17.12.1955
Sameinað þing: 26. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (2972)
Þingfrestun og setning þings
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Forseti Íslands hefur í dag gefið út svo hljóðandi forsetabréf :
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Að ég að tilskildu samþykki Alþingis veiti farsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 75. löggjafarþings, frá 17. des. 1955, enda verði þingið kvatt til framhaldsfunda eigi síðar en 5. jan. 1956.
Gert í Reykjavík, 17. des. 1955.
Ásgeir Ásgeirsson.
Ólafur Thors.
Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“ Samkvæmt þessu umboði lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 75. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag að telja, og verður það kvatt til funda að nýju eigi síðar en 5. jan. 1956.
Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.