02.11.1955
Sameinað þing: 8. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í D-deild Alþingistíðinda. (2716)

50. mál, bátagjaldeyrir af togarafiski

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég þarf ekki annað, herra forseti, en að ítreka það og árétta, sem ég áðan sagði, að sú rannsókn, sem felst í því, að það opinbera hafi eftirlit með, hvaða fiskur er lagður inn í frystihúsin og hvaða fiskur er fluttur út úr frystihúsunum, fór fram og fer ævinlega fram. Eftirlitið er auðvitað til þess og til þess eins, að matsmennirnir segi: Inn í frystihúsið hefur svo og svo mikið hráefni, ef ég má nota það orð, komið af bátum, svo og svo mikið af togurum. — Svo þegar út er flutt, er gefið upp, hvað er bátafiskur og hvað er togarafiskur, og það eftirlit er auðvitað það eina, sem við getum haft, og það viljum við líka gera eins samvizkulega og auðið er, enda er það alveg sjálfsagt.

Varðandi hitt atriðið, hvort sá, sem telur sig vita um stórfelld fjársvik, eigi að gefa upplýsingar eða vísa á heimildarmann sinn, skal ég ekki segja meira en ég hef þegar sagt. Hins vegar getur það opinbera ekki fest hendur á slíkum söguburði, ef enginn vill standa við hann. Sú rannsókn, sem hv. 8. landsk. ræðir um, að við hefðum átt að láta fram fara, fer fram. Það er auðvitað hún, sem á að vera haldreipi okkar til að koma í veg fyrir, að slík mistök geti átt sér stað.