05.01.1956
Sameinað þing: 27. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (2870)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vildi leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forsrh., sem jafnframt fer með sjávarútvegsmál, hvenær vænta megi tillagna af hálfu ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir til þess, að létt verði af þeirri stöðvun bæði á vélbátaflotanum og togurum, sem nú er hafin. Einnig vildi ég leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh., hvort ekki hafi verið ætlun hans, að þingmenn andstöðuflokka ríkisstjórnarinnar fengju í hendur álitsgerð hagfræðinganefndarinnar, sem greint var frá hér á seinasta þingfundi. Ég óskaði þess fyrir hönd Alþfl., að þingmönnum hans og öðrum þm. andstöðuflokkanna gæfist kostur á að kynna sér þetta álit, og mér var sagt þá, að það væri ekki til, en engin svör við því, hvort þessir þingmenn mundu fá það í hendur. Nú hef ég það fyrir satt, að þetta álit hafi þá þegar verið til og muni hafa verið látið í té ýmsum þingmönnum stjórnarflokkanna, a.m.k. um það bil sem jólaleyfi var veitt.

Ég vildi gjarnan, að hæstv. ráðh. vildi upplýsa, um leið og hann svarar minni aðalfyrirspurn, hvernig á þessu stendur. Það er tvímælalaust þingréttur þeirra þm., sem eru í andstöðu við hæstv. ríkisstj., að fá í hendur þau gögn og þær upplýsingar, sem hagfræðinganefndin hefur látið ríkisstj. í té, til þess að þeir geti skapað sér skoðun á ástandinu og gert sér grein fyrir, hvað þeir telja líklegastar leiðir til úrbóta, þó að hæstv. ríkisstjórn, eins og ég vel skil, vilji ekki skila tillögum sínum í hendur andstöðunnar, fyrr en hún hefur gengið frá þeim að fullu og getur lagt þær fyrir þingið. — Mér væri þökk á að fá upplýsingar um þetta tvennt frá hæstv. ráðherra.