19.10.1955
Sameinað þing: 5. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í D-deild Alþingistíðinda. (2487)

25. mál, vélar og verkfæri til vega- og hafnargerða

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki á þessu stigi málsins að fara að ræða þessa till. í einstökum atriðum. Hún er efnislega mjög lík till. sem hv. þm. Barð. og fleiri fluttu í fyrra, að öðru leyti en því, að nú er bætt inn í, að rannsókn fari fram einnig á tækjum til hafnagerða.

Það er alveg rétt, að fjvn. afgreiddi ekki þessa till. frá sér í fyrra. Ég skal ekki fara nánar út í það atriði, en aðeins geta þess, að það er nefndinni, held ég, allri ljóst, að það er kannske ekki mest þörf á því að láta fara fram ýtarlega rannsókn á þessum málum, fyrst og fremst vegna þess, að það hafa alltaf legið fyrir á undanförnum árum í fjvn. óskir bæði frá vegamálastjóra og vitamálastjóra um mun hærri fjárhæðir til kaupa á ýmiss konar tækjum en fært hefur þótt að veita, og það hefur því sannarlega ekki verið svo sérstök þörf á því að reka á eftir hvað snertir kröfuna um fleiri tæki, heldur hitt, að finna leiðir til þess, að meira fé væri til ráðstöfunar til þessara tækjakaupa.

Ég hygg að það séu allir sammála um, að það sé mjög mikil þörf á því að auka vélakost bæði við vegagerð og hafnagerðir og koma þar að stórvirkari tækjum, og bæði vitamálastjóri og vegamálastjóri hafa haft á prjónunum nýjar till. um þau efni og óskir um stórvirkari tæki en nú eru. Spurningin er aðeins sú, hvort talið verður fært af því fé, sem til ráðstöfunar er hverju sinni við afgreiðslu fjárlaga, að auka allverulega þessar fjárhæðir, og það er vitanlega það, sem fyrst og fremst þarf að gera, því að þótt athugunin sé góðra gjalda verð og sjálfsagt að gera sér grein fyrir því, hvað hér skortir á, eins og á öðrum sviðum, þá verður, til þess að það verði annað og meira en pappírsgagn, að horfa á hina hliðina, hvaða úrræði eru til fjáröflunar í þessu sambandi, og þetta er a. m. k. sú hliðin, sem snýr að fjvn., a. m. k. finnst mér það persónulega. Ég hef ekkert umboð til að tala hér fyrir nefndarinnar hönd, en mér finnst það persónulega vera dálítið kyndugt, ef fjvn. t. d. færi sérstaklega að leggja áherzlu á nauðsyn þess að auka vélakost, hvort sem það er í sambandi við þetta eða annað, en leggur þá ekki jafnframt til, að auknar fjárveitingar séu teknar upp í þessu sambandi.

Hitt er svo auðvitað alveg rétt, sem bent var á hér áðan af hv. síðasta ræðumanni, að það er annað vandamál, sem við stöndum andspænis í sambandi við vélvæðingu, bæði við hafnagerðir og vegagerðir, og það er skipting þess fjár, sem til þessara framkvæmda fer. Það er orðið mikið alvörumál, hvað það verður lítið raunverulega úr fé, sem fer sérstaklega til vegagerða, því að þar er skiptingin miklu meiri. Þegar verið er að leggja 15–20 þús. kr. í einn veg, þá gerir það orðið lítið meira en að greiða kostnaðinn við tilfærslu á vélum og mönnum á staðinn. Þá er stór hluti fjárins uppurinn.

Um það hefur því miður ekki náðst samkomulag að fá á þessu breytingu, og það er út af fyrir sig skiljanlegt. Þarfirnar á auknum vegum eru alls staðar, og menn vilja ógjarnan sleppa þeim krónum, sem þeir hafa haft til vegaframkvæmdanna. En þegar á málið er horft frá þjóðhagslegu sjónarmiði, hlýtur okkur öllum að vera ljóst, að þetta getur ekki svo áfram gengið, og því stórvirkari og dýrari sem vélarnar verða í rekstri, því meiri þörf er á því, að það sé hægt að nota þær meira á sama stað, en að helmingur tímans og fjármagnsins fari ekki í að flytja þær á milli.

Ég ætla ekki að orðlengja frekar um þetta. Þetta mun koma til athugunar vafalaust í nefnd, en mér þótti aðeins rétt á þessu stigi málsins að vekja athygli á þessu, sem raunar öllum hv. þm. er auðvitað ljóst, að það er vitanlegt, að skortur er á þessum tækjum til bæði vegagerða og hafnagerða, og það, sem fyrst og fremst skiptir máli í þessu sambandi. er það, hvort mönnum sýnist tiltækilegt að auka mjög verulega frá því, sem nú er, fjárveitingar til þessara kaupa, því að óskirnar um tækjakaupin hafa verið fyrir hendi frá báðum þessum embættum.