27.03.1956
Sameinað þing: 51. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í D-deild Alþingistíðinda. (2412)

79. mál, milliliðagróði

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Þegar þessi till. var flutt upphaflega hér á þingi af nokkrum þingmönnum Sjálfstfl., var allmikið um hana rætt, og þeir fulltrúar Sjálfstfl., sem fyrir till. töluðu, notuðu allstór orð um, að þeir, sem mest hefðu talað um milliliðagróðann og þann gróða, sem hér væri tekinn af almenningi, mundu nú líklega ekki þora að láta ganga úr skugga um það, hve mikill þessi gróði væri. Þessi till. átti frá upphafi að vera eins konar ögrun frá Sjálfstæðisflokknum til annarra þingflokka um það, að nú skyldi verða sýnt, hvort önnur eins gróðamyndun ætti sér stað á Íslandi og fram hefði verið haldið af andstæðingum Sjálfstfl.

Við, sem þá hreyfðum strax brtt. við þessa till., ég og fleiri, sýndum fram á, að það mundi að öllum líkindum fara svo, að þingmönnum Sjálfstfl. mundi ekki verða það eins mikið áhugamál, þegar öll kurl kæmu til grafar, að láta fara fram nákvæma rannsókn á þessu og láta skera úr því fyllilega, hver gróðinn væri, sem hafður væri af almenningi á Íslandi með ýmsu móti. Og þegar endanleg till. kemur frá báðum stjórnarflokkunum, — þeir eiga víst að heita að lafa saman enn þá, — um, hvernig ráða skuli þessum málum til lykta, þá sýnist mér það allt bera þess merki, að þeir vilji draga úr rannsókninni eins og þeir frekast treysta sér til, þótt hins vegar þær till., sem fram hafa komið bæði frá mér og öðrum í þessu máli, hafi sýnt það, að stjórnarandstaðan hefur viljað fara ýtarlega út í þessa rannsókn. Þess vegna hefur nokkuð áunnizt frá hinni upphaflegu till. Sjálfstfl., en þó að mínu áliti ekki nægilegt til þess að tryggja, að út úr þessari rannsókn komi niðurstöður, sem ekki sé hægt að efast um, og niðurstöður, sem sýni fyllilega, hver gróðamyndunin sé í okkar þjóðfélagi. Og það er máske ekkert undarlegt, þó að þessir tveir stjórnarflokkar, þessir helmingaskiptaflokkar, séu ekki sérstaklega áhugasamir um að rannsaka gróðamyndunina í þjóðfélaginu, því að þeir virðast, þrátt fyrir ýmislegt, sem þá kann að greina á um, koma sér allvel saman um, að það skuli vera regla í þjóðfélaginu, að þeir tveir fyrst og fremst skipti milli sín megininu af þeim gróða, sem myndast, þeir tveir og þeirra fylgifiskar.

Ég held þess vegna, að það verði að reyna að ganga úr skugga um það nú við þessa síðari umr., í fyrsta lagi, hvað meiri hl. fjvn. meinar með sinni till., og í öðru lagi, hvernig stendur á því, að þeir hafa ekki getað samþykkt þá till., sem ég hafði gert og minni hluti fjvn. leggur til að sé samþykkt. Þeir hafa tekið eitt aðalatriði upp úr henni, og það er, að þetta sé rannsóknarnefnd þingsins. Þótt að vísu stjórnarskráin mæli fyrir, að þær skuli fyrst og fremst skipaðar af deildum þingsins, þá hefur Alþingi tvímælalaust hinn sama rétt.

