16.02.1956
Sameinað þing: 40. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í D-deild Alþingistíðinda. (2812)

154. mál, glersteypa

Jón Pálmason:

Herra forseti. Ég ætla ekkert að fara að minnast hér á bankamál í þessu sambandi, heldur aðeins segja örfá orð um þingsköp.

Þannig er, að allar götur síðan sú regla var upp tekin hér á Alþ. að bera upp fyrirspurnir, hafa allar fyrirspurnir, sem bornar hafa verið fram, verið leyfðar, og hafa þó oft komið fram mjög víðtækar fyrirspurnir, bæði á þessu þingi og áður, sem vafasamt gæti verið um.

Ég fæ ekki séð, að í þessari fsp. sé neitt það, sem geri það óheimilt, að Alþ. samþ. að leyfa þessa fsp. En þó að Alþ. leyfi eina fsp., þá er þar með ekki neitt um það sagt, hvernig ráðh, eða stjórnin svarar viðkomandi fsp. Ráðherrann eða ríkisstj., hver sem talar fyrir hennar hönd, hefur það auðvitað á valdi sínu. Það er á hans ábyrgð, hvernig hann svarar fyrirspurninni, og ef það er eitthvað ólöglegt við það, sem spurt er um, þá auðvitað sneiðir ráðherrann hjá því, eins og þráfaldlega hefur komið fram, að svara því atriði. Það er á hans ábyrgð.

Hitt hefur verið alveg föst regla hér fram að þessu að leyfa allar þær fyrirspurnir, sem fram hafa verið bornar.