26.10.1955
Sameinað þing: 7. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í D-deild Alþingistíðinda. (2720)
203. mál, bátagjaldeyrir
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Þeim fsp., sem lagðar hafa verið fram á þskj. 55 og hv. fyrirspyrjandi var að lýsa hér áðan, vil ég leyfa mér að svara á þann veg, sem hér greinir.
Við innflutning vara til landsins koma til greina þrenns konar innflutningsheimildir, frílisti, gjaldeyris- og innflutningsleyfi innflutningsskrifstofunnar og B-skírteini. Eins og kunnugt er, þarf B-skírteini til innflutnings á bátagjaldeyrisvörum. Þegar sótt er um gjaldeyri til innflutnings á vörum, gætir bankinn þess, að innflutningsheimild sé í lagi, og krefst B-skírteinis, ef um vöru á bátalista er að ræða. Yfirfærsla er síðan færð inn á B-skírteinið. Við tollafgreiðslu vara gilda á sama hátt og áður segir þrenns konar innflutningsheimildir. Ber tollyfirvöldum að sjá um, að rétt innflutningsheimild sé fyrir hendi. Við tollafgreiðslu bátagjaldeyrisvara er fært af B-skírteini verðmæti hinna tollafgreiddu vara. Endurskoðunardeild fjmrn. endurskoðar tollafgreiðslur og gætir þess, að gildandi reglum sé fylgt, einnig að því er snertir innflutningsheimildir.
Að lokum skal þess getið, að gjaldeyriseftirlitið fylgist með því, að gjaldeyrir sé notaður á þann hátt, sem til er ætlazt.
Að framansögðu má draga þá ályktun, að ekki komi til bátagjaldeyrisálags á aðrar innfluttar vörur en þær, sem eru á bátalistanum.