30.11.1955
Sameinað þing: 18. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 423 í D-deild Alþingistíðinda. (2756)
101. mál, endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég taldi mig í rauninni hafa svarað 4. fyrirspurninni með því að gefa um það skýrslu, að innan stjórnarskrárnefndarinnar hefði ekki náðst neitt samkomulag og þ. á m. þá ekki milli þeirra flokka, sem að ríkisstj. standa, þar sem annar flokkurinn leggur til, að haldið sé sérstakt stjórnlagaþing, sem sé kosið til með sérstökum hætti, og stjórnmálaflokkum sé algerlega óheimilt að hafa afskipti af framboðum til þingsins. Ég er nú að vísu ekki forsvarsmaður Framsfl., en geri þó ráð fyrir, að það hafi verið ætlazt til, að við þm. mættum samt hafa kosningarrétt til þingsins. Það, sem ég upplýsti, var, að form. nefndarinnar, Bjarni Benediktsson ráðherra, hefði lagt fram till. frá þremenningunum, sem hér eru svo kallaðir, þ. e. sjálfum sér, Gunnari Thoroddsen borgarstjóra og Jóhanni Hafstein bankastjóra, og óskað hefði verið eftir svörum varðandi undirtektir undir þær tillögur. Þau hafa ekki komið frá neinum nema Framsfl., sem gerði að sinni till., að haldið yrði stjórnlagaþing, sem aftur á móti ekki varð um samkomulag. Það er ekki þess að vænta, að núverandi ríkisstj. beri fram sérstakar till. til úrlausnar á þessu máli, meðan ekki næst samkomulag innan stjórnarflokkanna um málið og jafnmikið ber á milli og þessar till. benda til.