27.03.1956
Sameinað þing: 51. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í D-deild Alþingistíðinda. (2445)
19. mál, varnarsamningur við Bandaríkin
Frsm. 2. minni hl. (Finnbogi R. Valdimarsson):
Herra forseti. Það er nú svo komið, að fyrir hv. Alþingi liggja till. frá fjórum flokkum, sem allar fela í sér að meginefni yfirlýsingu um, að hinn ameríski her, sem settur var á land á Íslandi í maí 1951, skuli hverfa héðan úr landi. Að þessum till. standa þingmenn, sem munu vera um 3/5 hlutar þingmanna allra. Það er hins vegar ekki að undra, að í slíku stórmáli, þar sem svo margar till. liggja fyrir, greini menn nokkuð á um einhver atriði, þótt það sé nú staðreynd, að í þessu stórmáli felst í öllum þeim till., sem fram eru komnar, nema till. Sjálfstfl., sá vilji, sú meginhugsun, að hinn erlendi her hverfi úr landi. En það er mín skoðun, að þegar svo ber við, að margar till. fela í sér sömu meginhugsun, þá varði það mestu, að það gangi fram, sem sameiginlegt er, fremur en hitt, að menn leiti að því, sem menn kann að greina á um í einstökum atriðum.
Ég hef margoft lýst því yfir, að ég tel það æskilegt og raunar lífsnauðsyn lítilli þjóð eins og Íslendingum, að þeir geti sameinazt um utanríkisstefnu. Það var svo lengi, að öll íslenzka þjóðin var sameinuð í sjálfstæðismálum sínum, og það var jafnvel svo, eftir að það kom til, að erlendur her tæki sér setu á Íslandi, að öll þjóðin var sammála um, að það væri neyðarástand, sem hún vildi ekki sætta sig við. nema ef til vill á styrjaldartímum. Ég er ekki í neinum vafa um það, að mikill meiri hl. íslenzku þjóðarinnar óskar nú eftir því, að hinn erlendi her hverfi úr landinu, og telur fulla ástæðu til, að það verði sem allra fyrst. Það er nú svo, að ýmsir flokkar, stjórnmálaflokkar og stjórnmálamenn, verða stundum fyrir kosningar næmari á það en ella, hvernig þjóð þeirra finnur til og hvernig hún hugsar, og það kann að vera, að það sé einmitt vegna þess, að nú eru kosningar fyrir dyrum, að nú er það komið fram, að yfirgnæfandi meiri hl. þess Alþingis, sem nú situr, er kominn á þá skoðun, að hinn erlendi her eigi að hverfa úr landinu sem fyrst. En ég vil fagna því, hvaðan sem það kemur og af hvaða ástæðum sem það kann að vera, að menn hafa komizt á þessa skoðun og leggja hana nú fram hér á hv. Alþingi. Það, sem nú liggur fyrir, er það, að Alþingi láti í ljós vilja sinn um það, hvað gerist í þessu efni.
Í utanríkismálanefnd hefur komið í ljós, að menn hafa ekki getað orðið sammála um till. um þetta mál, eins og það liggur nú fyrir. En það var ekki fyrr en í kvöld, að það kom í ljós, að Sjálfstfl. væri því algerlega andvígur, að Alþingi léti nú í ljós nokkurn vilja sinn í þessu efni, ef ég skil rétt þá till. til rökstuddrar dagskrár, sem fulltrúar Sjálfstfl. í utanrmn. hafa lagt fram.
