27.03.1956
Sameinað þing: 50. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í D-deild Alþingistíðinda. (2454)

196. mál, smíði varðskips

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Í grg. þessarar till. er ýtarlega tekið fram um ástæðurnar, sem til hennar liggja.

Ég hygg, að ekki verði um það deilt, að í landhelgisgæzlunni hafi orðið veruleg framför á seinni árum, vegna þess, að skipum sé bæði betur haldið til gæzlunnar og með meiri yfirsýn en áður var, þannig að þau skip, sem til eru, notist mun betur en áður varð raun á, en einkanlega hefur tilkoma fluggæzlu haft mjög mikla þýðingu. Búið er að gera um nokkurra ára bil tilraunir um landhelgisgæzlu úr lofti, og hefur þegar fengizt veruleg reynsla í þeim efnum. Sumpart hafa komið fram ágallar, sem hafa leitt til þess, að sýknað hefur verið af ákæru, af því að sönnun sú, sem lögð var fram af hálfu fluggæzlumanna, reyndist ekki fullnægjandi, og eins hafa aðrir gallar komið í ljós. Leitazt hefur verið við að bæta úr þessu, m. a. með það fyrir augum að fá nógu stóra flugvél, þannig að hægt væri að koma að samtímis athugun nógu margra manna, svo að um fullkomna sönnun yrði talið að ræða. Var í það ráðizt að kaupa allstóra og öfluga flugvél, sem komin var í eigu flugstjórnarinnar, en með samþykki fjvn. og þar með meiri hl. Alþingis voru þau kaup ráðin snemma á þessum vetri. Enginn efi er á því, að þegar starfræksla flugvélarinnar er komin í fullkomið lag, mun það hafa úrslitaþýðingu til þess að gera landhelgisgæzluna tryggari en verið hefur. Það er raunar komið í ljós nú þegar, að togararnir óttast ekkert eins og flugvélar og streyma jafnvel frá landhelgislínunni, þó að þeir séu staddir fyrir utan hana, ef þeir verða flugvélar varir. Eins er með flugvél hægt á skömmum tíma að átta sig á því, hvar helzt er hætta á ágangi hverju sinni, og þá hægt að vera þar bæði til gæzlu með flugvélinni og eins að stefna skipunum á þær stöðvar.

Vitanlega verður gæzlan um sumt erfiðari en áður var, eftir að allstór hafsvæði eru tekin undir landhelgina, sem áður voru opin öllum til fiskveiða. Að sumu leyti má segja, að gæzlan hafi orðið auðveldari við það, að firðir og flóar eru nú að öllu lokaðir, en að öðru leyti verður erfiðara að kveða á um mörkin, og sums staðar eru hafsvæðin svo stór, að nokkur vandkvæði eru á gæzlunni. Um þetta hefur flugvélin mjög bætt úr. Skal ég ekki rekja það frekar. En þessi tilraun hefur þegar sannað, að hún ber mjög góðan árangur, og það er að vissu leyti ánægjulegt fyrir okkur Íslendinga, að leitað hefur verið upplýsinga hér á landi frá gömlum og miklum þjóðlöndum um það, hvernig okkur hafi tekizt gæzlan úr flugvél, þannig að við erum beint forgangsland um landhelgisgæzlu með þessu móti, enda er ljóst, að t. d. atburður eins og taka togarans nú fyrir skömmu, þegar hann var knúður til að fara í höfn eingöngu fyrir atbeina flugvélar, án þess að gæzluskip kæmu til, er mjög sérstæður viðburður og að því er ég hygg nánast alger nýjung í þessum efnum, ekki aðeins hér, heldur einnig annars staðar. En það er ekki aðeins sá viðburður, sem er merkilegur, heldur einnig samstarfið, sem orðið hefur á milli flugvélar og gæzluskipa, að þegar flugvél hefur komið á vettvang og séð skip, sem er tortryggilega eða örugglega nærri landi, þá hefur hvað eftir annað verið hægt að hafa samband við varðskip, sem síðan hefur komið, og flugvélin getað haldizt yfir veiðiþjófnum, þangað til varðskipið gat tekið þann, sem brotlegur var, og stundum þurft að elta hann langt út á haf. Ekkert af þessu hefði verið mögulegt án góðrar yfirstjórnar og mikillar og náinnar samvinnu fluggæzlunnar og sjálfrar varðskipagæzlunnar.

