25.10.1955
Neðri deild: 10. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í C-deild Alþingistíðinda. (2994)

33. mál, verðtryggingasjóður

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Mér þykir það athyglisvert, að þessi virðulegi máttarstólpi ríkisstj. skyldi hefja mál sitt á því, að efnahagslífið væri sjúkt. En það er satt, íslenzkt efnahagslíf er sjúkt, og það er sannarlega mikils virði að heyra það játað af einum helzta stuðningsmanni þeirrar ríkisstj., sem hér situr nú.

En hvers vegna er þetta athyglisvert? Jú, minnast menn þess ekki, að það átti að lækna efnahagslífið 1950? Fyrir 5 árum fór fram heljarmikil læknisaðgerð, geysistór skurðaðgerð á efnahagslífinu, skurðaðgerð, sem átti að lækna öll mein efnahagslífsins. Ég veit ekki betur en að síðan hafi ríkisstj. með hóp af sérfræðingum alltaf verið önnum kafin við að lækna efnahagslífið og alltaf sagt okkur hér á hinu háa

Alþ. og allri alþjóð í lok hvers árs, að nú hafi svo og svo mikið verið læknað á liðnu ári. Maður skyldi halda, að sjúklingnum hafi smám saman farið að líða betur og betur og hann væri löngu orðinn albata. En eftir 5 ár stendur hér einn helzti stuðningsmaður hæstv. ríkisstj., maður, sem hefur mikla reynslu að baki í þeim málum, sem hann gerir að umræðuefni, og segir: Allt efnahagslífið er sjúkt, allt er það helsjúkt. — Þetta er dómur sjálfra stuðningsmanna ríkisstj. um það, hvernig henni hafi tekizt að framkvæma stefnu sína, um læknisaðgerðirnar s.l. 5 ár.

En hitt er svo sannarlega ekki síður athyglisvert, hvað þessi hv. þm. leggur til í því skyni að lækna sjúkdóminn. Mætti maður ekki búast við því, að einn af elztu og virðulegustu forvígismönnum Sjálfstfl. legði til að framkvæma stefnu Sjálfstfl. til þess að leysa þann vanda, sem að steðjar í efnahagslífinu?

Er það stefna Sjálfstfl., sem er að finna í þessu frv.? Stefna Sjálfstfl. er frjáls samkeppni, frjálst einkaframtak. Hvernig ætti frv. að hljóða, hver ætti kjarni þess að vera, ef það væri í samræmi við prentaða og margyfirlýsta stefnu Sjálfstfl., a.m.k. fyrir kosningar? Þá ætti auðvitað efni þess að vera, að gengið skyldi vera frjálst, að útflutningurinn skyldi vera frjáls, að innflutningurinn skyldi vera frjáls, líka innflutningurinn á landbúnaðarvörum, þannig að við gætum valið á milli íslenzks kjöts og dansks kjöts t.d. og íslenzks smjörs og hollenzks smjörs og íslenzkra ost og svissneskra osta. Fjárfestingin ætti að vera frjáls, verðlagið ætti að vera frjálst á öllum vörum, líka á landbúnaðarvörum, myndun vaxtanna ætti að vera frjáls, vaxtahæðin ein ætti að takmarka útlánin, þannig að vextirnir yrðu einfaldlega hækkaðir, þangað til eftirspurnin eftir fjármagni minnkaði svo mikið, að útlánin þyrftu ekki að vera meiri en svaraði til innlaganna í bankana, og þar fram eftir götunum. Söguna rek ég ekki lengur; það kannast allir við framhaldið í einstökum atriðum.

Þetta er ekki innihald þessa frv. og fjarri því. Það er ekkert í því, það er varla setning í því, sem minnir á þessa prentuðu og margyfirlýstu stefnu Sjálfstfl. Af hverju ekki? Hvað ber hér til, að þetta frv. skuli vera jafnóskylt sjálfstæðisstefnunni og raun ber vitni? Ástæðan er auðvitað fyrst og fremst sú, að jafnreyndur búhöldur og flm. þessa frv. sér í hendi sinni, að þetta kerfi er ekki framkvæmanlegt á Íslandi, að þetta kerfi mundi ekki vera Íslandi né Íslendingum til góðs. Hann sér m.ö.o., að Íslendingar geta ekki leitað halds og trausts í sjálfstæðisstefnunni til þess að lækna þann sjúkdóm, sem nú er að ríða íslenzku efnahagslífi að fullu.

