26.03.1956
Efri deild: 96. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (2995)
89. mál, almannatryggingar
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls hafði ég ekki ástæðu til að vera viðstaddur og gat því ekki tekið þátt í umræðunum þá. Mér þykir því rétt, áður en ég vík að einstökum brtt., að fara nokkrum orðum um það, hverjar eru þær meginbreytingar, sem í þessu frv. felast frá gildandi löggjöf.
Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir því, að ellilífeyrir hækki um hér um bil 10% frá því, sem hann var á s.l. ári, til samræmis við þá hækkun, sem orðið hefur á launum opinberra starfsmanna, þannig að grunnlaunaupphæðirnar verði nú 30% hærri en þær voru ákveðnar í upphafi.
Einnig er gert ráð fyrir því, að skerðingarákvæðin, ákvæðin um skerðingu lífeyris vegna tekna, séu rýmkuð mjög verulega frá því, sem nú er, og að sú takmörkun, sem var sérstaklega á lífeyrisgreiðslum til þeirra, sem taka lífeyri úr opinberum sjóðum eða samkvæmt fjárl., verði felld niður, en hin almenna skerðing vegna tekna gildi einnig um þessa menn.
Þá er gert ráð fyrir því, að í stað þess að áður var heimilt að hækka lífeyrinn um 40% vegna umönnunarþarfa eða hjúkrunar, sé nú heimilt að hækka lífeyrinn um allt að 100%, þó að því tilsettu, að 2/5 hlutar af hækkuninni séu bornir af hlutaðeigandi sveitarfélagi, og enn fremur sett ákveðin takmörk fyrir því, hve miklu Tryggingastofnunin megi verja af fé sínu í þessu skyni. Ég skal nú ekki fjölyrða um þá breytingu, að sveitarfélögin taki á sig hluta af þessari hækkun, en aðeins vekja athygli á því, að það er gert að ósk ýmissa sveitarfélaga og með samþykki þeirra, sem telja, að með því að hækka lífeyrinn á þennan veg verði unnt að komast hjá, að ýmsir þeir njóti fátækrastyrks, sem nú njóta framfærslustyrks.
Þá er einnig gert ráð fyrir því í frv., að mæðralaunin séu lagfærð mjög frá því, sem nú er, og hækkuð allverulega, úr 1 milljón upp í hátt á þriðju milljón.
Þá er einnig gert ráð fyrir því, að fæðingarstyrkurinn sé hækkaður frá Tryggingastofnuninni og verði jafn, hvort sem um er að ræða fæðingu utan sjúkrahúsa eða innan, en hins vegar létt af sjúkrasamlögunum þeirri skyldu, sem nú er á þeim, að greiða nokkurn fæðingarstyrk.
Þá er enn fremur aukinn mjög réttur mæðra til barnalifeyris, þannig að sú takmörkun, sem áður var á greiðslum lífeyris til ógiftra mæðra, ekkna og fráskilinna kvenna, ef þær giftust á ný, svokölluð þriggja ára regla, er nú felld niður, og leiðir af því, að lífeyrísgreiðslur til slíkra mæðra, sem giftast á ný, eru teknar upp aftur, og munar það verulegum upphæðum, sem kemur fram sem hækkun á barnalífeyri af þeim sökum.
Einnig er gert ráð fyrir, að slysabætur séu hækkaðar verulega, sérstaklega dagpeningarnir. Eru þá upptalin höfuðatriði þess, sem lýtur að endurbótum á tryggingunum með tilliti til ákvæðanna um þau réttindi, sem veitt eru, og þeirra bótagreiðslna, sem lögin gera ráð fyrir.
Aðrar breytingar, sem gert er ráð fyrir á l., eins og t.d. að flytja sjúkradagpeningagreiðslur til sjúkrasamlaganna og stofna þar héraðssamlög, eru meira skipulagsatriði, sem ekki snerta beinlínis hag hinna tryggðu.
Þessi atriði, sem ég fyrst nefndi, má án efa telja til bóta á löggjöfinni, þó að í ýmsum atriðum sé þar skemmra gengið en æskilegt væri.
Á móti þessu kemur svo hitt, að niður er fellt samkv. frv. ákvæðið um, að greiða skuli fjölskyldubætur með öðru barni í fjölskyldu, og fjölskyldubætur greiðast samkv. frv. ekki fyrr en með þriðja barni.
