16.11.1955
Sameinað þing: 13. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í D-deild Alþingistíðinda. (2496)
77. mál, vegagerð í Skagafirði og brúarstæði
Flm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Þessari þáltill. fylgir allýtarleg grg., og sé ég ekki ástæðu til þess að endurtaka efni hennar hér. Tilgangur till. er að ýta á um, að fram fari rækileg rannsókn um, hvernig vegakerfi á tilteknum hluta Skagafjarðar verði haganlegast fyrir komið, bæði fyrir almenning og fyrir ríkissjóð og sýsluvegasjóð Skagafjarðarsýslu, áður en þau tvö brúarstæði, sem standa í sambandi við þessa vegagerð, eru endanlega ákveðin.
Um þetta hafa orðið nokkrar ópólitískar deilur, aðallega hagsmunatogstreita milli örfárra heimila. Ég hygg, að bezta ráðið til þess að setja niður slíkar deilur og fá menn til þess að hugsa um málið á breiðari grundvelli verði það, að hlutlaus og ýtarleg rannsókn fari fram á því, hvernig vegakerfinu verði þarna bezt fyrir komið, þannig að þá sé frekar von til, að menn geti við unað.
Það getur verið álitamál, hvert á að vísa þessari till. Ég hygg, að það sé eðlilegast, þar sem hér er samhliða allmikið fjárhagsmál, að till. verði vísað til fjvn. að lokinni þessari umr.