Hv. frsm. þess hluta utanrmn., sem stendur að hinni rökstuddu dagskrá um að vísa þessu máli frá, lét svo ummælt, að allir mundu óska þess, að hinn erlendi her gæti farið frá Íslandi. Ég vil ekki væna hann eða aðra um það, að þetta sé ekki af heilindum mælt, en ég get ekki skilið þá till., sem hér er borin fram um að víkja þessu máli algerlega frá ákvörðun Alþingis nú, á annan veg en þann, að Sjálfstfl. sé ekki tilbúinn til að óska þess, að hinn erlendi her fari frá Íslandi nú eða enn um nokkra hríð. Það virðist liggja í þeim skoðunum, sem hafa verið settar fram í utanrmn. og af hv. frsm. Sjálfstfl. í þessu máli, að Sjálfstfl. telji, að öryggi Íslands sé ekki tryggt með neinum hætti betur en þeim, að erlendur her sé hér í landinu, og þá leiðir af því, að Sjálfstfl. óskar þess, að erlendur her haldi áfram að vera hér á landi. Ýmsar æskulýðsdeildir þess flokks hafa þó gert samþykktir um, að það sé tímabært, að hinn erlendi her víki nú úr landinu.
Ég skal ekki að svo stöddu fara út í þær umr., sem hv. frsm. 3. minni hl. utanrmn. fór út í og beindi til hæstv. utanrrh. Hæstv. utanrrh. svaraði á fundi utanrmn. í dag ýmsum spurningum, sem fulltrúar Sjálfstfl. lögðu fyrir hann um heimsstjórnmál og hernaðartækni. Mér virtist hæstv. utanrrh. gera það fullsómasamlega á ýmsan hátt, en þær spurningar margar fullkomlega ástæðulausar í sambandi við þetta mál.
Því verður ekki móti mælt af neinum, að það er almenn skoðun í heiminum, hinna valdamestu stjórnmálamanna, sem tala fyrir þær þjóðir, sem í Atlantshafsbandalaginu eru, að frá þeirra sjónarmiði hafi orðið stórkostleg breyting á ástandinu í heimsstjórnmálum á síðustu árum, og eins og hv. þm. Str. sagði, hafa margir hinir mestu valdamenn þjóðanna látið svo ummælt, að engin ástæða sé til að óttast heimsstyrjöld að svo stöddu. Nú voru það höfuðrök þeirra, sem samþykktu varnarsamninginn 1951, að heimsstyrjöld gæti þá skollið á hvenær sem væri, það voru forsendur þess samnings af þeirra hálfu. Ég og margir aðrir töldum, að þær forsendur væru ekki réttar, það væri þá ekki ástæða til þess að óttast, að heimsstyrjöld væri að skella á, og mín skoðun í því efni hefur ekki breytzt neitt síðan. Ég trúi því ekki, að því verði nokkurn tíma slegið föstu, að heimsstyrjöld hafi verið að skella á eða legið við, að heimsstyrjöld skylli á í maí 1951.
Af hálfu hv. 1. minni hl. er það í till. sjálfri, sem sá minni hl. utanrmn. stendur að, beinlínis fært fram sem rök fyrir endurskoðun hervarnarsamningsins frá 1951, að viðhorf séu breytt síðan hann var gerður. Það er vafalaust, að viðhorf þeirra manna margra, sem samþykktu samninginn þá, hafa breytzt. Það er ómótmælanlegt, að ástand í heimsmálum er á allan hátt öruggara en þá var, eins og ég hef drepið á. Þetta eru þó ekki frá mínu sjónarmiði höfuðrök fyrir því að taka samninginn frá 1951 til endurskoðunar nú eða segja honum upp. Ég hef aldrei viðurkennt þær forsendur, sem ég nú hef drepið á, fyrir samningnum frá 1951, en ég álít, að það sé nægilegt að vísa til þeirra yfirlýsinga, sem gefnar voru, bæði þegar Ísland gerðist aðili að Atlantshafsbandalaginu 1949, þess efnis, að engin þörf væri talin af hálfu Atlantshafsbandalagsins sjálfs og hinna æðstu forustumanna þess á því, að á Íslandi yrði her af hálfu bandalagsins, og hins, að þegar varnarsamningurinn var gerður 1951, var það af formælendum hans meginforsenda, að þá lægi við heimsstyrjöld.