Ég var á sínum tíma ekki sérlega ákafur í, að fjölskyldubótagreiðslur yrðu teknar upp með öðru barni, en ég tel, að eftir að einu sinni er búið að taka þetta upp, sé stórt spor aftur á bak að feila þetta niður, sérstaklega með tilliti til þess, þegar iðgjöld hækka samtímis og hlutur þeirra tryggðu í kostnaði við tryggingarnar er heldur aukinn, eins og ég mun sýna fram á.
Einnig munu sumir telja það til galla á frv., að hér er gert ráð fyrir, að heilsugæzlukaflinn verði felldur niður, sjúkrasamlögin haldi áfram að starfa sérstaklega og að um heilsuverndina fari eftír sérstökum lögum, sem sett voru á siðasta þingi og gert er ráð fyrir að verði breytt og. endurbætt síðar.
Um þetta atriði vil ég segja það, að því miður verður að játa, að enn er ekki svo komið, að skilyrði fyrir framkvæmd heilsugæzlukaflans, eins og hann er í gildandi lögum og hefur verið frestað, eru ekki fyrir hendi. Það er ekki til neins að loka augunum fyrir þeirri staðreynd, maður verður að játa það, og því er eins og sakir standa nú að minni hyggju þýðingarlaust að halda kaflanum í lögunum. Að óbreyttu er sennilega ókleift að framkvæma þennan kafla eins og lögin ætlast til.
Þetta eru í höfuðdráttum þær breytingar, sem gerðar eru á gildandi löggjöf, og ég ætla, að ég megi segja, að það hafi verið samstarf um það hjá meiri hluta n., öllum nm. nema mér, sem unnu að þessu, að fjárhagsgrundvöllur trygginganna breyttist ekki verulega við samþykkt þessa frv. frá því, sem hann hefur verið samkvæmt gildandi lögum, þ.e.a.s., að sú heildarupphæð, sem rynni til trygginganna, breyttist ekki verulega, því, sem sparaðist á einu sviðinu með niðurfellingu fjölskyldubóta, skyldi svo varið til annarra breytinga á l. og endurbóta, einmitt þeirra, sem ég nefndi, en heildarupphæðin ekki breytast að ráði. Að vísu er það nú svo, að hækkunin nemur nokkru meiru en því, sem gjöldin lækka við að feila niður fjölskyldubætur með öðru barni, en það eru þó ekki nema tiltölulega lágar upphæðir, sem þar er um að ræða. Hitt atriðið, sem ekki er þýðingarminna varðandi fjárhagsgrundvöll trygginganna, er það, að allir í mþn. nema ég voru fastákveðnir í því; að skipting kostnaðarins niður á þá aðila, sem bera hann uppí, skyldi haldast nokkurn veginn óbreytt frá því, sem er í gildandi lögum, og við það eru ákvæði frv. miðuð. Ég tel þetta hvort tveggja miður og hef því lagt fram brtt. varðandi þessi tvö atriði og gert nokkuð grein fyrir því í séráliti, sem fylgir grg. frv. frá hendi hæstv. ríkisstj. og mþn.
Þegar almannatryggingalöggjöfin var sett árið 1946, var sagt og með réttu, að í heild sinni mætti segja, þegar ekki var tekið tillit til atvinnuleysistrygginganna, sem ekki eru í þeirri löggjöf, værum við í fremstu röð hvað tryggingar snerti. Norðurlöndin yfirleitt eru einna fremst í þessum efnum, og við vorum þar fullkomlega í sömu röð og þau, sem lengst voru komin í þessum efnum þá. Síðan eru liðin um 10 ár, og löggjöfinni á Norðurlöndum hefur verið breytt talsvert verulega til hagsbóta fyrir almenning, sem trygginganna nýtur, sérstaklega að því er snertir það, hverjir aðilar bera uppi þann kostnað, sem tryggingarnar hafa í för með sér. Og mér þykir miður að verða að segja það, að þó að þetta frv. verði samþ., vantar talsvert á, að við höfum fylgt þeim framförum og þeirri framþróun, sem orðið hefur í þessum efnum hjá grannlöndum okkar hér á Norðurlöndum.
Eitt atriði þykir mér rétt að benda hér á enn, sem talsvert miklu máli skiptir í sambandi við þær breytingar, sem gert er ráð fyrir í frv.