En hvað er það þá, sem veldur því, að þeir geta ekki fallizt á mína till. eins og hún var? Við skulum athuga í fyrsta lagi upphafið á þeirra tillögu. Þar segja þeir, að þessi nefnd skuli rannsaka hvers konar milliliðastarfsemi í landinu í þeim tilgangi að fá úr því skorið, hve mikinn þátt sú starfsemi á í framleiðslu- og framfærslukostnaði landsmanna. Það, sem ég segi í minni till., er, að þessi nefnd skuli rannsaka til hlítar framleiðslukostnað og verðlagsmyndun í þjóðfélaginu með það fyrir augum, að úr því fáist skorið til fullnustu, hver sé þáttur annars kostnaðar en vinnulauna í þjóðarbúskapnum og einnig hve mikill hluti vinnulauna rennur í einni eða annarri mynd aftur sem gróði til milliliða. Sérstaklega skal unnið að því að komast að ótvíræðri niðurstöðu um, hve mikil gróðamyndun á sér stað hjá milliliðum á hinum ýmsu sviðum þjóðarbúskaparins, hvort sem sá gróði kemur af verzlun og atvinnurekstri eða af vaxtatöku, húsaleigu, lóðaleigu eða hver sem gróðauppsprettan önnur er. M. ö. o.: Í staðinn fyrir, að í till. meiri hl. er, eins og upphaflega var í till. Sjálfstfl., talað um milliliðastarfsemi almennt, án þess að nánar sé farið inn á þetta, þá er í minni till. tekið alveg greinilega fram að það skuli rannsaka alla verðlagsmyndun í þjóðfélaginu og þar með líka alla gróðamyndun, og það er alveg sérstaklega tekið fram, að það skuli ekki einskorða þetta við þann gróða, sem kemur af verzlun eða atvinnurekstri, heldur skuli líka tekið þarna fram um þann gróða, sem kemur af vaxtatöku, húsaleigu, lóðaleigu eða hver önnur sem gróðauppsprettan er.

Ég ræddi allýtarlega um það við fyrri umr. þessa máls, og mun ekki endurtaka það, hve óljóst þetta orð, „milliliðir“, er, og hvaða skilning alþýða manna leggur almennt í það. Í alþýðu munni er þetta orð raunverulega fyrst og fremst þeir, sem eru milliliðir í veizlum. Það er eins og almenningur skilur það. Orðið er mótað frá þeim tímum, þegar verzlunarauðvaldið var svo að segja eina auðvaldið hér á Íslandi, og tortryggnin gagnvart milliliðunum liggur þess vegna hér í landi alveg frá tímum dönsku einokunarinnar. Nú höfum við hins vegar fengið hér nútíma auðvaldsskipulag, þar sem fjarri fer því, að gróðauppsprettan sé einvörðungu hjá þeim, sem eru milliliðir í verzlun, heldur þvert á móti hjá fjölmennari stétt þjóðfélagsins, sem hefur tök ekki aðeins á atvinnurekstri, heldur líka nær til sín gróða í gegnum vaxtatöku, húsaleigu, lóðaleigu og ýmislegt annað slíkt. Það er þess vegna alveg óhjákvæmilegt, ef við ætlum að rannsaka sjálfa gróðamyndunina í þjóðfélaginu, rannsaka, hvað verður af þeim þjóðartekjum, sem skapaðar eru, og hvernig þær skiptast á milli vinnandi manna annars vegar og þeirra, sem hafa eignaaðstöðu eða slíka valdaaðstöðu, hins vegar, að þá verður að rannsaka þetta allt saman, annars stöndum við jafnnær. Og ég veit, að þegar kemur að því að eiga að fara að rannsaka þetta, ef till. verður samþykkt eins og hún er hjá meiri hl., og það stendur þarna almennt bara: milliliðastarfsemi, — þá verður ekki skírskotað í ræður, sem haldnar eru hér á Alþingi um, hvort einhverjir kunni þar með að eiga við t. d. gróða af vöxtum, þá verður ekki farið að rannsaka slíkt, þá verður látið nægja að halda sér við bókstaf samþykktarinnar og aðeins litið á það, sem verzlunina snertir.

Ég held þess vegna, að þarna verði alveg óhjákvæmilega að taka miklu fastari tökum á. Ég nefni þarna m. a. vaxtatökuna. Það hefur einn maður, áhugamaður í þessum málum, einn af embættismönnum ríkisins, nýlega birt grein, þar sem hann hefur nokkuð reynt að rannsaka þátt vaxtanna í íslenzkum þjóðarbúskap í verðlagsmyndun. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, að þáttur vaxtanna í verðlagsmyndun á Íslandi sé milli 25 og 40%, og það, sem þar náttúrlega kemur alveg sérstaklega til greina og gerir þennan þátt svona gífurlegan, er þáttur vaxtanna í húsaleigunni. Og ég er hræddur um, ef það ætti að rannsaka þessi mál til fulls, ef það reyndist rétt, að þáttur vaxtanna í verðlagsmyndun í íslenzkum þjóðarbúskap væri — við skulum segja a. m. k. ¼ hluti, að þá væri vissara að hafa þetta með skýrt og ótvírætt, þegar á að fara að rannsaka þessa hluti.

