19.10.1955
Sameinað þing: 5. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í D-deild Alþingistíðinda. (2511)

29. mál, gera aðalakvegi landsins úr varanlegu efni

Flm. (Jóhann Hafstein):

Ég þarf ekki á þessu stigi málsins að fjölyrða um þessa till., sem hér liggur fyrir. Hún var flutt á síðasta þingi, en þá var mjög liðið á þingtímann, og fékk hún þess vegna ekki afgreiðslu. Í þessari þáltill. er vakin athygli á mjög veigamiklum þætti í efnahags- og atvinnulífi okkar Íslendinga, sem sé hvernig hagkvæmast sé að gera aðalakvegi landsins úr varanlegu efni.

Við búum í dag við mjög öra þróun í ökutækjum. Umferðin eykst hröðum skrefum, og þau flutningatæki, sem notuð eru á akvegunum, stækka. Og hv. þm. öllum er það mjög vel kunnugt, hversu erfitt viðfangsefni það er fyrir fjárveitingavaldið á hverjum tíma að mæta þeim þörfum, sem hér er um að ræða, þ. e. a. s. að hafa fullnægjandi vegagerð og viðhald með þeim hætti, að ekki fari fram úr öllu hófi, hve miklu fé þarf til sjálfs viðhaldsins að verja, og einnig að koma í veg fyrir þá miklu sóun verðmæta, sem bilun og slit á ökutækjum hafa í för með sér, þegar ekki er hægt að hafa vegaviðhaldið í samræmi við kröfur umferðarinnar og flutninga á hverjum tíma. Það hefur á undanförnum árum verið mjög veigamikið og erfitt viðfangsefni hér í höfuðstað landsins að gera akvegina úr nægjanlega varanlegu efni. Það hafa einkum verið farnar tvær leiðir: að malbika þessa vegi eða steypa þá. Af þeirri reynslu, sem fengin er, er langt í land enn þá að ná þeim árangri, sem æskilegt er, vegna þess að það, sem við venjulega köllum í þessu sambandi varanlega vegagerð, hefur ekki við okkar veðráttu og þær aðstæður, sem við búum við, reynzt jafnvaranlegt og til hefur verið ætlazt og þess vegna á hverju ári þurft miklu meira fé til viðhalds en æskilegt væri. Reykjavíkurbær hefur um allmörg ár haft nána samvinnu við iðnaðardeild atvinnustofnunar háskólans, sem haft hefur með höndum rannsóknir á því, hvaða aðferðir væru heppilegastar hér í sambandi við vegagerð eða gerð malbikaðra vega og einnig steyptra vega, og þar mun liggja fyrir allveigamikil reynsla á þessu sviði.

Eins og ég sagði áðan, þarf þó að vinna af miklu meira kappi að þessu máli að mínu viti en verið hefur og einkum og sér í lagi í sambandi við aðalakvegi landsins frá og til höfuðstaðarins, bæði aðalakvegina norður í land og vegina frá Reykjavík til Suðurlandsundirlendisins. Þar hafa verið á prjónum á undanförnum árum hugmyndir um nýjar leiðir, Austurveg, sem hv. þm. er kunnugt um, og komið fram till. og verið samþykktar um þessa vegagerð. Það er ekki ólíklegt, að þess sé skammt að bíða, ef vel á að vera, að gerður verði nýr akvegur frá Reykjavík til Suðurlandsundirlendisins, og þá skiptir að sjálfsögðu mjög miklu máli, hvernig til þeirrar vegagerðar er stofnað í upphafi.

Það mun vera, án þess að það sé rakið hér í greinargerð þessarar till., gífurlegt viðhald á ökutækjum á undanförnum árum, sem annazt hafa flutninga á leiðum milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendisins, og það er einnig gífurlegt viðhald á flutningatækjum t. d. á leið eins og leiðinni suður með sjó, Reykjanesbrautinni og til Keflavíkur. Allt þetta er ærið umhugsunarefni. En það er einnig skoðun okkar flm., að það þurfi til viðbótar við það, sem fram að þessu hefur verið unnið að þessum málum, að hefja miklu víðtækari rannsókn á því, hvernig þessum málum verður bezt háttað, og þá að leggja meiri áherzlu en gert hefur verið á að athuga eða fá þekkingu frá öðrum þjóðum, sem hafa meiri reynslu en við á þessu sviði og hafa leyst þessi viðfangsefni á undan okkur.

Ég geri ekki ráð fyrir því, að það sé vanda bundið fyrir þingið að afgreiða þessa till., sem fyrst og fremst felur hæstv. ríkisstj. að hafa forgöngu um rannsókn á sviði þessa máls í samráði við vegamálastjórnina, því að síðar, þegar slíkri rannsókn væri lokið, væri að því komið, að þing og stjórn og aðrir aðilar, sem hér um fjalla, tækju ákvarðanir á grundvelli þeirrar rannsóknar. En það er höfuðnauðsyn að draga ekki að leggja meginkapp á að gera sér grein fyrir, hvort við Íslendingar getum ekki í miklu ríkari mæli en hingað til unnið alveg sérstaklega að endurbótum á því sviði vegamálanna, sem þessi till. fjallar um. Og ég vil leggja áherzlu á það vegna þeirra umræðna, sem síðast áttu sér stað um till. á þskj. 25, að hér eru í raun og veru, þó að það sé að vissu leyti um skyld mál að ræða, að öðru leyti óskyld mál, því að eitt er að hafa nægjanleg og fullkomin tæki til þeirrar vegagerðar, sem við höfum vanizt á undanförnum árum, og annað, hvort við getum ekki skapað nýjan tíma á þessu sviði með nýrri tækni og annarri vegagerð en við höfum búið við.

Ég vil þess vegna mega vænta þess, að þessi till. hljóti skjóta afgreiðslu þingsins, og vildi mega leggja til, að henni yrði að lokinni þessari umr. vísað til hv. allshn.