03.11.1955
Sameinað þing: 9. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í D-deild Alþingistíðinda. (2990)

80. mál, Marshallsamningurinn

Fyrirspyrjandi (Einar Olgeirsson):

Herra forseti. Í svokölluðum Marshallsamningi, sem gerður var 1948, er ákveðið, að 5% af því fé, sem greitt sé inn á hinn sérstaka reikning, sem hér hefur verið kallaður mótvirðissjóður, skuli leggjast til hliðar til ráðstöfunar ríkisstjórnar Bandaríkja Ameríku vegna útgjalda hennar á Íslandi. Þessi 5% hafa síðan verið lögð þarna inn, og mér er að vísu ekki nákvæmlega kunnugt um, hve mikil sú upphæð er orðin, sem þessi 5% hafa numið fyrir þennan tíma, en ég ætla, að það sé eitthvað yfir 20 millj. kr.

Nú sé ég hins vegar nýlega í riti, sem Framkvæmdabanki Íslands gefur út og heitir Úr þjóðarbúskapnum, að þarna virðist hafa orðið einhver breyting á, sem ég fyrir mitt leyti vissi ekki af áður. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta, á bls. 31 í þessu riti, þegar verið er að gefa yfirlit yfir árið 1954:

„Á árinu komu 14 millj. kr. í mótvirðissjóðinn, en það samsvarar svo til þeirri upphæð, sem Bandaríkin notuðu á árinu af hinum sérstaka mótvirðissjóði, er þau ráðstafa sjálf, en sá sjóður hefur myndazt þannig, að upprunalega runnu í hann 5% og seinna 10% af andvirði óafturkræfra framlaga.“

Þetta segir í tímariti Framkvæmdabankans. Nú hafði ég ekki heyrt þetta, það getur verið vegna þess, að ég hef ekki lesið auglýsingar nógu vel í Stjórnartíðindum, að hækkað hefði verið úr 5% upp í 10% það, sem Bandaríkjastjórn fengi til sinna afnota af andvirði óafturkræfra framlaga. Þess vegna hef ég leyft mér að spyrja hæstv. ríkisstj., hvort þetta í fyrsta lagi sé rétt, að þarna hafi verið gerð svona breyting á; í öðru lagi, hvenær þessi breyting hafi verið gerð, og hvort hún sé þá svona, að í staðinn fyrir 5% komi 10%, og hvaða áhrif þetta hafi haft, m. ö. o. hvenær þessi breyting hafi verið gerð og hvað þetta sé mikið fé. Það er ekkert óeðlilegt, að við fáum að vita hér, hvaða upphæð þetta sé, að við vitum, hvenær þetta hefur gerzt og hvað það þýði raunverulega mikið, hvað Bandaríkjastjórn hafi fengið mikið af þeim 400–500 millj., sem Ísland fékk sem óafturkræf framlög til sinna ráðstafana.

Nú vil ég taka fram, að mér skilst svo eftir lögunum, að það sé erfitt að gera þessa hluti, án þess að komi til kasta Alþingis. Marshallsamningurinn sjálfur er að vísu ekki staðfestur með lögum frá Alþingi, en það vöru samþykkt sérstök lög á Alþ. um heimild fyrir ríkisstj. til að taka á móti og ráðstafa framlögum samkv. áætlun um fjárhagslega viðreisn Evrópu, og í 3. gr. þeirra laga, laga nr. 47 frá 25. maí 1949, stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Jafnvirði framlags án endurgjalds í íslenzkum gjaldeyri að frádregnum 5% má ekki ráðstafa nema með samþykki Alþingis.“

Það þýðir með öðrum orðum, að ef hækkað hefur verið úr 5% upp í 10% það, sem rennur til Bandaríkjastjórnar og þeirra fulltrúa hér á landi, þá hefur það verið gert, að mínu áliti, í mótsetningu við þessi lög frá Alþingi.

Ef þetta er rétt, sem Framkvæmdabankinn segir, en ég veit ekkert um, þá virðist mér, að hér hljóti eitthvað að fara á milli mála um, hvort löglega sé að farið. Ég bar þessa fsp. þess vegna fram til þess að fá á hreint, hvort þetta væri rétt og hvenær þá þessi breyting hefur verið gerð og hvaða áhrif hún getur haft, m. a. hvað þetta hefur þýtt í fé til handa sendiráði Bandaríkjanna hér á Íslandi.

Þætti mér ákaflega vænt um, ef hæstv. ríkisstj. gæti upplýst þetta, og hitt er þá aftur annað atriði að athuga með heimildina til ráðstöfunar á þessu fé.