02.11.1955
Sameinað þing: 8. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í D-deild Alþingistíðinda. (2712)

50. mál, bátagjaldeyrir af togarafiski

Forsrh. (Ólafur Thors):

Það er aðeins ein örstutt athugasemd. Ég held ekki, að það geti nein hætta verið fólgin í því, þó að eiðsvarnir menn taki kaup sitt frá þeim vinnuveitanda, sem þeir hverju sinni vinna hjá, en auk þess — og að því vil ég sérstaklega leiða athygli hv. fyrirspyrjanda — er það fiskmatsstjórinn og yfirmatsmenn, sem ákveða, hvaða fiskmatsmaður skuli inna af hendi það verk, sem fyrir liggur hjá verktaka, en ekki verktaki sjálfur. Ég tel, að ef um einhverja hættu væri að ræða, ætti þetta að vera nokkurt öryggi fyrir því, að enginn voði væri á ferðum í þessum efnum.