24.11.1955
Neðri deild: 23. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (25)
12. mál, verðlagsuppbót á laun opinberra starfsmanna
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég heyrði enn engin rök fyrir því, að réttmætt væri eða sanngjarnt, að opinberir starfsmenn væru eina launastéttin í landinu, sem fengi ekki greiddar fullar vísitöluuppbætur á kaup sitt, eftir að allar þær stéttir, sem semja frjálst um kaup sitt við atvinnurekendur sína, hafa fengið viðurkenndan rétt sinn til fullrar vísitöluuppbótar á kaup sitt. Slík rök heyrði ég ekki, enda eru þau varla til. Það eina, sem hv. þm. hafði um málið að segja, var, að hann væri á móti hinni svokölluðu vísitöluskrúfu, að því er mér skilst því kerfi, að menn fengju uppbætur á kaup sitt í hlutfalli við hækkandi dýrtíð. Hv. þm. er á móti þessu að því er launamenn snertir. Ég hef aldrei heyrt hann segja eitt orð gegn þessu kerfi að því er hans eigin stétt snertir, þ. e. bændurna. Bændurnir búa við nákvæmlega sama fyrirkomulag í þessum efnum og launamenn. Og að því leyti er hagur bændanna betur tryggður en launamanna, að þeir fá sjálfkrafa á kaup sitt sams konar uppbætur og launamenn í bæjunum fá ef til vill í löngum og hörðum vinnudeilum. Bændur fá fyrirhafnarlaust vísitöluuppbætur sínar, en launþegar verða að berjast fyrir hækkuðu grunnkaupi. Vísitöluuppbætur hafa að vísu verið viðurkenndar sem samningsatriði fyrir langa löngu. Það kostaði mikla baráttu í upphafi, en bændur fá hvort tveggja bætt upp sjálfkrafa, bæði þá grunnkaupshækkun, sem launamenn berjast fyrir í vinnudeilum, og svo vísitöluuppbótina. Þetta er hv. þm. enginn þyrnir í augum. Hann tekur uppbót á laun sín sem bónda og finnst ekkert við það vera að athuga, hann telur það ekki vera neina verðbólguskrúfu og ekki gera þjóðfélaginu neitt illt. En þegar um er að ræða verðbætur á laun launamanna vegna hækkandi dýrtíðar og aðeins vegna hækkandi dýrtíðar, þá sér hann þar mikinn voða á ferðum.
Þetta verður ekki kallað samræmi í málflutningi, og ég endurtek að síðustu, að það hafa engin rök verið flutt fram fyrir því, að réttmætt sé eða sanngjarnt að búa verr í þessum efnum að opinberum starfsmönnum en öðrum starfsstéttum þjóðfélagsins, enda væri það sízt sanngjarnt með tilliti til þess, að opinberir starfsmenn hafa um mörg undanfarin ár alltaf dregizt aftur úr öðrum starfsstéttum hvað launahækkanir snertir, og mætti sanna það með tölum, ef ekki væri búið að marggera það hér á þessum stað. En þröngsýni eins og sú, sem kemur fram í afstöðu hv. þm. A-Húnv., hlýtur að gegna furðu, eftir að það er viðurkennt sjónarmið, að það sé a. m. k. ekki rétt að láta opinbera starfsmenn dragast árum saman aftur úr öðrum starfsstéttum í þjóðfélaginu. Maður ætti að geta treyst því, að slíkum sjónarmiðum yrði ekki gert hátt undir höfði hér á hinu háa Alþingi, og ég vona, að þeir þm. reynist fáir, sem ljá sjónarmiðum hv. þm. lið í atkvæðagreiðslu um málið.