19.10.1955
Sameinað þing: 5. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í D-deild Alþingistíðinda. (2512)
29. mál, gera aðalakvegi landsins úr varanlegu efni
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hér stendur líkt á með þessa till. og þá, sem var hér til umr. næst á undan, að ég bar fram á síðasta þingi ásamt nokkrum öðrum hv. þm. þáltill. um nýja skipun á framkvæmd vegagerðar, og þeirri till. var vísað til hv. fjvn., en innihald hennar var svo að segja nákvæmlega sama og er í þeirri till., sem hér er til umr. og síðar kom fram á síðasta þingi. Mismunurinn er raunverulega ekki neinn annar en sá, að ég lagði til að fela þetta ákveðinni stofnun, sem var þó ekkert aðalatriði í málinu, heldur hitt, að sú rannsókn færi fram, sem till. kveður á um. Af einhverjum ástæðum sá ekki hv. fjvn. ástæðu til að afgreiða þetta mál þá, en ég hygg, að það geti allir hv. þm. verið sammála um, að hér sé um svo mikið aðkallandi mál að ræða, að það megi ekki dragast þing eftir þing, að eitthvað sé hafizt handa um framkvæmdir á þessu sviði. Við sjáum viðhald veganna aukast stórkostlega frá ári til árs, sem stafar mikið af því. hversu lítið þol er í því efni, sem notað er til vegagerðarinnar, og þess vegna er aðkallandi nauðsyn að láta rannsaka þessi mál til hlítar.
Mér skilst, að ef til vill höfuðástæðan fyrir því, að þetta mál var ekki afgreitt hér í fyrra, hafi verið það, að ég sem flm. óskaði eftir, að þetta væri falið annarri stofnun en vegagerðinni, þótt hins vegar sé tekið skýrt fram í till., að sú stofnun skuli hafa fullt samráð við vegamálastjóra um athugun á málinu. En sú till. mín var beinlínis vegna þess, að sú stofnun, sem ég benti á að eðlilegast væri að láta rannsaka þetta, stendur í mjög nánu sambandi við margar þær stofnanir erlendis, sem hafa alla aðstöðu til þess að gefa slíkar upplýsingar sem hér um ræðir, og stendur í nánara sambandi við þær stofnanir en nokkur önnur stofnun hér á landi. Hins vegar var, eins og ég sagði áðan, ekkert því til fyrirstöðu að fá samkomulag um orðabreytingu á greininni.
Ég vil því mælast til þess, að þetta mál fái afgreiðslu á þessu þingi. Hins vegar þykir mér réttara, að þetta mál fari til fjvn., og mun gera það að till. minni. Fyrsti flm. gerði að till. sinni, að málið fari til allshn. Þessi till., ef samþykkt verður, hlýtur að hafa mjög mikil útgjöld í för með sér, ef nokkurt gagn á að vera af rannsókninni. Mér þykir því mjög eðlilegt, að málið fari til hv. fjvn. Auk þess mun fjvn. hafa unnið að þessu máli allmikið á síðasta þingi, þótt ekki hafi unnizt tími til að ljúka því að fullu. Mér finnst miklu eðlilegri vinnubrögð, að þangað verði málinu vísað. Fjvn. hefur auk þess miklu nánari samvinnu við vegagerðina en nokkur önnur nefnd þingsins. Og eins og ég gat um áðan, er það sýnilegt, að ef till. verður samþ., þá hlýtur hún að hafa allmikil fjárútlát í för með sér, enda hefur hæstv. forseti ákveðið um hana tvær umr. Ég geri að till minni, að málinu verði því vísað til hv. fjvn., og vænti þess, að hún afgreiði málið svo snemma á þessu þingi, að það verði hægt að afgreiða það hér, eftir að till. hennar koma fram.