Samkv. gildandi lögum ber ríkissjóður ábyrgð á skuldbindingum Tryggingastofnunarinnar, og ég minnist þess, að þegar lögin voru samþykkt, var talið, að hér væri efnt til svo mikilla og stórfelldra útgjalda og röskunar á fjárhagskerfi þjóðarinnar, eins og það þá var orðað, að ríkissjóði mundi stafa veruleg hætta af þessari ábyrgð. Nú er svo komið eftir þetta tíu ára starf, að n. er á einu máli um, að óhætt sé að fella niður ríkisábyrgðina fyrir skuldbindingum stofnunarinnar, þannig að telja má víst, að sá grundvöllur, sem nú er starfað á í þessu efni, sem tryggingarnar byggja á, sé orðinn það traustur, að allur almenningur og hv. Alþ. þá um leið viðurkenni, að þær eigi með skynsamlegri löggjöf að geta nokkurn veginn fengið tryggt fjárhagslegt öryggi. Og einmitt sú breyting, sem hv. frsm. drap á í framsöguræðu sinni hér, að framlög og iðgjöld eru ekki framvegis ákveðin í fastri krónutölu, heldur sem hlutfallsskipting á kostnaðinum, veitir það öryggi í þessu efni, sem hægt er að veita með löggjöf.
Ég skal svo láta þennan inngang nægja og víkja að þeim brtt., sem ég ber fram á þskj. 582, en vísa að því er þær aðrar till. snertir, er ég er riðinn við, til þess, sem fram kom í ræðu hv. framsögumanns.
1. brtt. mín á þskj. 582 lýtur að upphæð elli- og örorkulífeyris. Í frv. er, eins og ég áðan sagði, gert ráð fyrir því, að lífeyrisupphæðin sé 4680 kr. fyrir einstaklinga fyrsta verðlagssvæðis. Það er rétt, að það er sama grunnhækkun á þessari upphæð og talið er að opinberir starfsmenn hafi fengið á laun sín á þessu tímabili, rétt 30%. Ef aftur á móti lífeyrisupphæðin er borin saman við almennar tekjur verkamanna, t.d. Dagsbrúnarmanns hér í Reykjavík, kemur það í ljós, að lífeyrisupphæð, sem einstaklingi er ætluð, 4680 kr. í grunn eða rösklega 8100 kr., eins og nú er, nemur ekki nema tæpum 20% eða fimmta hluta af meðaltekjum Dagbrúnarmanns. Ég verð að telja, að þetta sé ákaflega lágt, og samanborið t.d. við Norðurlöndin er hlutfallið milli lífeyris og almenns kaupgjalds óhagstætt, ef þessi gr. verður samþykkt óbreytt. Ég legg til, að þessi upphæð verði hækkuð fyrir einstakling upp í 5000 kr., eða um hér um bil 8%, og mundi þá láta nærri, þegar sjúkrasamlagsiðgjaldið er talið með, að lífeyrisupphæð einstaklings nálgist allt að fjórða hluta af venjulegu Dagsbrúnarkaupi, en það tel ég að í raun og veru þyrfti að miða við, ef vel ætti að vera.
Aðrar brtt. við 13. gr. eru afleiðingar af b-lið, hækkun á einstaklingslífeyri, og gera ráð fyrir hlutfallslega sömu hækkun. Ég skal geta þess, að ég hef orðað það við hv. meðnm. mína í heilbr.- og félmn., hvort þeir vildu ekki fallast á að hækka, þótt ekki væri nema upp í 4800 kr., lífeyrisupphæðina, en um það hefur ekki getað orðið samkomulag, og held ég því við þessa till. mína um 5000 kr. fyrir einstakling og 8000 kr. fyrir hjón, en 5000 kr. fyrir einstakling þýðir með núverandi vísitölu nálægt 9000 kr. og hjónalifeyririnn á sama hátt milli 14 og 15 þús. kr.
Þá er 2. brtt. mín á sama þskj. Hún er þess efnis, að horfið verði frá því að fella niður fjölskyldubótagreiðslur til annars barns, en það verði tekið upp í frv. á ný eins og það er í núgildandi lögum.