Ég er hræddur um, að það verði nokkuð lítið úr öllum þeim stóru orðum, sem notuð voru, þegar upphaflega var mælt fyrir þessari till. af hálfu Sjálfstfl., ef hann nú, þegar á að fara að samþykkja till., ætlar að leggjast á móti því og Framsfl. að hjálpa honum, að þessi till. sé þannig úr garði gerð, að þessi rannsókn fari raunverulega fram, að það sé alveg ótvírætt, hvað þarna skuli rannsaka. Á að taka þarna hluti með eins og vextina, eða á að sleppa þeim? Og ef á að taka þá með, af hverju eru þeir þá ekki nefndir í till. Framsfl. og Sjálfstfl.? Ég held, að það sé tími kominn fyrir þessa helmingaskiptaflokka að segja alveg til um þetta. Þora þeir að láta rannsaka þetta, eða þora þeir það ekki? Á eftir allt umtalið um þetta rannsóknin bara að verða til málamynda, eða á hún ekki að verða það? Það er hægt að arðræna einn verkamann á ýmsan mismunandi hátt. Það er m. a. hægt að hafa þá aðferð að borga honum hátt kaup, en taka svo af honum kaupið aftur með því, sem verður að greiða til auðmannastéttarinnar á annan hátt.

Ég segi hér í minni till., að það skuli rannsaka m. a. hve mikill hluti vinnulauna rennur í einni eða annarri mynd aftur sem gróði til milliliða. Ef verkamaður, sem hefur í kaup fyrir 8 tíma vinnu á dag allt árið upp undir 40 þús. kr., 3300 kr. á mánuði, verður síðan að borga í húsaleigu 24 þús. kr. af því og þessi húsaleiga rennur til auðmannastéttarinnar, sumpart sem gróði af vöxtum, sumpart sem gróði af byggingum, þá fer að verða nokkuð lítið úr því háa kaupi. Ég hef áður bent á það við umr. um þessi mál hér, hvernig það líti út frá sjónarmiði sjálfrar atvinnurekendastéttarinnar, ekki sízt þeirrar atvinnurekendastéttar, sem hefur með útflutninginn að gera, þegar arðræningjar hafa aðstöðu til þess að ná af kaupi verkamannsins í húsaleigu og í vöxtum og öllu mögulegu slíku svo og svo stórum hluta, hvernig þetta veltist síðan allt yfir á útflutningsatvinnuvegina að lokum og hvað það þýðir fyrir sjálfan atvinnureksturinn. Við höfum greinilega tekið eftir því hér í þinginu, þegar þessi mál hafa verið rædd og þegar þessir gífurlegu skattar hafa verið lagðir á almenning, eins og nú var seinast gert í vetur, að þá hafa þessir tveir stjórnarflokkar ekki kært sig um að ræða þessi mál um gróðamyndunina. Þeir hafa hliðrað sér hjá því. Þeir hafa drepið till. um að taka þennan gróða, þar sem hann hefur verið myndaður, og þeir hafa komið sér hjá því að láta fara fram nokkra rannsókn á þessu, og mér sýnist, að þeir ætli að gera það enn þá.