En ég er ekki heldur fjarri því, að hann sjái líka, og felst í því engin aðdróttun til hv. þm., að framkvæmd þessa kerfis mundi svipta ýmsa valdamenn í efnahagslífinu þeirri aðstöðu og þeim gróðamöguleikum, sem þeir hafa í skjóli einokunarkerfisins, sem við nú eigum sannarlega við að búa í íslenzku atvinnulífi. Hann sér það auðvitað líka með stuðningi af lífsreynslu sinni, að einmitt í skjóli þess kerfis, sem við búum nú við og er sannkallað einokunarkerfi og á lítið sem ekkert skylt við frjálst hagkerfi eða frjáls viðskipti, maka ýmsir einokunarpostular krókinn i stórum stíl, og engir eru í raun og veru svarnari fjandmenn frjálsra viðskipta og frjáls hagkerfis en þessir menn. Þess vegna er í raun og veru ekki heldur við því að búast, að tillögur til framkvæmda á algerlega frjálsum viðskiptum komi frá þeim flokki, sem hefur frjáls viðskipti efst á stefnuskrá sinni, meðan margir helztu máttarstólpar hans hagnast einmitt á því að hafa hér ekki frjáls viðskipti, heldur ýmiss konar einokun.

Kjarni þessa frv. er sá, að ákveða skuli útsöluverð landbúnaðar- og sjávarafurða með sérstökum hætti. Alþ. á að velja 3 menn til þess að ákveða útsöluverð landbúnaðar- og sjávarafurða innanlands. Þessum mönnum yrði falið meira vald en nokkrir 3 menn aðrir hafa fram til þessa fengið f þessu landi. Engir 3 ráðherrar hafa í raun og veru verið jafnvaldamiklir og þessir 3 menn mundu verða. En grundvallarhugsun frv. er sú, að gert er ráð fyrir því, að þeir ákveði útsöluverð landbúnaðar- og sjávarafurða lægra en svarar til þess kostnaðarverðs, sem reiknað yrði út á afurðum landbúnaðarins og sjávarútvegsins. En kostnaðarverðið á, eins og hv. frsm. gerði grein fyrir, að miða í landbúnaði við framleiðslukostnað ríkisbúanna og í sjávarútveginum við framleiðslukostnað bæjarrekinna útgerðarfyrirtækja. Það er sem sagt greinileg hugsun hv. þm., að þetta framleiðslukostnaðarverð muni verða hærra en útsöluverðið innanlands á þessum vörum, landbúnaðarog sjávarafurðum, og útflutningsverðið, þannig að fé þurfi að koma til til þess að greiða þennan mismun. Til þess að greiða hann leggur hv. þm. til, að stofnaður verði verðtryggingarsjóður.

Fram að þessu er hugsun frv. vel athugandi. Í raun og veru er það ekki annað en þetta. sem verið er að gera núna í þjóðfélaginu, ef öllum umbúðum er flett utan af. En mergur málsins er auðvitað sá, hver borga eigi í sjóðinn, alveg eins og mergur málsins í núverandi kerfi er auðvitað sá, af hverjum það fé er heimt, sem nú fer til hinna margvíslegu uppbótagreiðslna.

Kjarni þessa frv. er því raun og veru ekki sú hugmynd að greiða mismun innanlandsverðs og útflutningsverðs annars vegar og einhvers framleiðslukostnaðarverðs hins vegar, því að þetta er raunverulega gert nú, heldur með hverjum hætti það gerir ráð fyrir, að þetta skuli gert, og þar brýtur frv. blað, miðað við það, sem nú á sér stað.

Þótt hv. flm. frv. sé í raun og veru ekki sannur sjálfstæðismaður í þeim skilningi, að hann trúi á hina prentuðu stefnuskrá Sjálfstfl., þá finnst mér tillögur hans um fjáröflun benda til þess, að hann sé sannur sjálfstæðismaður í hinum skilningnum, að hann vill jafnan leggja þyngstu byrðarnar á launamenn landsins. Sannleikurinn er sá, að hvað sem líður öllum stefnuskrám, hefur það verið kjarninn í stefnu Sjálfstfl. alla undanfarna áratugi að leggja ávallt þyngstu byrðarnar af sérhverri nauðsynlegri ráðstöfun á launamennina í landinu, og þessum stefnuskráratriðum er hv. þm. A-Húnv. sannarlega trúr í þessu frv.