Ég drap á það áðan, að ég taldi, þegar þetta var lögtekið á sínum tíma, að það hefði legið jafnvel öllu meira á öðrum breytingum á tryggingalögunum en þessari. En þegar þetta einu sinni er komið inn og fólk farið að reikna með þessum tekjum, er ákaflega erfitt, ég vil segja ógerlegt, að taka þær í burtu, nema á móti komi veruleg aukning á öðrum sviðum. Ef t.d. hefði verið um að ræða verulega aukningu á ellilífeyri eða hækkun á fjölskyldubótum til annarra barna en annars barns, t.d. með þriðja barni, gat það litið öðruvísi út, eða í þriðja lagi, ef hægt hefði verið að mæta þessu með því að lækka iðgjöld hinna tryggðu frá því, sem gert er ráð fyrir í frv., en það er ákaflega örðugt fyrir fjölskyldu með tvö börn eða fleiri, sem missir þær bætur, sem hún hefur reiknað með til þessa, og samtímis tekur þá hækkun á iðgjaldagreiðslum, sem gert er ráð fyrir hér í frv. Ég verð því að leggja til, að inn verði tekin í frumvarpið aftur fjölskyldubótagreiðsla með öðru barni, eins og verið hefur.
3. brtt. er sú, að ellilífeyrisþegi, sem missir maka sinn, skal hljóta dánarbætur, 1200 kr., og sama skal gilda um örorkulífeyrisþega, ef hann er orðinn 67 ára. Nú eru greiddar dánarbætur til ekkna undir 67 ára aldri, þegar maki þeirra deyr, 3 mánuði, ef ekkjan hefur ekki fyrir börnum að sjá, en 12 mánuði, ef hún hefur fyrir börnum að sjá, og greiðist það í viðbót við barnalífeyri, sem hún hlýtur.
Ég tel, að það sé fyllsta nauðsyn að greiða lífeyrisþega — og margir þeirra, kannske flestir, hafa litlar eða engar tekjur aðrar en lífeyrisupphæðina — nokkrar bætur, þegar makinn deyr, þótt ekki væri vegna annars en þess kostnaðar, sem á hann fellur við útför og annað þess háttar. 1200 kr. með núverandi vísitöluuppbót nema 2100 –2200 kr., og það er sú upphæð, sem lagt er til að makinn fái, hvort sem er karl eða kona, þegar eiginkona eða eiginmaður fellur frá, og sama skuli örorkulífeyrisþegi, sem orðinn er 67 ára, einnig hljóta. Þetta kostar tiltölulega lítið. Ég ætla, að það sé milli 200 og 250 þús. kr. í hæsta lagi á ári, sem gera mætti ráð fyrir að kostnaður trygginganna ykist af þessum sökum, en það er töluverður léttir fyrir margt fólk, sem verður fyrir því óláni að missa maka sinn, eftir að þessum aldri er náð.
Þá er 4. brtt. mín, við 24. gr., og er þar gert ráð fyrir, að framlag sveitarsjóðs til uppbótagreiðslna Tryggingastofnunarinnar verði helmingurinn í staðinn fyrir 2/5, eins og gert er ráð fyrir í frv.
Eins og ég vék að í upphafi máls míns, er sú breyting gerð frá gildandi ákvæðum, að í stað þess, að nú má greiða allt að 40% uppbót á lífeyrinn, þegar um umönnunarþörf eða hjúkrunarþörf er að ræða, á nú samkv. frv. að greiða allt að 100% uppbót eða fast að tvöföldum lífeyri, ekki aðeins þegar um hjúkrunarþörf eða umönnun er að ræða, heldur líka ef um er að ræða einstæðing, sem ekki dvelur í heimili með skyldmennum, kunningjum eða nánum vandamönnum, heldur þarf að sjá sér einn farborða, leigja sér húsnæði, kaupa sér fæði eða allt til sinna þarfa, enda viðurkennt, að einmitt fyrir slíka menn er lífeyririnn alveg ófullnægjandi. Það liggur því í hlutarins eðli, að þar sem svið þeirra, sem uppbæturnar má greiða til, víkkar svo mikið, þarf að vera um verulega upphæð hér að ræða, ef hún á að koma að nokkru verulegu haldi.