Ég álít, að það sé nóg að vísa til hvors tveggja þessa sem forsendna fyrir samningnum frá 1951, til þess að það sé augljóst, að þær forsendur eru ekki fyrir hendi nú, og því jafnvel frá sjónarmiði Atlantshafsbandalagsins sjálfs full ástæða til þess að taka hann til endurskoðunar. Þegar Atlantshafsbandalagið var stofnað, var því lýst yfir, að það væri engin nauðsyn talin á því, að her væri hafður á Íslandi af þess hálfu. Og þó að það kunni að finnast einhverjir herforingjar Atlantshafsbandalagsins nú, sem kynnu að óska þess að hafa her hér, þá er vitanlegt, að herforingjar óska eftir því yfirleitt að hafa sem mestum her á að skipa og gera miklu meiri kröfur til þess til sinna eigin þjóða en þeir fá uppfylltar. Það má benda til þess, að Bretar hafa nýlega stórlega fækkað í sínum her. Það er talið óhætt. Það má benda til þess, að það herlið, sem er á Íslandi, getur ekki her talizt frá sjónarmiði Atlantshafsbandalagsins, miðað við aðra heri þess.
Ég hygg, að sjónarmið Atlantshafsbandalagsins hafi aldrei verið það, að fyrir það væri öryggi í því að hafa her á Íslandi, heldur að hafa herstöðvar þar, sem væru tiltækar, ef til ófriðar kæmi. Ég hygg því, að það sé alveg út í hött hjá hv. fulltrúum Sjálfstfl. að leggja spurningar fyrir hæstv. utanrrh. á þá leið, hvort öryggi Atlantshafsbandalagsins geti verið komið undir þeim herafla, sem hér sé á Keflavíkurflugvelli. Ég held, að öryggi Atlantshafsbandalagsins frá hernaðarlegu sjónarmiði og þeirra þjóða, sem að því standa, geti alls ekki verið komið undir tveimur, þremur eða fjórum þúsundum hermanna, — ég veit ekki, hve margir þeir eru, — sem kunna að vera hér á Keflavíkurflugvelli. Og ég held, að það muni engum takast að færa nein rök fyrir því, að Atlantshafsbandalaginu sem hernaðarbandalagi sé stefnt í neinn voða, þó að þessi herafli sé ekki hér á Íslandi.
Það eru nú á þessu ári liðin 15 ár síðan Bandaríkjaher var fyrst settur á land á Íslandi. Það var gert með samningum við íslenzku þjóðina og með hátíðlegum loforðum um, að sá her yrði fluttur burt þegar að styrjöldinni lokinni. Það loforð var gefið af þeim manni, sem íslenzka þjóðin yfirleitt mun hafa viljað treysta og talið ástæðu til að mega treysta. En fjórum árum síðar kom í ljós, að annar maður, sem hafði tekið við forustu bandarísku þjóðarinnar, æðsta embætti hennar, og ráðgjafar hans vildu ekki standa við það loforð, sem íslenzku þjóðinni hafði verið gefið um, að hinn ameríski her hyrfi héðan úr landi að heimsstyrjöldinni lokinni. Þvert á móti voru á árinu 1945 borin fram tilmæli af hálfu Bandaríkjanna um að fá hér herstöðvar á Íslandi til langs tíma. Þá var engin yfirvofandi ófriðarhætta talin í heiminum af neinum, enda var það svo, að þá reis nálega öll íslenzka þjóðin upp til mótmæla gegn því, að forustumenn hennar yrðu við þessum tilmælum. Enginn, sem átti nokkuð undir dómi þjóðarinnar þá, treysti sér til þess að verða við kröfum Bandaríkjanna um herstöðvar til langs tíma hér á landi. Þeir voru margir, sem lýstu því þá yfir, að slíkt mætti aldrei ske. En einu ári síðar var gerður samningur við Bandaríkin, sem tryggði þeim herstöð, flugstöð, hér á landi. Það var gert með Keflavíkursamningnum 1946. En jafnvel þá var langt frá því, að Alþingi væri einhuga um þá ráðstöfun. Nálega allir flokkar voru klofnir um það mál, og þeir eru margir, sem enn eiga sæti hér á hv. Alþingi, sem börðust gegn þeirri samningsgerð. Árið 1949 var svo aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu samþykkt. Þá var því lýst yfir enn, að þetta þýddi ekki neinar herstöðvar á Íslandi handa Atlantshafsbandalaginu eða handa Bandaríkjunum, og hefur hv. þm. Str. réttilega minnt rækilega á þær yfirlýsingar, sem þá voru gefnar um þetta atriði. Þá var það ekki talin nein nauðsyn fyrir Atlantshafsbandalagið sjálft, frá hernaðarlegu sjónarmiði þess, að hér væri her eða herstöðvar.
