02.11.1955
Sameinað þing: 8. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í D-deild Alþingistíðinda. (2678)

200. mál, aðstoð við togaraútgerðina

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin við spurningunum. Efni þeirra mun ég að sjálfsögðu ekki ræða hér, enda ekki gert ráð fyrir, að það sé gert í þessum tíma, sérstaklega ekki svarið við síðustu spurningunni, sem í sjálfu sér var athyglisverðast, þ. e., að ríkisstj. hafi enn þá engar ráðstafanir gert til þess að tryggja rekstur togaraútgerðarinnar eftir maílok, en þegar er vitað, að það fé, sem þegar er til ráðstöfunar, dugir aðeins til maíloka. Væntanlega verður það eitt af höfuðverkefnum þessa þings að greiða úr þeim vanda, og lætur hæstv. ríkisstj. vonandi ekki lengi standa á tillögum sínum í þessu efni, þar eð vitað er nú þegar, að mikill vandi bíður hennar og þjóðarbúsins alls við maílok.

Hæstv. ráðherra sagði, að tölur þær, sem ég nefndi um hina mjög alvarlegu gjaldeyrisafkomu þjóðarinnar nú, væru ekki fullnægjandi, vegna þess að ekki væri þar tekið tillit til birgðabreytinga á innfluttum og útfluttum vörum. Varðandi þetta er það að segja, að upplýsingar um birgðabreytingar, sérstaklega um innfluttu vöruna, liggja mér vitanlega hvergi fyrir, upplýsingar um birgðir útflutningsvaranna liggja auðvitað fyrir. Hingað til hafa breytingar á gjaldeyrisástandinu þótt alveg nægileg vísbending til hins betra og til hins verra, án þess að þurft hafi að rekja sérstaklega birgðabreytingarnar í því sambandi, og viðurkenni ég þó auðvitað fúslega, að birgðabreytingar skipta máli, þegar heildaraðstaðan er metin. En þegar breytingarnar á gjaldeyrisaðstöðunni eru jafngífurlega til hins verra og hér á sér stað, hún hefur versnað um 173 millj. kr. samkv. skýrslugerð sjálfs þjóðbankans á fyrstu 9 mánuðum ársins, þá er sannarlega um svo alvarleg teikn á lofti að ræða, að það ætti enga tilraun að gera til þess að gera minna úr því en efni standa til, svo alvarlegt er þetta teikn á himni efnahagslífs þjóðarinnar.