Í frv. er gert ráð fyrir því, að Tryggingastofnunin megi verja sem svarar 7% af upphæð elli- og örorkulífeyris í þessu skyni, eða samkv. þeim áætlunum, sem gerðar eru fyrir árið 1956, rétt í kringum 5 millj. kr. Ef sveitarsjóðirnir leggja fram á móti þessu aðeins 2/5, er heildarupphæðin, sem um er að ræða þarna, ekki nema 8.7 millj. kr. eða eitthvað nálægt því. Ég hygg, að sú upphæð sé varla það há, að hún geti talizt fullnægjandi, ef gert er ráð fyrir, að einstæðingum verði veittur þessi styrkur, eins og gert er ráð fyrir núna í frv. Ég verð því mjög að leggja áherzlu á það, að sveitarfélagið greiði jafnt á móti og Tryggingastofnunin leggur fram til þessara uppbóta. Það hefur komið ósk um það frá sveitarfélögunum, að þau fengju að fylgjast með og hafa nokkuð hönd í bagga með um þessar uppbótagreiðslur, því að það hefur að sjálfsögðu mikil áhrif á það, hvort þörf er á að veita hlutaðeigandi framfærslustyrk eða ekki. Ég held því, að eigi þetta að koma að verulegu haldi og eigi sveitarstjórnirnar að geta reiknað með, að verulegur hluti af framleiðslunni hverfi af þeim með þessu breytta fyrirkomulagi, sé sjálfsagt að hækka þetta framlag þeirra upp í jafnt og framlag ríkissjóðs.
Enginn vafi er á því, að þrátt fyrir það að þessu sé breytt þannig, mun hlutur sveitarfélaganna, þ.e.a.s. framfærslubyrðin, lækka fullkomlega sem því svarar, sem sveitarfélögunum er ætlað að leggja fram í þessu skyni.
Þá vík ég að þeirri till., sem ég tel í sjálfu sér veigamesta, það er brtt. mín við 25. gr., 5. brtt. á þskj. 582.
Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir því, að útgjöld trygginganna séu borin í þeim hlutföllum, sem í 25. gr. segir, þ.e.a.s., að ríkissjóður greiði 33%, tryggðir 33%, sveitarsjóðirnir 19% og atvinnurekendur 15%. Ég legg til, að þetta breytist þannig, að ríkissjóður greiði 40%, þeir tryggðu 30%, sveitarsjóðirnir 15% og atvinnurekendur 15%. Af þessu mundi leiða það, ef till. mín yrði samþykkt, að hlutur ríkissjóðs mundi hækka um 8–9 millj. kr., miðað við þá útreikninga, sem fylgja frv. Hlutur hinna tryggðu mundi lækka um 4–41/2 millj., eða rösk 10%, og sveitarsjóða og atvinnurekenda nokkuð, samtals um hér um bil 4 millj. kr.
Í þessu sambandi þykir mér rétt að benda á það, að samkvæmt þeim yfirlitstöflum, sem fylgja frv., er gert ráð fyrir því, að heildarskipting kostnaðar vegna trygginganna, þar með talin sjúkratryggingin og slysatryggingin, er gert ráð fyrir að verði sú, að ríkissjóður greiði 28.1 %, hinir tryggðu greiði 38.5%, sveitarsjóðir 18.4% og atvinnurekendur 15%. Hér hefur hlutfallið breytzt nokkuð frá því, sem gert var ráð fyrir í upphafi, jafnvel þó að tekið sé tillit til þess, sem tafla 5 á bls. 43 á þskj. 99 sýnir, þegar litið er á það, að ríkisframfærslan hvílir að mestu leyti á ríkissjóði og að nokkru leyti á sveitarfélögunum. Eins og ég drap á áðan, hefur þróunin í grannlöndum okkar orðið sú, að hlutur hins opinbera hefur verið aukinn í kostnaði við tryggingarnar, en hlutfallslega minnkaður sá hlutur, sem hinir tryggðu greiða. Við förum í raun og veru öfugt að hér. Það þyngist heldur hlutur hinna tryggðu við þær breytingar, sem hér eru gerðar, þó að ekki muni það miklu, 33.6% á móti 34.4% hjá hinum tryggðu, 33.6% hjá ríkissjóði í staðinn fyrir, að gert var ráð fyrir áður, að það yrði jafnt hjá þessum tveimur aðilum.
Þegar litið er á hlutfallaskiptinguna, ber einnig að líta á, hvað iðgjöld yrðu samkvæmt þessari hlutfallaskiptingu há, sem hinir tryggðu greiða, og er þá ekki nóg að líta eingöngu á lífeyristrygginguna eða Tryggingastofnunina sjálfa.