En í vor í maí verða liðin fimm ár síðan Bandaríkjaher tók sér stöðvar hér á Íslandi, og þá með samþykki mikils meiri hluta Alþingis. Við, sem þá töldum þetta brot á þeim loforðum, sem íslenzku þjóðinni voru gefin, þegar Atlantshafssamningurinn var samþykktur, fengum kaldar kveðjur og höfum jafnan fengið þær síðan frá þeim mönnum, sem stóðu að þessari ráðstöfun og vildu halda því fram, að allt öryggi íslenzku þjóðarinnar væri undir því komið, að amerískur her dveldist hér á landi. Ég veit, að margir og jafnvel flestir af þeim, sem samþykktu það, að herinn kæmi þá, eiga sér mikla afsökun. Þeir samþykktu þetta í góðri trú. Þeir héldu, að heimsstyrjöld væri að skella á og þá kæmi hvort sem væri her hingað til landsins. Heimsstyrjöldin hefur ekki komið, sem betur fer. Og nú sjá þessir sömu menn og vita af yfirlýsingum æðstu manna stórveldanna, að það er engin ástæða til þess að ætla, að heimsstyrjöld sé nú nálægt því að skella á. Ég verð því að virða það við þá menn, sem nú vilja viðurkenna þá staðreynd, að frá þeirra sjónarmiði sé nú breytt viðhorf. Ég vil virða menn, sem þora að viðurkenna staðreyndir. Og þeir menn, sem samþykktu hernámssamninginn 1951, en nú leggja til, að hann verði tekinn til endurskoðunar og uppsagnar, ef ekki fæst frá þeirra sjónarmiði viðunandi lausn á þeim málum, sú lausn, að herinn hverfi héðan, — þeir eru meiri menn í mínum augum, eftir að þeir hafa nú borið fram þá till., sem nú er komin fram frá hv. framsóknarmönnum og Alþýðuflokksmönnum um endurskoðun samningsins á þeim grundvelli, að hann verði ekki endurnýjaður með þeim hætti, að hinn ameríski her verði áfram hér í landi, því að ég skil svo þá till., sem nú liggur fyrir frá 1. minni hl. utanrmn., að það sé forsenda fyrir ósk þeirra um endurskoðun samningsins, að hinn erlendi her hverfi héðan af landinu, að þeir, sem að þeirri till. standa, muni ekki taka í mál að endurnýja samning við Bandaríkin, sem geri ráð fyrir hersetu hér áfram.
