12.10.1955
Efri deild: 3. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 262 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

8. mál, rithöfundaréttur og prentréttur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta er borið fram í samræmi við tillögur nefndar, sem skipuð var í júnímánuði 1954 í samræmi við rökstudda dagskrá, sem samþ. var í þessari hv. þd. á þinginu 1953–54, og var sú rökstudda dagskrá afgreiðsla þess þings á frv. til l. um breyt. á l. um rithöfundarétt og prentrétt, er lagt hafði verið fyrir Alþingi haustið 1953. Rökstudda dagskráin hljóðaði, með leyfi hæstv. forseta, svo:

„Í trausti þess, að ríkisstjórnin láti þegar rannsaka til hlítar, hvernig reynzt hefur í framkvæmd innganga Íslands í Bernarsambandið, enn fremur, hvernig svo fámenn þjóð sem Íslendingar geti bezt og hagkvæmast skipað gagnkvæmri vernd höfundaréttar, og leggi niðurstöður sínar fyrir næsta þing, svo og geri þær ráðstafanir, sem hún telur að ekki þoli bið, til þess að tryggja rétt íslenzkra höfunda í Bandaríkjunum, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Í samræmi við þessa rökstuddu dagskrá beitti menntmrh. sér fyrir því, að skipuð var nefnd til að kanna þau efni, sem í rökstuddu dagskránni segir, og það, sem athuga þurfti eða þótti þurfa í sambandi við það, og voru af menntmrh. tilnefndir þeir hæstaréttardómararnir Jón Ásbjörnsson og dr. Þórður Eyjólfsson. Bandalag íslenzkra listamanna tilnefndi þá Sigurð Reyni Pétursson hrl. og Tómas Guðmundsson skáld og Bóksalafélag Íslands Gunnar Einarsson prentsmiðjustjóra. Jón Ásbjörnsson var skipaður formaður nefndarinnar.

Þessi n. hefur starfað síðan og skilaði hinn 26. sept. 1955 allýtarlegu nál., sem er prentað sem fskj. með því frv., sem hér liggur fyrir, en í þessu nál. er lagt til, að Ísland gerist aðili að þessu svokallaða Genfarsamkomulagi um höfundarétt, sem undirritað hafði verið 1952. Alþingi hafði að vísu áður, 1953, samþ. að heimila stjórninni að gerast aðill að þessum samningum, en eftir að rökstudda dagskráin, sem ég vitnaði i, hafði verið samþykkt, þótti ekki tilhlýðilegt að beita þeirri heimild, fyrr en nál. og ný samþykkt Alþingis lægi fyrir, vegna þess að nauðsynlega þarf að breyta höfundaréttarlögunum íslenzku, áður en aðild fæst að þessu Genfarsamkomulagi.

Frv., sem nú er lagt fram, er hliðstætt frv., sem lagt var fram haustið 1953 og rökstudda dagskráin var samþykkt við, en þó hygg ég þann mun vera á, að þar var ráðgert, að þýðingar nytu alveg sams konar réttar og önnur rit, en í því frv., sem hér er lagt fram, er ráðgert, að þýðingarnar njóti verndar í 25 ár, en lengri tíma þarf ekki að veita vernd samkv. Genfarsamkomulaginu.

Ég skal ekki fjölyrða um þetta mál á þessu stigi, en eftirtektarvert er, að nefndin, sem er skipuð bæði fulltrúum listamanna og fulltrúa Bóksalafélagsins, sem hafði verið andvígur þátttöku Íslands í slíkum alþjóðasamningum áður, eða a. m. k. dregið í efa, að slík þátttaka væri réttmæt, og loks tveimur hæstaréttardómurum, verður öll sammála um að leggja til, að við gerumst nú aðilar að þessu Genfarsamkomulagi, og virðist enginn ágreiningur hafa komið upp um það í nefndinni, eins og n. virðist einnig vera sammála um það, að ríkisvaldið hafi ekki ástæðu til þess að skipta sér frekar af störfum STEFS en gert hefur verið fram að þessu. En hún var einmitt sérstaklega spurð um það, hvort ástæða þætti til eða mundi vera til, að ríkið léti þau mál frekar til sín taka en áður, eða rétt væri að skipa þeim með öðrum hætti en upp hafði verið tekinn.

Auðvitað bindur sú ákvörðun eða sú till. nefndarinnar, sem hér liggur fyrir, ekki Alþingi, en úr því að Alþingi eða hv. d. hafði óskað eftir rannsókn og fram hefur farið hlutlaus rannsókn í málinu, þá virðist hún óneitanlega hljóta að vera mjög þung á metum.

Á fyrri stigum málsins var nokkuð deilt um það, hvort þetta mál ætti að heyra undir menntmn. eða allshn. Ég hygg, að í Nd. hafi frv. verið lagt fyrir menntmn., en hér í Ed. var það samþ., að hv. allshn. skyldi fjalla um málið, og þar sem allshn. gerði það hér og það var eftir hennar till. eða nefndarhluta úr allshn., sem sú rannsókn var hafin, sem nú liggur fyrir, þá virðist mér eðlilegast, að málið fari að þessu sinni aftur til allshn., þannig að hún íhugi það. Geri ég það að till. minni, jafnframt því sem ég legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. að umræðu lokinni.