Samkvæmt þeim áætlunum, sem fylgja hér með og eru miðaðar við vísitölu 173, sem er sýnilega allt of lágt nú, er gert ráð fyrir því, að iðgjöld fyrir kvæntan karl í Rvík verði um 925 kr. Sjúkrasamlagsiðgjöld í Rvík má reikna með að verði ekki minna en 480 kr. fyrir mann eða um 960 kr. fyrir hjónin. Er þá samanlagt iðgjald kvænts manns á fyrsta verðlagssvæði, t.d. hér í Rvík, 925 + 960 kr., eða rétt í kringum 1885 kr. á ári. Hins vegar nema 4% af 42 þús. kr. tekjum, sem má reikna Dagsbrúnarmönnum nú, ef þeir hafa fullan vinnutíma 300 daga á ári, ekki nema um 1680 kr. Mér finnst ákaflega erfitt að ætla mönnum að greiða í tryggingagjöld meira en sem svarar 4% af launum sínum, þó að inni í þessu séu falin sjúkrasamlagsiðgjöld og annað, sem því fylgir, þegar svo þess er gætt, að ýmis heimili greiða auk útgjalda fyrir hjónin sjálf iðgjöld fyrir unglinga á aldrinum 16–21 árs, sem sumir hafa litla eða enga atvinnu, en þess verður að gæta að spenna ekki bogann svo hátt í þessu efni, að iðgjöldin verði úr hófi fram þungur baggi á þá, sem eiga að bera þau, úr því að sú leið er nú farin, sem hér er, að hafa iðgjöldin ákveðin á einstaklinga, en ekki miðuð við tekjurnar, sem þeir njóta. Yrði mín till. samþ. um að breyta hlutföllunum eins og að framan er gert ráð fyrir í aðaltill., mundu iðgjöldin geta lækkað hér um bil niður í það að verða ekki fram yfir 4% af meðaltekjum Dagsbrúnarmanna hér í Reykjavík, og það álit ég að ætti að miða við.
Ég hef til vara gert þá till., að hlutur sveitarsjóða og atvinnurekenda yrði svo til hinn sami og gert er ráð fyrir í frv., en tilfærslan yrði aðeins gerð á milli ríkissjóðs og hinna tryggðu, þannig að ríkissjóðsframlagið hækkaði upp í 36% og hinna tryggðu niður í 30%. Það mundi hafa sömu áhrif á iðgjöldin og ég gerði ráð fyrir áðan, en ekki breyta framlagi sveitarsjóða eða atvinnurekenda sem neinu næmi, en þetta mundi þýða rösklega 4 millj. kr. á framlagi ríkissjóðsins.
Þá hef ég brtt. við 28. gr., þar sem kveðið er á um iðgjöldin. Hún er þess efnis, að iðgjöld unglinga á aldrinum 16–20 ára, annarra en þeirra, sem vinna fulla vinnu, verði ekki ákveðin nema hálft iðgjald hinna fullorðnu. Það er enginn vafi á því, að fyrir heimili, þar sem börn eða unglingar eru á þessum aldri, sem annaðhvort eru við nám eða af öðrum ástæðum hafa ekki atvinnu nema lítinn hluta af árinu, er þetta býsna þungur baggi á heimilið og hin mesta nauðsyn þess vegna að létta á þessu. Að sjálfsögðu mundi það kosta að öðru óbreyttu í frv., að tilsvarandi hækkun til að mæta þessu þyrfti að koma á iðgjöld hinna fullorðnu.
7. brtt. mín er við 39. gr., þ. e. dánarbætur slysatrygginganna. Á árinu 1953 var lögtekið að greiða viðbótarbætur til eftirlátinna vandamanna þeirra lögskráðra sjómanna, sem fórust af slysum við vinnu sína. Ég benti á það strax, að óstætt væri að minni hyggju á að mismuna aðstandendum þeirra, sem falla frá vegna slysa við vinnu sína, eftir því, hvort maðurinn hefði farizt á sjó eða landi, ef ástæður hinna eftirlifandi, ekkju og barna og annarra vandamanna, væru hinar sömu í báðum tilfellum. Ég er sömu skoðunar enn og legg því til, að þær dánarbætur, sem í lögum eru nú ákveðnar fyrir eftirlátna vandamenn sjómanna, skuli gilda almennt fyrir eftirlifandi vandamenn þeirra, sem látast af slysförum við vinnu sína. Þessi hækkun, þó að hún sýnist nokkur á pappírnum, á dánarbótum iðntryggingarinnar, sem tryggir þá, sem vinna í landi, er ekki mjög kostnaðarsöm, miðað við þá reynslu, sem við höfum af undanförnum árum. Dánarslys við störf í landi eru svo miklu, miklu færri en á sjónum, að tiltölulega lítil hækkun á iðgjöldum iðntryggingarinnar nægir til að standa straum af þessu. Ég ætla, að ekki þyrfti að hækka nema eitthvað milli 7 og 8% iðgjöldin til iðntryggingarinnar til þess að standa undir þessum kostnaði. En ég fæ ekki séð neitt réttlæti í því, að ekkjur og aðrir vandamenn manns, sem ferst af slysförum, nemi ekki nema röskum þriðjungi í öðru tilfellinu á við það, sem ekkja fær, sem býr við alveg nákvæmlega sama efnahag í hinu tilfellinu, þegar um sjómann er að ræða. Það er að sjálfsögðu tryggingin fyrir þá, sem lifa eftir, sem ber að meta í þessu sambandi, og þörfin á bótum, en ekki það, hverjar ástæður voru til þess, að fyrirvinnan féll frá.
