26.10.1955
Sameinað þing: 7. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í D-deild Alþingistíðinda. (2719)

203. mál, bátagjaldeyrir

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Eins og kunnugt er, gripu stjórnarvöld landsins til þess ráðs árið 1951 að koma á hinu svonefnda bátagjaldeyrisfyrirkomulagi, sem er í því fólgið, að útflytjendur bátafisks hafa fengið helming af andvirði útflutningsins til kaupa á tilteknum vörutegundum, sem aðeins má kaupa fyrir þennan gjaldeyri. Í langflestum tilfellum hafa eigendur gjaldeyrisins selt innflytjendum hann með álagi, og hefur þetta álag numið allt að 60%, en innflytjendur hafa síðan að sjálfsögðu lagt þetta gjald á vöruna, sem inn var flutt.

Ég ætla ekki í þeim fáu orðum, sem ég segi hér í sambandi við þessa fsp., að fara að ræða um bátagjaldeyrisfyrirkomulagið almennt né heldur þann hátt, sem hafður var á, þegar því var komið á með einni saman reglugerð, án þess að Alþ. væri látið fjalla um málið. En ég vil með fsp. minni vekja athygli á því, að furðulítið eftirlit virðist allt frá upphafi og fram á þennan dag hafa verið með því af opinberri hálfu, að þær reglur, sem gilda um bátagjaldeyrisfyrirkomulag, séu ekki sniðgengnar með ýmsum hætti.

Meðal þeirra atriða, sem ekki mun vanþörf á að hafa vakandi eftirlit með, er það, að óprúttnir innflytjendur og seljendur vöru reyni ekki að flytja inn og selja með bátagjaldeyrisálagi aðrar vörur en þær, sem þeir hafa raunverulega borgað gjaldeyrisálag fyrir. Mér er kunnugt um, að ýmsir telja, að nokkur brögð séu að þessu. Og þar sem mér er ekki að fullu ljóst, hvernig háttað er eftirliti með því, að bátagjaldeyrisreglugerðin sé ekki sniðgengin að þessu leyti eða á annan hátt, hef ég leyft mér að bera fram á þskj. 55 svo hljóðandi fsp. í þremur liðum:

1) Hvernig er háttað eftirliti opinberra aðila með því, að eigi séu fluttar inn og seldar með bátagjaldeyrisálagi aðrar vörur en þær, sem reglugerð um bátagjaldeyri heimilar?

2) Hefur komið í ljós, að reglur þær, sem gilda um bátagjaldeyrisvörur, hafi verið sniðgengnar?

3) Ef svo er, á hvern hátt hefur það verið gert?