09.11.1955
Sameinað þing: 11. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í D-deild Alþingistíðinda. (2734)
204. mál, daggjöld landsspítalans
Haraldur Guðmundsson:
Það er fullkomlega rétt hjá hæstv. ráðh., að 8 kr. hækkun á iðgjöldum sjúkrasamlags Reykjavíkur stafar ekki eingöngu af hækkun daggjalda á landsspítalanum, enda hvorki gaf ég það í skyn né sagði í fyrri ræðu minni hér, eins og ég veit að hæstv. ráðherra man. Ég hef ekki heldur tölur til að segja nákvæmlega um það, hversu mikill hluti af hækkuninni stafar af daggjaldahækkuninni, en einn sjúkrasamlagsstjórnarmeðlimur upplýsir, að það muni vera um helmingur. Aðrar ástæður til hækkunarinnar er hæstv. ráðh. vel kunnugt um, því að þegar iðgjöld sjúkrasamlags Reykjavíkur voru ákveðin í ársbyrjun eftir þá hækkun, sem þá kom á daggjöldum landsspítalans og á öðrum kostnaðarliðum, var beinlínis skilyrði af hálfu hæstv. ráðherra, að ekki yrði hækkað upp úr 30 kr. iðgjaldið, með hliðsjón af vísitölunni og þeim áhrifum, sem hún hefur, fyrr en heilsuverndarstöðin tæki til starfa og færi að taka á móti sjúklingum.
Nú er hæstv. ráðherra um það kunnugt, var þá og fullkomlega ljóst, hver áhrif iðgjaldahækkun hafði á vísitöluna, og einmitt þess vegna var um það samkomulag, að ekki skyldi hækka iðgjöldin fyrr en heilsuverndarstöðin tæki til starfa sem sjúkrahús. Hún tók til starfa nú í haust, og þá samtímis hófst mænuveikifaraldurinn í Reykjavík, sem eins og mönnum er kunnugt munar allmikið um hvað sjúkrahúskostnað snertir. Og einmitt þessi kostnaður, fjölgun sjúkrarúma vegna heilsuverndarstöðvarinnar og fjölgun sjúklinga vegna mænuveikinnar, á sinn stóra þátt í því með öðru, að ekki nægði að hækka eingöngu með hliðsjón af daggjaldahækkun landsspítalans. Ég ætla, að hæstv. ráðherra megi vera þetta ljóst, þegar hann leiðir hugann að því. En það er fullkomlega rétt, — ég vil enn undirstrika það, — að það er engan veginn öll iðgjaldahækkunin, sem stafar af daggjaldahækkuninni. Hins vegar eru þeir útreikningar um, hvaða áhrif þetta hafi á tekjur og gjöld ríkissjóðs, sem ég gerði grein fyrir hér áðan, eingöngu miðaðir við daggjaldahækkun landsspítalans og þá eingöngu við þá 15 kr. hækkun, sem nú síðast var ákveðin.
Loks vil ég svo mega ítreka það, sem ég sagði í minni fyrri ræðu, að Tryggingastofnunin og sjúkrasamlögin úti um land þóttust mega treysta því, að þær 75 kr., sem ákveðnar voru daggjöld spítalans í fjárlögum fyrir yfirstandandi ár, mundu haldast óbreyttar til loka ársins, eins og gert er um aðra tekjuliði fjárlaganna, þó að nokkrar breytingar hafi orðið á þessu tímabili. Og ég vil endurtaka það, sem ég fyrr sagði, að mig furðar á því, að þessi eini liður skuli tekinn út úr fjárlögunum og hækkaður umfram það, sem gert var ráð fyrir, þegar þau voru afgreidd, ekki sízt þegar þess er gætt, hverjar afleiðingar það hefur fyrir tekjur og gjöld ríkissjóðs, eins og ég gerði grein fyrir áðan.