02.11.1955
Sameinað þing: 8. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í D-deild Alþingistíðinda. (2711)

50. mál, bátagjaldeyrir af togarafiski

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Það er að sjálfsögðu gott, að fiskmatsstjóri hefur getað fullvissað hæstv. forsrh. um það, að naumast muni nein hætta á því, að blandað sé saman fiski af bátum og togurum. Skal ég ekki fara um þetta atriði mörgum orðum, en ég er samt ekki sannfærður um, að þetta geti ekki átt sér stað í einstökum tilfellum. Og í sambandi við þetta mál allt saman vil ég vekja athygli á því, að ég hygg, að það þurfi að taka mjög til athugunar, hvort ekki eigi að breyta fyrirkomulagi varðandi fiskmat og eftirlit með fiski. Ég hygg, að það muni vera svo, að fiskmatsmenn séu launaðir af viðkomandi útflutningsaðila, viðkomandi hraðfrystihúsi eða útgerðarmanni, sem fær fiskmatsmann, að vísu löglegan aðila, til þess að meta fiskinn hjá sér. Þetta held ég að sé að mörgu leyti mjög óheppilegt, og bendir margt til þess, að taka þurfi til endurskoðunar þetta fyrirkomulag og athuga, hvort ekki verði að koma þar annarri skipan á, gera fiskmatsmennina óháðari þeim aðilum, sem þeir eiga í raun og veru að hafa eftirlit með.