28.03.1956
Sameinað þing: 52. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í D-deild Alþingistíðinda. (2456)

196. mál, smíði varðskips

Frsm. (Pétur Ottesen):

Þáltill. sú, sem hér um ræðir, er flutt af dómsmrh., og er efni hennar að veita ríkisstj. heimild til þess að hefja undirbúning að smíði varðskips. Jafnframt er henni heimilt að verja úr landhelgissjóði fé til byrjunarframkvæmda við smíðina.

Þessi till. barst fjvn. í gær, og með tilliti til þess, að alveg var komið að þingslitum, vannst lítill tími til athugunar á henni, því að n. varð að skila áliti sínu um hana þá samdægurs.

En þetta kom sér ekki sérstaklega illa í sambandi við þetta mál, því að nm. fjvn. voru allir samþykkir því sjónarmiði, sem fram kemur í þessari till., um nauðsyn þess, að smíðað yrði nýtt og fullkomið landhelgisgæzluskip. Eins og nú er ástatt hér hjá okkur, eru það tvö varðskipin, sem mest mæðir á í landhelgisgæzlunni, og það eru stærstu skip flotans. En þannig er ástatt um annað þessara skipa, Ægi, að það er hvort tveggja, að það skip fullnægir ekki lengur þeim kröfum, sem gera verður um ganghraða landhelgisgæzluskipa, og auk þess hefur það tekið við öðru mikilsverðu starfi á sviði fiskveiðanna, sem er fiskirannsóknir, síldarleit og könnun nýrra fiskimiða. Er þetta út af fyrir sig mjög mikið starf og þörf á vaxandi starfi á því sviði, og tekur það því allmikið af tíma skipsins. Það er þess vegna mjög brýn þörf á því, að landhelgisgæzluflotanum bætist nýtt skip af fullkomnustu gerð.

Í því bréfi, sem fylgir þessari þáltill. frá forstjóra landhelgisgæzlunnar, kemur mjög skýrt og greinilega í ljós, hve af ber um þýðingu þeirra stóru skipa, sem eru í landhelgisgæzlunni, því að þar er frá því skýrt, að á undanförnum árum hafi tvö stærstu varðskipin, þ. e. Þór og Ægir, tekið fjögur af hverjum fimm skipum, sem staðin hafi verið að ólöglegum veiðum. Þess er enn fremur getið, að Þór, sem er bezt útbúinn og hraðgengastur allra þessara skipa, hafi einn tekið helming allra þeirra skipa, sem tekin hafi verið við ólöglegar landhelgisveiðar nú að undanförnu. Þetta er mjög skýr og greinileg bending um nauðsyn þess, að landhelgisgæzlan sé efld á þann hátt einmitt, sem lagt er til í þessari þáltill., og þetta voru fjvn: menn allir sammála um, eins og nál. á þskj. 639 ber með sér, þar sem þeir mæla eindregið með samþykkt till.

Ég skal geta þess hér, að eftir samtali, sem ég hef átt um þetta mál við forstjóra landhelgisgæzlunnar, er ráð fyrir því gert, að ganghraði þessa nýja skips verði allt að 20 sjómílum á vöku, og kostnaður við byggingu þess gerir hann ráð fyrir að verði 15–18 millj. kr., því að skipið verður að sjálfsögðu búið öllum fullkomnustu tækjum, sem nauðsynleg eru við þetta þýðingarmikla starf.

Hæstv. dómsmrh. gat þess hér í gær, þegar hann lagði þessa till. fram, að það væri til athugunar, hvort skipið yrði smíðað hér innanlands, — en eins og kunnugt er, er hafin hér smíði stálskipa, — eða látið verði byggja það annars staðar.

Forstjóri landhelgisgæzlunnar sagði við mig, að það væri alveg öruggt, að hér væri hægt að fá byggt jafntraust og gott skip og vel útbúið að öllu leyti eins og erlendis, en um það hefur að sjálfsögðu ekki verið enn tekin nein ákvörðun, hvað ofan á verður um það, hvort skipið verður byggt hér ellegar ekki. Forstjórinn gerir ráð fyrir því, að það muni taka 2–3 ár að byggja þetta skip, og eins og dómsmrh. upplýsti hér í gær, munu nú vera til handbærar í landhelgissjóði 4–5 millj. kr., sem þá er hægt að grípa til, til þeirra byrjunarráðstafana, sem nauðsynlegar eru við það, að tekin er ákvörðun um smíði þessa skips.

Ég skal svo ekki fara fleiri orðum um þetta, en fjvn. mælir eindregið með samþykkt till.