19.10.1955
Sameinað þing: 5. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í D-deild Alþingistíðinda. (2698)

202. mál, verðlagsuppbót úr ríkissjóði

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh, fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur veitt.

Því miður liggja ekki fyrir svör við síðari lið fsp., sem ég þó, eins og á stendur, tel vera enn mikilvægara að fá glögg svör við, svo að almennar hugleiðingar um gildi þessara talna bíða að sjálfsögðu þangað til þær upplýsingar liggja einnig fyrir.

Ég hygg, að tölur þær, sem hæstv. ráðh. nefndi, séu nokkuð hærri en menn almennt munu hafa reiknað með að þessar uppbótagreiðslur mundu nema á þessu ári. Þó að öll túlkun á þessum uppbótagreiðslum í heild hljóti að bíða, þangað til tölurnar um útflutningsuppbæturnar liggja fyrir, get ég ekki stillt mig um að minna hæstv. ríkisstj. á það, sem sérfræðingar hennar hafa áður sagt um galla þeirrar aðferðar að greiða atvinnuvegum, sem framleiða fyrir innanlandsmarkað og til útflutnings, styrki í mjög ríkum mæli, eins og auðvitað á sér stað, þegar greiðslur verðuppbóta á innanlandsvörur eru komnar yfir 50 millj. árlega. Aðalsérfræðingar hæstv. ríkisstj. í efnahagsmálum, Benjamín Eiríksson og Ólafur Björnsson, sögðu árið 1950 í grg. sinni með gengislækkunarfrv., sem oft hefur verið vitnað til, þessa setningu um styrkjagreiðslur, með leyfi hæstv. forseta:

„Aðalókostur styrkjaleiðarinnar frá þjóðhagslegu sjónarmiði séð er sá, að hún leysir í raun og veru ekki vandamál útflutningsframleiðslunnar, sem berst í bökkum jafnt eftir sem áður, og á það ekki aðeins við um útgerðarmenn, heldur og aðra framleiðendur. Styrkjaleiðin lofar engu um bætta verzlun, sem þegar til lengdar lætur er höfuðvandamálið, og hún er heldur ekki viðunandi bráðabirgðalausn, m. a. vegna þess, að útflutningsframleiðslan mundi verða meiri við hagstæðari kringumstæður.“

Þetta er dómur þeirra manna, sem hæstv. ríkisstj. hefur á undanförnum árum mest leitað til um aðstoð varðandi ráðstafanir í efnahagsmálum, um þær ráðstafanir, sem hæstv. félmrh. var sumpart að lýsa í svari sínu við fsp. áðan.

Að öðru leyti endurtek ég þakklæti mitt til hæstv. ráðh. fyrir glögg svör við fsp.