18.01.1956
Efri deild: 40. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (247)

135. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Í sambandi við þetta mál vil ég leyfa mér að beina þeirri fsp. til hæstv. fjmrh., þar sem forsætis- og sjávarútvegsmálaráðherra er ekki viðstaddur, hvort hann vildi nokkuð upplýsa þingið um, hvenær vænta megi tillagna ríkisstj. um lausn sjávarútvegsmálanna. Það er nú þegar liðið nokkuð á síðari hluta janúarmánaðar, og væri æskilegt, ef hæstv. ráðh. gæti gefið þinginu upplýsingar um, hvenær vænta megi tillagna í þessa átt.