02.11.1955
Sameinað þing: 8. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í D-deild Alþingistíðinda. (2676)
200. mál, aðstoð við togaraútgerðina
Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja fram á þskj. 33 fyrirspurn til ríkisstj. um aðstoð við togaraútgerðina.
Svo sem kunnugt er, voru á s. l. ári sett lög um aðstoð við togaraútgerðina, sem þá var talin eiga mjög í vök að verjast. Helzta bjargráðið var það, að aflað var tekna með sérstökum hætti til þess að greiða rekstrarstyrk til þessa höfuðatvinnuvegar þjóðarinnar. Það, sem ég hef leyft mér að spyrja um, er, hvernig þessum málum hafi reitt af fram til þessa tíma, þ. e., hversu mikið álagið á hinar innfluttu bifreiðar, sem var aðaltekjustofninn, hafi numið, hversu mikið hafi runnið í þennan sjóð, hversu lengi sé talið að hann muni endast til þess að tryggja rekstur togaraútgerðarinnar og hvort sérstakar ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að tryggja rekstur hennar eftir þann tíma, þ. e. þegar gera má ráð fyrir, að sjóður sá, sem þegar er fyrir hendi, verði þurrausinn.
Ég vona, að hv. þm. telji ekki, að þessi fsp. og þær aðrar, sem hér eru á sama þskj. og náskyldar eru þessu máli og þá aðallega um bátagjaldeyrinn, hafi verið bornar fram að ófyrirsynju.
Ástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar er sennilega svo alvarlegt, að nauðsynlegt er, að þingheimur og almenningur allur fái sem gleggsta vitneskju um, hvernig raunverulega horfir í þeim málum. Sérstaklega er gjaldeyrisástandið varhugavert nú sem stendur. Hinn 1. okt. voru beinar gjaldeyrisskuldir bankanna erlendis 42.9 millj. kr., en á sama tíma árið áður hafi gjaldeyrisinneign numið 123.9 millj. kr. Hin beina gjaldeyrisaðstaða hefur því á einu ári versnað um hvorki meira né minna en tæpar 167 millj. kr., en 1. okt. voru ábyrgðarskuldbindingar bankanna 72 millj. kr., svo að beinu gjaldeyrisskuldirnar og ábyrgðarskuldbindingarnar námu 1. okt. 114.9 millj. kr. Við þetta bætist svo það, að bankarnir hafa tekið að sér ýmis bindandi greiðsluloforð. Þau námu 1. okt. 37.1 millj. kr., þannig að raunverulegar gjaldeyrisskuldbindingar bankanna voru 1. okt. s. l. 152 millj. kr. Hafði aðstaðan þannig versnað frá því í byrjun þessa árs um 173 millj. kr., en á sama tíma fyrir árið áður hafði gjaldeyrisaðstaðan að vísu versnað, en aðeins um 40 millj. kr., svo að það hallar mun meira undan fæti á þessu ári en árið áður. Hallinn er 173 millj. kr. á fyrstu níu mánuðum þessa árs, en hafði ekki verið nema 40 millj. árið áður.
Undir þessum kringumstæðum vona ég, að það þyki ekki að ástæðulausu, að beint sé fsp. til hæstv. ríkisstj. um þennan kjarna í stefnu hennar í efnahagsmálum, þ. e., hvernig hún hefur hagað og hvernig hún hyggst að haga þessari aðstoð við togaraútgerðina, og þá jafnframt, hvernig háttar framkvæmd hennar á bátagjaldeyriskerfinu.