21.03.1956
Sameinað þing: 48. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í D-deild Alþingistíðinda. (2499)
77. mál, vegagerð í Skagafirði og brúarstæði
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Í till. þeirri, sem er á þskj. 84, um rannsókn til undirbúnings fyrirhugaðri vegagerð í Skagafirði og ákvörðun brúarstæða í því sambandi, er gert ráð fyrir, að Alþ. skori á ríkisstj. að láta framkvæma athugun á því, hvernig bezt verði komið á tilteknum vegabótum í héraðinu, svo sem till. segir til um, og jafnframt með það í huga að fá bætt akvegasamband milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, þ. e. a. s. að skapa aukið öryggi á Norðurlandsleiðinni einnig í sambandi við þetta mál.
Fjvn. hefur leitað um till. þessa álits vegamálastjóra, og hefur hann gefið nefndinni mjög ýtarlega og greinargóða umsögn um málið, sem prentuð er sem fskj. með nál. fjvn. á þskj. 441. Samkv. þessari umsögn vegamálastjóra, sem er samin af fyrrverandi vegamálastjóra, Geir Zoöga, sem tekur fram, að hann hafi borið hana undir eftirmann sinn, núverandi vegamálastjóra, og yfirverkfræðing vegamálaskrifstofunnar og þeir séu allir sammála, er það skoðun fjvn., að mál þetta hafi verið það rækilega athugað frá öllum hliðum, að það ætti að vera auðið á grundvelli þessarar athugunar að taka um það endanlega ákvörðun, hvernig þessari vegagerð verði hagað, en það er einmitt tilgangurinn með þáltill.
Það er vitanlega mikils um vert í sambandi við þetta mál hér eins og annars staðar, þar sem um vegagerðir er að ræða, að gera sér fyrir fram sem bezta grein fyrir því, hvernig því verði þjóðhagslega bezt fyrir komið, og því ekki nema eðlilegt, að allt slíkt sé kannað til hlítar. En þar sem fjvn. álítur, að þessi athugun sé þegar rækilega framkvæmd, þá sýnist henni ekki ástæða til að samþykkja till. í því formi, að ríkisstj. verði falið að láta framkvæma þessa athugun, heldur að till. verði vísað til ríkisstj. með þeirri forsendu, að þessi athugun sé þegar það vel framkvæmd, að það ætti að vera þarflaust að láta dragast lengur að taka ákvörðun um, hvernig þessu yrði háttað.
Það hefur hins vegar ekki legið fyrir fjvn. og eins og málið hefur legið fyrir hefur fjvn. ekki talið það í sínum verkahring á þessu stigi málsins að taka afstöðu til málsins á þann veg að segja neina ákveðna skoðun um það, hvernig þessu skuli háttað, heldur hefur hún aðeins talið eðlilegt með hliðsjón af ályktunartillögunni að kanna, hvaða undirbúningur hafi farið fram í þessu sambandi. Það er sem sagt samdóma álit n., að þessi athugun hafi þegar verið gerð það rækilega, að réttust meðferð á till. sé að vísa henni til ríkisstjórnarinnar.