16.12.1955
Efri deild: 34. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1414 í B-deild Alþingistíðinda. (2963)

Þingfrestun og setning þings

forseti (GíslJ):

Þá er fundarefni þessa fundat lokið og einnig störfum þessarar hv. d. á þessu ári. Ég vil vænta þess að fá leyfi til þess að undirskrifa fundargerðir síðustu fjögurra funda og mun taka það sem samþykkt, ef enginn mælir því gegn.

Ég vil nota tækifærið til þess að þakka hv. dm. fyrir góða samvinnu á þeim tíma, sem liðið hefur hér í þessari hv. d. á þessu ári. Ég vil leyfa mér að óska öllum hv. þm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs og sömuleiðis öllu starfsfólki þingsins. Ég vænti þess, að þeir hv. þm., sem nú hverfa heim, fái góða heimkomu og að við sjáumst allir hér aftur á hinu nýja ári, heilir og hressir.

Ég óska ykkur svo öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.