekki svo þröngur stakkur skorinn, að þau leggi ekki til hliðar nokkrar milljónir, kannske nokkra milljónatugi á ári hverju, og það er þó tekið af framleiðsluatvinnuvegum þjóðarinnar.

Mér er ekki heldur grunlaust um, að eitthvað sé lagt til hliðar í milliliðastarfsemi í útflutningsframleiðslu þjóðarinnar.

Ég skal nú láta máli mínu lokið. Ég held, að þessi till. sé ekki að ófyrirsynju fram borin. Ég skal með gleði greiða henni atkvæði í trausti þess, að það verði ekki neitt hálfkák, sem þar verði framkvæmt, heldur starfsemi í þjónustu sannleikans. Þá er ég ánægður, og þá kvíði ég heldur ekkert niðurstöðunni. Ég vil minna á vísupartinn:

„Komdu og skoðaðu í kistuna mína,

í kössum og handröðum á ég þar nóg“

Ég er alveg viss um, að það eru til margir handraðar, sem hér þarf að skoða í, og ég vona bara, að þessi till., sem raunar hefði átt að heita: Komdu og skoðaðu í kistuna mína sé af hreinskilni, en ekki fláttskap fram borin.