Ég hef, þrátt fyrir það að ég telji, að þetta sjónarmið komi skýrt fram í till. á þskj. 623, ekki getað fylgt þeim hv. þm., sem að þeirri till. standa, hv. þm. Str. og fleirum, um þá till. Í 1. mgr. till. er lagt til, að Alþ. samþykki allsherjaryfirlýsingu um stefnu í utanríkismálum, og segir þar, að sú stefna skuli hér eftir sem hingað til vera við það miðuð að tryggja sjálfstæði og öryggi landsins, að höfð sé vinsamleg sambúð við allar þjóðir og að Íslendingar eigi samstöðu um öryggismál við nágrannaþjóðir sínar, m. a. með samstarfi í Atlantshafsbandalaginu. Það er vegna þess fyrst og fremst, að ég get ekki fallizt á þessa málsgrein svo orðaða, að ég hef ekki getað fylgt hv. tillögumönnum um þessa till. Ég hef verið andvígur þeirri utanríkisstefnu, sem hefur verið rekin af hálfu hæstv. ríkisstj. með stuðningi núverandi stjórnarflokka, frá því að ég tók setu hér á hv. Alþingi. Ég get því ekki lýst yfir fylgi við þá utanríkisstefnu. Ég get ekki samþykkt það, að með þeirri utanríkisstefnu hafi sjálfstæði og öryggi Íslands bezt verið tryggt Ég átti ekki sæti hér á hv. Alþ., þegar aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu var samþykkt, en ég var andvígur því, að Ísland yrði gert þátttakandi í því hernaðarbandalagi. En ég viðurkenni hins vegar, að um aðild Íslands að Atlantshafsbandalagi gilda gerðir samningar. Ísland er bundið samningi um aðild að þessu hernaðarbandalagi, a. m. k. til ársins 1959, en þá á að taka sáttmála bandalagsins til endurskoðunar. Það eru aðeins þrjú ár þangað til sú endurskoðun á að fara fram. Ég tel fulla ástæðu til þess að endurskoða það, hvort Ísland eigi áfram að vera aðili að því bandalagi. Ég get ekki séð neina nauðsyn þess og get því ekki lýst yfir, að ég telji sjálfsagt, að Ísland haldi áfram samstarfi í Atlantshafsbandalaginu, þó að ég hins vegar treysti mér ekki til, eins og ég veit að samningar eru um aðild Íslands að því bandalagi, að mótmæla því, að landið er bundið a. m. k. þrjú ár enn, og er því nærri því ástæðulaust að flytja um það tillögur hér, þó að menn kysu helzt, eins og ég geri, að Ísland yrði ekki lengur aðili að þessu hernaðarbandalagi.
Það er bæði vegna þess, að ég tel þá yfirlýsingu um utanríkisstefnu, sem felst í 1. mgr. till. á þskj. 623, með öllu óþarfa í sambandi við afgreiðslu þessa máls, og vegna þess, að ég get ekki fallizt á, eins og ég nú hef lýst, það, sem þar segir, eins og það er orðað, að ég hef ekki fylgt hv. 1. minni hl. utanrmn. En ég hef einnig talið ástæðu til, að í samþykkt, sem Alþingi gerði nú um þetta mál eins og það liggur fyrir, þyrfti að taka fleira fram, enn skýrar en gert er í till. hv. 1. minni hl.
Í þeim till., sem nú hafa legið fyrir utanrmn., hafa verið tillöguliðir, sem hafa fjallað um það, hvað skuli gera, hvernig skuli halda á málum, frá því að endurskoðunar á samningnum frá 1951 er óskað og þangað til að þeirri endurskoðun lokinni eða þangað til kæmi til uppsagnar samningsins, ef svo færi. Þessu er alveg sleppt í till. hv. 1. minni hl. Ég tel fulla ástæðu til þess, að í till., sem Alþ. samþykkti nú um þetta mál, væri vikið að því, hvernig skuli halda á málum, þangað til herinn fer úr landi fyrir endurskoðun eða uppsögn samningsins.
Það er kunnugt, að samkvæmt samningnum frá 1951 hafa verið gerðir ýmsir samningar um mannvirki hernaðarlegs eðlis hér á landi og það fram á alveg síðustu tíma. Alveg nýlega var lýst einum slíkum samningi um stórfellt mannvirki, sem enn væri ógert. Ég tel ástæðu til, að eftir að Alþingi Íslendinga lýsti því yfir, að það óskaði, að herinn færi úr landi, væri því einnig slegið föstu, að ekki skyldi gera framar slíka samninga, meðan samningurinn frá 1951 væri í endurskoðun eða þangað til honum yrði sagt upp.