Ég er enn þá ekki farinn að heyra frá þeim skilgreininguna á öllu því, sem heyrir undir milliliðastarfsemi. Ég held þess vegna, að ef það er meiningin, að það eigi að ganga þannig frá þessu máli, að þessi rannsókn fari raunverulega fram, þá geti hún það ekki til fullnustu á annan hátt en að sjálf verðlagsmyndunin og sjálf gróðamyndunin í þjóðfélaginu í heild sé rannsökuð. Við þekkjum ósköp vel, hvernig rökin eru, sem venjulega koma hér fram um þessi mál. Það er venjulega aðeins ein einustu rök, sem fram koma frá hálfu þeirra flokka, sem nú leggja fram till., sem meiri hl. fjvn. flytur, og það eru þau rök, að kaupgjaldið í landinu sé allt of hátt og kaupgjaldið verði þess vegna að lækka. Það eru einu rökin, sem koma nokkurn tíma fram um nokkur efnahagsmál. Þó að það sé flett upp hér fyrir þá staðreyndunum um, hvernig verkamennirnir verða að nota sitt kaup, að jafnvel upp undir þriðjungur og helmingur af kaupi þeirra fari í húsaleigu, á sama tíma sem hún er í hæsta lagi 20% í nágrannalöndunum, þá er ekki tekið neitt tillit til slíkra raka. Því er bara haldið fram, að kaupgjaldið sé of hátt, útflutningsatvinnuvegirnir beri það ekki, en það er aldrei fallizt á hitt, að sá gróði, sem ýmsir aðilar í þjóðfélaginu taka, hvort sem þeir eru kallaðir milliliðir eða ekki, sé svo mikill, að hann sligi sjálfan atvinnureksturinn í landinu. Þó að það sé lagt á borðið, að bankarnir græði 60–70 millj. kr. á ári, þá er bara svarað: Ja, er ekki gott, að þeir græði, er ekki nauðsynlegt, að þeir græði? — Og þannig er haldið áfram. Þó að ríkið hafi afgangs 100 millj. kr. á ári í tekjum, þá er bara sagt: Ja, er ekki gott, að ríkisbúskapurinn beri sig, þó að hann sé ekki eins og sjávarútvegurinn? — Og svo eftir allt það brambolt, sem búið er að vera við þetta, þegar á að fara að rannsaka milliliðastarfsemina, þá á að afgreiða þetta þannig, að það sé ekki skýrt og greinilegt, hve mikið eigi að rannsaka.

Svo er eitt hér í minni till., sem ég held að sé ekki úr vegi að sé rannsakað líka, það er, hvaða menn og félög hafi fengið lán hjá bönkunum að upphæð 1 millj. kr. eða meira, svo að í ljós komi, hvaða aðilum ríkið fyrst og fremst veitir aðstöðu til gróðamyndunar. Ríkið er sá aðilinn í landinu, sem hefur mest áhrif um að skapa aðstöðu til gróðamyndunar, ekki aðeins á Keflavíkurflugvelli eða viðvíkjandi innflutningsverzlun eða viðvíkjandi útflutningsverzlun, ekki aðeins þar, sem þau venjulegu helmingaskipti stjórnarinnar koma til greina, heldur líka hvað snertir lánsútveganirnar úr bönkunum, a. m. k. hefur það verið svo til skamms tíma, hvort sem jafnvægið fer nú eitthvað að raskast á milli stjórnarflokkanna undir kosningarnar í þeim efnum. Þegar verið er að veita stór lán úr bönkum, milljónalán úr bönkum, veita fé þjóðarinnar þannig út til einstakra manna og einstakra félaga á tímum, þegar verðbólga er eins hröð og sú, sem nú hefur verið skipulögð af ríkisstj., þá eru alveg sérstök fríðindi að fá slík lán. Og það væri ekkert óeðlilegt, þó að það væri rannsakað, hvaða aðilar það væru, sem hefðu fengið lán, sem væru — við skulum segja 1 millj. kr. eða þar yfir. Ég sé, að hv. nefnd hefur ekkert kært sig um að taka þetta upp, og held ég þó satt að segja, að Alþfl. og Framsfl. hefðu ef til vill haft einhvern áhuga á því, að það væri rannsakað, hvers konar ráðstafanir væru gerðar í bönkunum, hefðu verið gerðar nú undanfarið og yrðu gerðar á næstunni. Einhvern tíma var það a. m. k. látið í veðri vaka.

Ég held þess vegna, að líka hvað þetta atriði snertir væri mín till. mun betri en till. meiri hl. í fjvn. Ég vildi þess vegna aðeins með þessum fáu orðum taka undir það, sem hv. 11. landsk. sagði hér áðan, og álít, að væri heppilegt, að hv. þm. gætu fallizt á að samþykkja brtt. á þskj. 167, ef það er meining þeirra, að þessi rannsókn, sem svo mikið hefur verið talað um, sé framkvæmd og framkvæmd þannig, að það sé ekki hægt að rífast um það á eftir, hvort það hafi verið sleppt aðalatriðunum í því eða ekki. Hins vegar fyrir þá, sem hafa komið sér saman um að halda helmingaskiptunum áfram og reyna þess vegna að fela sem bezt, hvernig menn hafi skipt gróðanum á milli sín undanfarið, er eðlileg~ að fallast á till. helmingaskiptaflokkanna. En það er þá gott, að þeir geri sér um leið ljóst, hvað þeir eru að gera.