07.11.1955
Neðri deild: 15. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1376 í B-deild Alþingistíðinda. (2864)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Forseti (SB) :
Ég vil aðeins vekja athygli hv. 2. þm. Reykv. á því, að hv. þm. hafa fengið þetta tækifæri. Það hafa talsmenn allra þriggja stjórnarandstöðuflokkanna fengið tækifæri til þess að bera fram fsp. til hæstv. forsrh. (Gripið fram í.) Ég vil endurtaka það, að talsmenn allra stjórnarandstöðuflokkanna hafa fengið tækifæri til þess að bera fram fyrirspurnir og hafa fengið skýrslu frá hæstv. ráðherra. Það er öllum hv. þdm. vitað, að það er ekki til þess ætlazt, að fsp. séu fyrst og fremst bornar fram í þingdeildum, heldur séu þær bornar fram, eins og þingsköp gera ráð fyrir, í Sþ. Það er þess vegna ekki verið að ganga á rétt hv. þm. með því að skera þessar umr. niður. Ég só enga ástæðu til að vera að beita hv. þdm. neinni hörku í þessum efnum, enda hefur það ekki verið gert. Og ég vænti, að hv. þdm. líti með sanngirni á þetta. Þessar umr. verða ekki leyfðar lengur. Umr. utan dagskrár er lokið. Verður gengið til dagskrár.