28.03.1956
Sameinað þing: 54. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (2984)

Þinglausnir

Einar Olgeirsson:

Ég vil í fyrsta lagi leyfa mér, og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þm., að taka undir þær þakkir, sem hæstv. þingforseti hefur borið fram til skrifstofustjóra Alþingis, og ítreka ánægju okkar þingmanna og þakkir fyrir allt samstarfið við hann öll þau ár, sem við höfum átt sæti hér á Alþingi.

Ég vil svo, og ég veit, að ég mæli þar fyrir munn allra hv. þm., þakka hæstv. þingforseta fyrir góð orð og óskir í okkar garð. Við alþm. þökkum hæstv. þingforseta okkar fyrir skörungsskap hans og réttsýni í fundarstjórn. Við þökkum honum fyrir ágætt samstarf við hann, bæði nú á þessu þingi og fyrrum. Við óskum honum góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og árnum honum allra heilla í framtíðinni.

Ég leyfi mér að biðja hv. þm. um að taka undir þessi orð mín og árnaðaróskir og þakkir til hæstv. þingforseta með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]