06.01.1956
Neðri deild: 39. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (2877)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o. fl.
Einar Olgeirsson:
Ég vil leyfa mér að taka undir þá fsp., sem hv. 3. landsk. þm. hefur komið hér fram með viðvíkjandi því, hvað sé að gerast í samtölunum eða jafnvel samningum viðvíkjandi friðunarlínunni og fiskveiðideilunni við Englendinga. Ég verð að segja, að mér finnst fara að horfa heldur óvænlega fyrir Alþingi að fá að fylgjast með í því, sem er að gerast hjá hæstv. ríkisstj., þegar ekkert virðist duga til þess að fá fram svör um önnur eins mál og þessi. Ég bar fram í desember fyrirspurn í Sþ. í tilefni af fréttum, sem þá komu í dagblöðunum um samninga, sem ættu sér stað viðvíkjandi þessum málum. Þessi fsp. var á dagskrá, eins og lög stóðu til, og samkvæmt lögum er viðkomandi ráðherra skyldur til að svara slíkri fyrirspurn viku eftir að hún er borin fram samkvæmt þingsköpum, sem eru lög. Hæstv. ríkisstj. lét sér sæma að brjóta þessi lög, sem sé brjóta lög á Alþingi, brjóta ótvíræðar fyrirskipanir laga um, að ríkisstj. beri að svara um þessa hluti, og þessari fsp. hefur ekki verið svarað enn þá. Svo koma allt í einn í dag fréttir í báðum stjórnarblöðunum um þessi mál, og þá er gengið út frá þessari till., sem Efnahagssamvinnustofnunin sé með, eins og einhverjum sjálfsögðum, alkunnum hlut, sömu till. sem dregið var algerlega í efa að væri nokkur fótur fyrir, þegar önnur blöð fluttu þetta fyrir tæpum mánuði.
Í gær, þegar rætt var hér um þýðingarmikið mál viðvíkjandi sjávarútveginum, gaf hæstv. forsrh., sem um leið er sjútvmrh., það svar, að það mætti ekki eyða dýrmætum starfstíma þingsins í að vera að ræða svona mál eins og sjávarútvegsmál eða stöðvun bátaflotans, það væri hægt fyrir þingmenn að deila á málið, þegar lausnin væri fundin. Ég veit ekki, hvort þetta á að vera lausnarorðið hjá hæstv. ríkisstj., að ríkisstj. eigi í friði að fá að gera þá samninga, sem henni þóknast, síðan láta Alþingi standa frammi fyrir gerðum staðreyndum, láta þingmenn sinna flokka standa frammi fyrir því annaðhvort að gera uppreisn í flokkunum, sem þeir eru yfirleitt mjög ófúsir á, eða þá samþykkja þvert ofan í vilja sinn gerðir ríkisstjórnarinnar, af því að þetta séu þegar orðnar staðreyndir. Ég veit ekki, hvort það er meiningin að viðhafa sömu aðferðina í þessu spursmáli núna viðvíkjandi landhelginni. En ég vil aðeins láta það koma fram, að þetta eru algerlega óviðunandi vinnubrögð, og ef þessir stjórnarflokkar, sem nú sitja að völdum, hafa þá hugmynd, að þeir séu einhverjir sérstakir lýðræðis- eða þingræðisflokkar með því að haga sér svona, þá vil ég segja þeim, að það hafa engir flokkar á Íslandi traðkað eins þingræðið undir fótum og þessir flokkar eru að gera nú með framkomu sinni gagnvart Alþingi.
Ég vil svo mega vænta þess, að hæstv. ríkisstj. gefi nú svör við þessu máli, viðvíkjandi því, hvort standa yfir samningar milli ríkisstj. og Breta út af löndunarbanninu í Bretlandi og friðunarlinunni hér heima, hvort það hafa komið fram till. viðvíkjandi einhverri svokallaðri lausn á þessum málum frá Efnahagssamvinnustofnuninni, hvort það liggi fyrir einhverjar yfirlýsingar frá hálfu Breta og þeirra brezku hringa, sem hafa sett bann undanfarið á okkar landanir þar í Bretlandi, án þess að það yrði okkur að nokkru tjóni, og hvort það hafi yfirleitt verið léð máls á því af hálfu einhverra fulltrúa íslenzku ríkisstj., t.d. sendiherra hennar erlendis, að það kæmi til mála, að íslenzk ríkisstj. léti Breta fara að skipta sér af því, hvers konar lög eru sett á Alþingi, hvort það væri m.ö.o. meiningin eins og í tíð danskra yfirráða hér á Íslandi að binda Alþingi eins og Danir gerðu áður með samningnum við Breta, án þess áður einu sinni að geta Alþingi tækifæri til þess að ræða þessi mál. En ég vil alveg sérstaklega leyfa mér að spyrja, hvort nokkur sendiherra Íslands hafi tekið þátt í slíkum samningum, og það veit ég að hæstv. utanrrh. ætti að geta upplýst, ef a.m.k. einhver sendiherra hefur tekið þátt í slíkum samningum með vitund ríkisstjórnarinnar.
Ég álít óhjákvæmilegt, að það sé nú þegar gefin skýrsla um þessi mál, og ég held, að hæstv. forsrh. hefði vel mátt eyða dýrmætum starfstíma sínum og þingsins í að koma hér í dag. Hann hefur séð þessar fréttir í dag, hann veit um þær fsp., sem áður hafa komið fram, og ég vildi mælast til þess, fyrst hann er ekki við, að þá verði aðrir hæstv. ráðh., annaðhvort utanrrh. eða aðrir, við því að gefa upplýsingar um þetta mál, sem hér er nú búið að spyrjast fyrir um af tveimur þingmönnum og áður er búið að leggja fram löglegar fsp. um í sameinuðu þingi, án þess að svör hafi fengizt þar við.