30.11.1955
Sameinað þing: 18. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í D-deild Alþingistíðinda. (2755)

101. mál, endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir skýr og greinargóð svör við fsp. minni, og þykir mér ekkert á skorta um svörin, nema hvað ég verð að segja, að ég var ekki alveg viss, hvernig átti að skilja það, sem hann sagði varðandi síðasta liðinn, sem hljóðar þannig: Hefur ríkisstjórnin í hyggju að vinna að setningu nýrrar stjórnarskrár? — Hann vísaði þar til þess, sem hann hafði sagt varðandi þriðja liðinn um störf nefndanna og þau álit, sem fyrir lægju frá þeim, en það upplýstist í fyrsta lagi, að þrjár stórar nefndir hafa unnið að endurskoðun stjórnarskrárinnar, hver á fætur annarri, nálega 30 mætir menn virðast hafa tekið þátt í þeim störfum, og þessi endurskoðun hefur tekið hvorki meira né minna en 13 ár. Síðasta nefndin, sú er skipuð var 1947, virðist 'hafa verið með nokkru lífsmarki fram í ársbyrjun 1953, en það var líka síðasta lífsmarkið, sem hæstv. forsrh. gat nefnt frá þeirri ágætu nefnd. Hæstv. ráðh. upplýsti, að fram hefðu komið í þeirri nefnd till. frá tveimur aðilum sem umræðugrundvöllur, en ekkert samkomulag hefði náðst í nefndinni um þessar till., og þá skildist mér, að þar sem það náðist ekki þegar á næsta fundi eða næstu fundum, eftir að till. höfðu verið lagðar fram, hefði nefndin talið eðlilegt að hvíla sig a. m. k. um skeið.

Mér virðist, að sú hvíld sé orðin nokkuð löng, þar sem nefndin virðist ekki hafa komið saman nú nokkuð á þriðja ár, og vil þess vegna ítreka síðasta lið spurningar minnar og beina honum að nýju til hæstv. ríkisstj., hvort hún hafi ekki í hyggju annað tveggja, að æskja þess, að stjórnarskrárnefnd sú, sem ekki hefur enn verið lögð niður, haldi áfram störfum, ellegar þá hvort hæstv. ríkisstj. hefur annað fyrirkomulag í hyggju varðandi undirbúning nýrrar stjórnarskrár. Mér þætti sérstaklega vænt um það, ef hv. forsvarsmenn Framsfl. vildu segja álit sitt á þessu máli. Ég tel fulla ástæðu til þess, að það komi fram, ekki síður en það álit, sem hægt var að lesa út úr ummælum hæstv. forsrh. Það má m. a. á það benda, að það virðist nokkur ástæða til þess að endurskoða stjórnarskrá, sem þannig er úr garði gerð varðandi svo mikilvægt atriði sem kjördæmaskipun, að menn virðast í fullri alvöru vera farnir að ræða um það, að einn stjórnmálaflokkur gæti náð hreinum meiri hluta hér á Alþingi, jafnvel þótt hann hefði ekki að baki sér nema sem svaraði röskum þriðjungi kjósenda. Mér þætti sérstaklega vænt um það, ef hv. forvígismenn Framsfl. vildu, þótt ekki væri nema í fáum orðum, skýra frá afstöðu sinni til þessa mikilvæga máls.