En því meira sem á þetta hefur reynt, því betur hefur komið í ljós, að við erum illa staddir að því leyti, að segja má, að einungis eitt af varðskipum okkar sé nú nægilega hraðskreitt til þess, að það geti náð í nýtízku togara. Vandinn í þeim efnum er orðinn enn meiri en áður var, m. a. vegna þess, að nýtízku skip hafa öll radartæki og eiga þess vegna mun hægara með en áður var að átta sig á skipakomum í allmikilli fjarlægð, en Þór er eina varðskipið, sem getur elt uppi nýtízku togara. Ég hygg, að flest eða öll hinna skipanna hafi orðið fyrir því, að þau hafi misst af togúrum, stundum fleirum en einum, sem nokkuð öruggt var, að hefðu gert sig seka um landhelgisbrot. Með þessu er engan veginn sagt, að öll skipin þurfi að vera svo hraðskreið, að þau geti elt upp togara. Skipin geta komið að miklu gagni og verið alveg nauðsynleg, jafnvel þó að þau dugi ekki í slíka kappsiglingu. En öruggt er, að við þurfum á að halda meira en einu hraðskreiðu og öruggu skipi, þótt ekki væri vegna annars en þess, að eitt skip getur ætíð verið í lamasessi lengri eða skemmri tíma, og er raunar óhjákvæmilegt öðru hverju, að það þurfi að leggjast upp til eftirlits, hreinsunar og viðgerða. Hér við bætist svo, að varðskipið Ægir er nú í vaxandi mæli tekið í þjónustu fiskirannsókna, og er það sízt að ófyrirsynju, vegna þess að t. d. á s. l. sumri kom berlega í ljós, að Ægir vísaði hvað eftir annað síldarskipum á síldartorfur, sem þau ella hefðu ekki fundið, þannig að af fiskirannsóknunum hefur að því leyti fengizt skjótari árangur og auðfengnari en menn fyrir fram, jafnvel þeir bjartsýnustu, hefðu þorað að vona.

Af öllum þessum ástæðum og fleiri, sem greindar eru í bréfi forstjóra landhelgisgæzlunnar, sem prentað er sem fskj., hefur átt sér stað mjög rækileg athugun þess, hvort hægt mundi vera að fá e. t. v. með góðum eða viðráðanlegum kjörum hjá einhverjum vinveittum þjóðum varðskip eða gæzluskip, sem væri hraðskreitt og mundi henta hér. Þær athuganir hafa leitt til þess, að slík lausn málsins mundi ekki vera okkur hagkvæm. Ýmist er um að ræða skip, sem ekki mundu duga hér nema tiltölulega skamman tíma ársins vegna veðurlags, eða þá svo stór skip og mannfrek, að þau yrðu okkur ofviða í rekstri. Það er þess vegna álit hinna fróðustu manna, að ekki sé um aðra hagkvæma lausn að ræða en að við beitum okkur fyrir, að smíðað verði sérstakt skip, miðað við íslenzka staðhætti.

Það er ljóst, að nú þegar höfum við ekki nægilegt fé til þeirra ráðstafana, og eru þó nokkrar milljónir — mér skilst einar 4 milljónir — til í landhelgissjóði, eins og sakir standa, en kostnaður af skipasmíði mundi verða mun meiri. En þá þarf að afla fjárins. Nokkuð kemur inn smám saman með landhelgissektum, en sjálfsagt verður einnig að leggja fé á fjárlögum til hliðar í þessu skyni. En fyrst og fremst þarf að gera ákveðna áætlun um það, hvernig skipið skuli vera, læra af þeirri mikilsverðu reynslu, sem þegar er fengin í þessum efnum, forðast þá galla, sem fram eru komnir á eldri skipum, og hagnýta sér nýjungar, sem aðrir hafa uppgötvað. En sérstaklega mundi það koma til álita, hvort framkvæmanlegt væri að byggja slíkt skip hér innanlands. Það yrði að vísu mun stærra en þau skip, dráttarbáturinn fyrir Reykjavíkurhöfn og björgunarskipið eða varðskipið fyrir Norðlendinga, sem nú eru í smíðum hér í Reykjavík, og gera má ráð fyrir, að slík skipasmíði hér yrði dýrari en ef skipið væri keypt erlendis frá, en jafnframt yrði hér um mjög mikilsverða tilraun og forgöngu að ræða í máli, sem víst er að allur landslýður mundi hafa mikinn hug á, ef við gætum smáeflt okkur í skipasmíði og haft skipin stærri og vandaðri, sem við treystum okkur til smíða á innanlands.

Af þessum ástæðum er greinilegt, að taka muni nokkurn tíma sú athugun á málinu, sem óhjákvæmileg er, áður en hægt er að ráðast í sjálfar framkvæmdirnar. Þess vegna þótti mér rétt að leggja fram þessa till. nú þegar, þó að mjög væri orðið áliðið þingtíma. Ég vonast til, að málið þyki ekki flóknara en svo, að fært þyki að afgreiða það þegar í stað. Ég veit, að hv. fjvn. hefur til meðferðar fleiri atriði, sem ráðgert er að ákvörðun verði tekin um fyrir þingslit, jafnvel vandasamari atriði en þetta, og vonast ég þess vegna til, að málið fái framgang, þó að ég játi, að það sé nokkuð seint fram borið.

Að svo mæltu vil ég mælast til þess, að að umr. lokinni verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjvn.