09.11.1955
Sameinað þing: 11. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 404 í D-deild Alþingistíðinda. (2730)
204. mál, daggjöld landsspítalans
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er eðlilegt, að spurt sé um eitthvað svipað og þetta, vegna þess að hækkun daggjalda á sjúkrahúsum kemur niður á þeim, sem þar þurfa að liggja, og það er vitanlega oft fátækt fólk og illa statt, sem það kemur niður á. Ég held, að ef menn hugsa um málið, þá sé auðvelt að gera sér ljóst, hvers vegna daggjaldahækkunin er á komin. Það er vegna aukins tilkostnaðar á landsspítalanum og líka á öðrum sjúkrahúsum, sem hefur verið tekið tillit til.
Önnur sjúkrahús hafa orðið að miða daggjöldin nokkuð við landsspítalann, og eftir því sem daggjöld landsspítalans eru greidd meira niður, eftir því verður aðstaða sjúkrahúsa úti á landi erfiðari. Það er þess vegna mjög vafasamt, hvort það er rétt að íþyngja svo sveitar- og sýslufélögum úti á landi, sem reka sjúkrahús, að þau ráði ekki við það, vegna þess að ríkið tekur að sér að greiða óeðlilega mikið niður daggjöldin á ríkissjúkrahúsunum. Þegar um það var að ræða, hvort hækka bæri daggjöldin á landsspítalanum, varð ekki hjá því komizt að taka að nokkru tillit til þeirra kvartana, sem hafa borizt frá sýslu- og bæjarfélögum úti á landi, sem reka sjúkrahús.
Eins og kunnugt er, hækkuðu 1. okt. s. l. daggjöld landsspítalans úr 75 kr. í 90 kr. á legudag. Þessi hækkun daggjalda landsspítalans er orsök fyrirspurnar á Alþingi, sem nú situr, þar sem spurt er um ástæðu fyrir hækkuninni. Skulu hér nú skýrðar nokkuð þær meginástæður, sem til þessarar hækkunar liggja, þó að vitað sé, að þær, sem mestu máli varða, séu alkunnar.
Í þessu sambandi verður fyrst að skýra nokkuð frá reglum, sem gilda um undirbúning fjárlaga, að því leyti sem þær varða rekstur landsspítalans. Till. stjórnarnefndar ríkisspítalanna um gjöld og tekjur ríkisspítalanna árið 1955 voru unnar upp um mánaðamótin júní og júlí 1954, eða sex mánuðum áður en rekstrarárið hófst. Í þessu efni er fylgt fastri árlegri reglu um tíma þann, sem opinberum stofnunum er ætlað að semja sínar rekstraráætlanir. Um nokkurt árabil hefur tekjuáætlun landsspítalans verið byggð á þann hátt, að tekjum af daggjöldum og af starfsemi röntgendeildar, en aðrir tekjustofnar eru hverfandi litlir, stæðu undir um 60% af beinum rekstrargjöldum spítalans. Till. um breytingar á daggjöldum spítalans hafa því oft fylgt hinum álögðu till. um gjöld og tekjur. Þessi áætlun og ásetningur um 60% hlutfall tekna á móti gjöldum hefur þó staðizt misjafnlega hin ýmsu ár, einkum þó þau árin, sem gætt hefur óvæntra hækkana á kaupgjaldi. Þetta ár, sem nú er að líða, bætist vafalaust í röð þeirra, þar sem tekjur landsspítalans ná ekki hinu áætlaða 60% marki.
Ég hef hér skýrslu um það, hver prósenttala hefur gilt núna síðustu árin, og kemur í ljós, að fyrir stríð námu daggjöldin 74–75% af útgjöldum spítalans, 1954 56.5%, 1953 62.4% og 1952 54%. Þetta hlutfall hefur þess vegna lækkað síðustu árin og er nú miklu lægra en fyrir stríð.
Þegar áætlun um rekstur landsspítalans fyrir árið 1955 var gerð, var einkum stuðzt við niðurstöðutölur reikninga áranna 1953 og 1952 svo og fyrri hluta ársins 1954. Á árunum 1952, 1953 og 1954 urðu ekki neinar stórsveiflur á kaupgjaldi eða öðru verðlagi, og bera reikningar landsspítalans þessi ár þetta með sér. Áætlun fyrir 1955 byggðist því í aðalatriðum á þeirri reynslu, að verðlag hafði verið nokkuð stöðugt undanfarin ár. Árið 1952 var kostnaður á legudag kr. 139.88, en árið 1953 kr. 145.30. Hér er einnig meðtalinn allur kostnaður við röntgendeildina. Sé dreginn frá sérkostnaður utanspítalasjúklinga röntgendeildar, mun dagkostnaður í landsspítalanum hafa verið árið 1952 120 kr. og árið 1953 123 kr. Nokkra gjaldaliði í rekstri röntgendeildar verður að áætla, því að þeir eru sameiginlegir við annan rekstur spítalans.
Stærsti gjaldaliðurinn í rekstri landsspítalans eru launin. Í fjárlögum fyrir árið 1955 eru bein laun til starfsmanna um 56% af heildargjöldunum. Ef líkur eiga að verða fyrir því, að tölur ársreikninga verði í samræmi við tölur fjárlaga, skiptir mestu máli, að breytingar á launum verði sem minnstar. Hér skulu nú taldar upp þær breytingar á launum, sem komið hafa til framkvæmda á þessu ári og ákveðnar hafa verið og afgreiddar, eftir að tölur fjárlaga 1955 voru festar:
1. júlí 1955 varð launahækkun til starfsstúlkna 10%.
1. jan. 1955 kom til framkvæmda kauphækkun samkvæmt ákvörðun Alþingis, sem nær nú til allra starfshópa spítalanna annarra en starfsstúlkna. Hækkun þessi var hækkun aukauppbótarinnar úr 10% í 20% fyrir alla launaflokka.
1. marz varð breyting á kjörum vélgæzlumanna, hjúkrunarkvenna, viðgerðarmanna o. fl. Þeir gerðust þá opinberir starfsmenn og fengu þá beina launahækkun um 10%.
1. marz tók gildi samkomulag um 33% næturálag, er leggst á alla vaktavinnu, sem unnin er frá kl. 21 að kvöldi til kl. 8 að morgni.
Í maímánuði var gerður nýr samningur um kjör námskandidata, og hækkuðu laun þeirra um 5%, en þessi samningur gilti aftur fyrir sig allt árið 1954.
1. júní kom til framkvæmda breyting á þeim grunnlaunagrundvelli, sem verðlagsuppbætur höfðu verið greiddar eftir. Breyting þessi olli 5% hækkun hjá öllum opinberum starfsmönnum.
Sú hækkun á launum, sem þó mest raskar jafnvæginu milli fjárlaga og rekstrarreiknings á þessu ári, er hinar síhækkandi verðlagsuppbætur. Fjárlög miðuðust við 53 og 58 stiga vísitölu, en greitt hefur verið tímabilið jan.–febr. með 54 og 59 stiga vísitölu, marz–maí með 56 og 61 stigi, júní–ágúst með 61 stigi hjá öllum og sept.–nóv. með 64 stiga álagi.
Um aðra kostnaðarliði í rekstri spítalans er það að segja, að hækkun verður allmikil umfram fjárlög á sumum þeirra. Matvörur innlendar hafa hækkað mikið eftir mitt árið. Kostnaður við lyf og sáraumbúðir var kominn í 540 þús. kr. í septemberlok, en var áætlaður í fjárlögum fyrir allt árið 500 þús. kr. Ljós og hiti: Rafmagnsverð hækkaði um 30% 1. okt. 1954. Þvottur og hreinlætisvörur: Þvotturinn aðalkostnaðarliðurinn, og ráða launin mestu í kostnaðinum, því að bein laun til starfsfólks þvottahússins eru nú 75% í heildarþvottakostnaðinum, launahækkunin til starfsstúlkna hækkar því mikið þvottakostnaðinn. Viðhald fasteigna og muna: Aðalkostnaðurinn er fólginn í launum iðnaðarmanna, sem hafa hækkað mjög mikið á árinu, m. a. vegna nýs kaupgreiðslufyrirkomulags.
Hér að framan hefur nokkuð verið skýrt frá þeim hækkunum, sem mestu hafa raskað þeim rekstrargrundvelli landsspítalans, sem fjárlög 1955 voru miðuð við. Hækkun daggjalda landsspítalans getur því ekki talizt ótímabær, þegar um er að ræða jafnstórfellda röskun á rekstrarkostnaði og orðið hefur þetta ár, heldur virðist eðlilegt, að hækkunin hefði komið til framkvæmda fyrr á árinu, t. d. 1. júní eða jafnvel 1. apríl s. l.
Þessi hækkun er gerð samkvæmt till. stjórnarnefndar ríkisspítalanna, og eftir að heilbrmrn. hafði borið sig saman við fjmrn. um, hvað gera skyldi í þessu máli, var samþykkt að verða við tillögum stjórnarnefndar ríkisspítalanna og hækka daggjöldin 1. okt. um 15 krónur.
Um það, hvort þetta borgar sig beinlínis fyrir ríkissjóð eða ekki, þá mun það láta nokkuð nærri, en þó mun ríkissjóður heldur græða á því, að þessi hækkun komi fram, heldur en að hann greiði niður vísitöluna. En eins og ég sagði áðan, er það ekki rétt gagnvart landsbyggðinni að greiða niður daggjöld á ríkissjúkrahúsunum og halda þannig sveitarfélögum og bæjum úti á landi, sem stynja undir þeim þunga, sem á þeim hvílir í sambandi við sjúkrahúsin, í sjálfheldu, því að þau geta ekki tekið öllu hærra gjald en ríkisspítalarnir gera. Það var ekki hægt að ganga fram hjá þessu sjónarmiði. Það þurfti þá að auka styrkinn til annarra sjúkrahúsa um leið, og þá yrði það þungur baggi fyrir ríkissjóð við að glíma. Hins vegar er ekkert undarlegt, þótt daggjöldin hækki á landsspítalanum eða ríkissjúkrahúsunum eftir allar þær hækkanir, sem hafa orðið á þessu ári, og verð ég þó að segja það, að það hefur ekki verið samið um meiri hækkanir en nauðsynlegt var hverju sinni. Það hefur komið fyrir, að það hefur nærri stappað, að verkfall yrði hjá einstökum starfshópum, en það vita allir, að slíkt má ekki fyrir koma á sjúkrahúsum, og verður ríkisvaldið þess vegna oftast að beygja sig fyrir þeim kröfum, sem þar eru bornar fram.