26.10.1955
Sameinað þing: 7. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í D-deild Alþingistíðinda. (2721)

203. mál, bátagjaldeyrir

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskmrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf hér. Þær voru að vísu ekki mjög ýtarlegar. Hann nefndi þær almennu reglur, sem um þetta gilda og ég býst við að flestum hafi verið kunnar í höfuðdráttum, og samkvæmt því orðalagi, sem hann viðhafði, virðist hann líta svo á, að þessar reglur séu fullnægjandi og um það geti naumast verið að ræða, að þær séu sniðgengnar eða fram hjá þeim reynt að komast.

Hæstv. ráðh. svaraði ekki beinlínís 2. lið fyrirspurnarinnar varðandi það, hvort þessar reglur, sem gilda um bátagjaldeyrisvörur og innflutning þeirra, hafi verið sniðgengnar. En mér virðist, að hann teldi ekki ástæðu til að ætla, að svo væri. Þess vegna mun hann ekki hafa svarað beint 3. lið fyrirspurnarinnar, á hvern hátt þetta hafi verið gert, hafi svo verið.

Ég er dálítið hissa á því, satt að segja, ef aldrei hefur komið í ljós, að fram hjá þessum reglum hafi verið reynt að komast. Það er alls ekki fundið upp af mér, að sá orðrómur hafi gengið, að einstakir aðilar hafi haft tilhneigingu til þess að setja hliðstætt verð á vörur, sem eru ekki fluttar inn á bátagjaldeyri, eins og þær væru fluttar inn samkvæmt bátagjaldeyrisreglum og borgaður bátagjaldeyrir af, sérstaklega vörur, sem eru á einhvern hátt hliðstæðar eða flokkast undir svipaða flokka og bátagjaldeyrisvörur. Það er gott, ef þessi orðrómur er algerlega úr lausu lofti gripinn, en svör hæstv. ráðh. hafa ekki fullvissað mig algerlega um, að svo sé.