Langsamlega mests hluta fjárins í sjóðinn á að afla á þann hátt, að lagður sé 10% skattur á allar launagreiðslur í landinu. Enn fremur er gert ráð fyrir nokkurri annarri tekjuöflun, en hún er smávægileg í samanburði við þær fjárhæðir, sem 10% skattur af öllum launum í landinu mundi nema. Launafólkinu í landinu á m.ö.o. að leggja þá höfuðskyldu á herðar að standa undir lækningunni á þeim sjúkdómi, sem hæstv. ríkisstj. er búin að berjast við árangurslaust s.l. 5 ár. Nú loksins, þegar flm. kemur auga á nauðsyn einnar stórrar aðgerðar, þá skal sú aðgerð vera eingöngu á kostnað launamanna eða svo að segja eingöngu á kostnað þeirra. Árangurslaust leitar maður í frv. að hlut hinna ríku í ráðstöfununum. Árangurslaust leitar maður að ákvæðum um framlag hinna ríku og hinna tekjuháu til lausnar vandamálanna. Hvað skyldu heildsalarnir eiga að leggja af mörkum? Um það er ekki orð í frv. Hvað skyldu stórútgerðarmennirnir eiga að leggja af mörkum? Um það er ekki heldur orð. Hvað skyldu fasteignaeigendurnir eiga að leggja af mörkum? Ekkert orð. Hvað skyldu stóriðjuhöldarnir eiga að taka á sínar herðar? Um það finnst enginn stafur. Hvað skyldu verðbólgubraskararnir, sem hæstv. fjmrh. talaði um við 1. umr. fjárl., eiga að láta af hendi rakna? Ekkert. Og þó! Ef til vill segi ég hér helzt til mikið, að þeir eigi ekkert að leggja af mörkum. Hv. þm. sagði áðan, að ef slíkir menn séu launamenn, þá skuli þeir borga 10% af launum sínum. Það vita allir, hvað þessir heiðursmenn taka í bein laun. Heildsalarnir eru ekki hálaunaðir, eða stórútgerðarmennirnir eða iðjuhöldarnir og þá ekki fasteignaeigendurnir eða verðbólgubraskararnir. Launin eru ekki tekjulind þeirra, heldur gróðinn, heldur hagnaðurinn. En þeir eiga að borga 10% af sínum launum, og ef ekki er hægt að komast að raun um, hvaða laun þeir hafi haft, eins og oft mun vera mjög erfitt um t.d. verðbólgubraskarana, eiga þeir að borga eins og Dagsbrúnarverkamaður. M.ö.o.: Verðbólgubraskarar hæstv. fjmrh. og þeir allir saman eiga að borga eins og Dagsbrúnarverkamaður, hlutur hvers á að vera jafn hlut Dagsbrúnarmannsins nú, þegar á með einu pennastriki að lækna sjúkdóma íslenzks efnahagslífs. Það eru hátt á annað hundrað milljónamæringar hér í Reykjavík. Væri ekki eðlilegt að búast við því, þegar gripið er til stóraðgerða, að sérstakar ráðstafanir væru gerðar til þess, að þeir legðu sanngjarnan hlut af mörkum til slíkra aðgerða? Um það er ekki orð. Ef ekki er hægt að komast að raun um laun þeirra, eiga þeir að borga eins og Dagsbrúnarverkamenn.

Þetta tel ég vera meginágallann á þessu frv. Þetta tel ég vera það, sem gerir frv. og grundvallaratriði þess óviðunandi fyrir launastéttirnar í landinu. Þeirri hugsun frv. að afnema bátagjaldeyriskerfið get ég fagnað og fagna sérstaklega, að fram skuli komin skýr og ótvíræð till. um það frá einum af helztu stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj. En á það, sem á að koma í staðinn fyrir bátagjaldeyriskerfið, eins og launaskattinn, get ég ekki fallizt, því að það tel ég vera andstætt hagsmunum launamanna í landinu, og launamenn í landinu eru yfirleitt sú stéttin, sem tiltölulega minnst ber úr býtum fyrir sín störf og við minnst öryggi býr af öllum stéttum í þjóðfélaginu, ef þeir eru teknir sem heild.

Ef þetta frv. hefði verið frv. um afnám bátagjaldeyriskerfisins og jafnvel um afnám þeirra annarra ákvæða, sem þarna er um að ræða, og í frv. hefðu verið víðtækar till. um öflun fjár í verðtryggingarsjóð, þar sem gert væri ráð fyrir, að allar stéttir legðu hlutfallslega jafnt til sjóðsins, en þó auðvitað helzt þannig, að þyngstu byrðarnar yrðu lagðar á þá ríku og hina efnaháu, en tiltölulega minnstu byrðarnar á hina tekjulágu og hina snauðu, þá hefði frv. verið mér margfalt meira að skapi en það er. Ef í frv. hefði verið ákvæði um að lækka álagningu, um að draga úr gróðanum í útflutningsverzluninni, draga úr gróðanum i iðnaðinum og í innflutningsverzluninni, að draga úr gróða verktakanna í landinu, þá hefði frv. verið mér meira að skapi en það er. Eins og er, fæ ég ekki betur séð en gert sé ráð fyrir því að leysa þann sjúkdóm, sem nú sannarlega þjáir íslenzkt efnahagslíf, einvörðungu á kostnað launþeganna í landinu, og við slíkt frv. get ég ekki lýst fylgi mínu.