Ég hygg, að ef menn eru komnir á þá skoðun, að herinn geti að ósekju vegna öryggis þessa lands horfið héðan, þá ætti ekki að vera mikil ástæða til þess, að íslenzkir þegnar ynnu enn lengi að mannvirkjum í þágu þessa hers. Það hefur nú verið unnið að þeim mannvirkjum í fimm ár, og hafa vitanlega verið gerð ýmis stórvirki. En það hefur haft þær afleiðingar, að þessar framkvæmdir hafa dregið til sín vinnuafl frá atvinnuvegum og öðrum framkvæmdum, sem Íslendingar sjálfir hafa með höndum, til stórskaða fyrir atvinnuvegi landsmanna og ýmsar framkvæmdir. Þetta er viðurkennd staðreynd, og þýðir ekki að mæla á móti henni.
Þá hefur einnig verið samþykkt hér á hv. Alþ. að gera ýmsar ráðstafanir til þess að draga úr ónauðsynlegum samskiptum hersins og Íslendinga, og í tíð núverandi hæstv. utanrrh. hefur verið starfað að því af hans hálfu að tryggja á einhvern hátt betur, að þessi óæskilegu samskipti, þessi samskipti sem allir viðurkenna að séu óæskileg, minnkuðu. Það má víst um það deila, hversu það hefur tekizt, en ef það væri ráðið að vilja meiri hluta Alþ., að herinn ætti að hverfa úr landi á næstu missirum, þá mætti ætla, að menn óskuðu ekki, að þessi skipti við Íslendinga yrðu meiri en þau hafa verið til þessa. Ég tel því rétt, af því að mönnum er kunnugt um, að þau óæskilegu samskipti eru allmikil enn, að það komi fram í till., sem kveður svo á, að herinn skuli hverfa með öllu frá Íslandi, að hert verði á þeim ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið í þessu efni.
Í 7. gr. samningsins frá 1951 eru allnákvæm ákvæði um það, með hvaða hætti endurskoðun eða uppsögn samningsins geti farið fram. Það ber að tilkynna stjórn Bandaríkjanna og ráði Norður-Atlantshafsbandalagsins, ef annar hvor aðili telur ástæðu til, að sú endurskoðun fari fram, og það er um það að ræða fyrst og fremst, hvort menn telja ástæðu til þess nú, eins og öllum málum er háttað. En það getur verið um það að ræða einnig og er um það að ræða hér, hvort menn óska áframhaldandi ástands eða gerbreytts ástands í þessum efnum. Það getur ekki verið um annað að ræða en það fyrir Alþ. og raunar hinn samningsaðilann líka, hvort her eigi að vera hér í landi eða ekki, því að hitt atriðið, um þær stöðvar og mannvirki, sem hér hafa verið sett upp, er svo kveðið á í samningnum, því miður, að þær skuli vera áfram, þótt herinn hverfi úr landi, og það sé aðeins um það að gera, hvort Íslendingar annist nauðsynlegt viðhald þessara mannvirkja og útbúnaðar, eins og segir orðrétt í samningnum, eða hvort Íslendingar vilji fela Bandaríkjamönnum að annast þetta. Þetta er í samningnum lagt á vald Íslendinga að kveða á um.
Ég tel, að það geti ekki verið áhorfsmál, að Íslendingar, um leið og þeir láta í ljós vilja sinn um, að herinn sjálfur hverfi úr landi, láti einnig í ljós skoðun sína á þessu atriði, að þeir sjálfir annist þetta nauðsynlega viðhald, en fell ekki erlendu stórveldi að gera það hér. Ég hef því talið rétt að taka það í till. mína, að Alþingi lýsi yfir því, að Íslendingar muni kjósa sér að sjá um þetta nauðsynlega viðhald þessara mannvirkja. Það geta verið skiptar skoðanir um það, hve æskilegt það sé, að þessi mannvirki og útbúnaður sé hér á landi, þótt herinn hverfi, en um það verður ekki deilt, að þar er Ísland bundið með ákvæðum samningsins um að annast þetta viðhald.
Í till. hv. 1. minni hl. er það skýrt látið í ljós, að herinn skuli hverfa úr landi. Þar segir, að stefnt skuli að því, að endurskoðun samningsins fari fram með það fyrir augum, að herinn hverfi úr landi. En það er ekkert sagt um það, hvenær Alþ. óski að það gerist. Samkv. ákvæðum samningsins getur það tekið 18 mánuði, þótt það væri eindreginn vilji annars samningsaðilans, t. d. Íslands, að svo yrði. Ég tel alveg ástæðulaust að gera ráð fyrir því, um leið og því er slegið föstu, að Íslendingar óski, að þessi her hverfi úr landi, að það þurfi að taka 18 mánuði að flytja hann úr landi. Ég tel rétt, að Alþ. láti einnig í ljós vilja sinn um það, hvenær herinn fari úr landi. Hér er, að því er menn bezt vita, aðeins um örfáar þúsundir hermanna að ræða. Fyrir skömmu var gerður samningur milll annars stórveldis, Bretlands, annars vegar og tiltölulega lítillar þjóðar, Egypta, hins vegar um það, að stórkostlegur her, sem Bretar höfðu í Egyptalandi, a. m. k. 80 þús. manna, hyrfi þaðan úr landi. Það átti að gerast á nokkrum mánuðum og hefur nú verið gert samkv. þeim samningi. Ég tel, að það mætti vafalaust flytja þennan her úr landi á örfáum vikum, ef ekki nokkrum dögum. Og ef menn eru á þeirri skoðun, að hans sé engin þörf, nema síður sé, hér á landi, þá mætti ætla, að menn gætu sameinazt um, að ef til þess væri gefinn nokkurra mánaða frestur, þá væri það allrúmt fyrir hinn samningsaðilann. En það má líta á það, að í samningnum sjálfum eru ætlaðir til þessa í mesta lagi 18 mánuðir, með því að sá samningsaðilinn, sem óskaði breytinga, segði upp samningnum, en ekki yrði gert um það nýtt samkomulag. Ég hef lagt til, með tilliti til þess, að það mætti ætla, að það yrði engin töf á að tilkynna Bandaríkjunum vilja Íslendinga um endurskoðun á samningnum á þeim grundvelli, að herinn fari úr landi, þá væri engan veginn ósanngjarnt að ætlast til þess, að hann yrði farinn úr landi innan eins árs. Ég hef því sett hiklaust í mína till., að herinn skuli vera farinn úr landi fyrir 5. maí 1957. Ef þessi till. yrði nú samþ. á Alþ. og yrði þegar tilkynntur hinum aðilanum sá vilji Íslendinga, að herinn hyrfi úr landi innan þessa tíma, sem í tillögunni segir, fyrir 5. maí 1957, þá væri meira en ár til stefnu. Ég hygg því, að enginn geti haldið því fram, að þetta sé ósanngjarnt eða móðgandi í garð hins samningsaðilans, en ég tel, að það sé full ástæða til, að þetta komi fram, því að ég efast ekki um, að eins og það sé vilji íslenzku þjóðarinnar nú, að herinn hverfi úr landi, þá sé það einnig vilji hennar, að hann hverfi sem fyrst.
Ég hef nú rakið í einstökum atriðum þá till., sem ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 641 um afgreiðslu á þeirri till., sem utanrmn. tók til afgreiðslu, þótt fyrir n. lægju að vísu tvær þáltill. um þetta sama efni. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum en ég hef þegar gert um þá till. Sjálfstfl. að víkja þessu máli frá afgreiðslu á núverandi Alþingi, sem mér virðist þá fela í sér, að sá flokkur, sem kennir sig við sjálfstæði þjóðarinnar, sé á móti því, að Alþingi láti í ljós þann vilja sinn, að hin erlenda herseta hætti.
Ég er þess fullviss, að það er engin hætta í því fólgin fyrir íslenzku þjóðina og öryggi hennar, að þessi her hverfi frá Íslandi, heldur þvert á móti. Það er falin hætta í því, að hann dveljist hér á landi, en það mál er svo margrætt, að ég vil ekki fara út í það hér. En það vil ég láta í ljós að síðustu, að ég er þess líka fullviss, að vinátta og góð sambúð íslenzku þjóðarinnar og bandarísku þjóðarinnar mun vera betur tryggð, ef þessi her hverfur úr landi og það sem fyrst.