8. brtt. er afleiðing af 7. brtt. Ef hún verður samþ., fellur gr. niður. En brtt. verður að sjálfsögðu tekin aftur, ef 7. till. er ekki samþykkt.
9. brtt. mín er þess efnis, að sjúkrasamlögum skuli skylt að endurgreiða hinum tryggða þá upphæð, sem greiðslur hans til lækna samkvæmt 53. gr. fyrir hann og fjölskyldu hans fara fram úr ársiðgjaldinu. Nefndin tók upp — ég held mér sé óhætt að segja í samráði við eða að tilmælum læknanna — ákvæði um, að á fyrsta verðlagssvæði skyldi greiða 5 kr. fyrir hvert viðtal á stofu og 10 kr. fyrir hverja vitjun til þess, að því er læknarnir sögðu, að draga úr því, að fólk leitaði að óþörfu til lækna, sem þeir hafa mjög kvartað undan og að einhverju leyti kann kannske að hafa við rök að styðjast, þó að ég haldi, að fullmikið sé úr þessu gert. Ég vildi ekki setja mig á móti, að gengið væri til móts við þessar óskir, í von um, að auðveldara væri að ná samningum við læknana að þessari breytingu gerðri. En það liggur í augum uppi, að slíkar greiðslur mega aldrei verða svo miklar, að þær íþyngi heimilinu verulega, og því er till. mín sú, að ef greiðslur til læknisins á árinu fara fram úr upphæð, sem jafngildir ársiðgjaldi, skuli samlagið endurgreiða gegn kvittun það, sem umfram er. Ég legg á það mikla áherzlu, að þessi endurgreiðsluskylda sé upp tekin, því að annars getur svo farið, ef um veikindi er að ræða hjá stórri fjölskyldu, að þessi læknakostnaður geti bakað verulega fjárhagslega örðugleika fyrir fjölskylduna, en einmitt slíku er tryggingunum ætlað að afstýra.
Seinasta brtt. er við 84. gr., þess efnis, að síðasti málsliður málsgr. falli niður, en efni þessa málsliðs er það, að hinir opinberu lífeyrissjóðir og aðrir, sem löggildingu fá samkvæmt tryggingalögunum, skuli greiða sjúkrasamlagsiðgjöld meðlima sinna. Í sjálfu sér finnst mér þetta ekki óeðlilegt, að þessir sjóðir greiði sjúkrasamlagsiðgjöldin á sama hátt og almannatryggingarnar greiða sjúkrasamlagsiðgjöldin vegna sinna bótaþega. Hins vegar fæ ég ekki séð, að hægt sé með þessum lögum að breyta lögum t.d. um lífeyrissjóð embættismanna og starfsmanna ríkisins og aðra slíka sjóði, sem þegar hafa fengið viðurkenningu eða sett ákveðið starfssvið með lögum. Þetta hlýtur að hafa áhrif á iðgjaldagreiðslur sjóðanna og annað slíkt, sem þarf þá samtímis að breyta og ekki er fært að gera með þessum lögum. Ég vil því mjög eindregið leggja til, að þessi málsliður verði felldur niður og að það verði látið bíða að taka þessi ákvæði inn, þangað til unnt er að gera breytingar um það efni á sjálfum lífeyrissjóðalögunum, að því er varðar meðlimi lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, barnakennara og aðra slíka sjóði, sem sérstök lög eru um.
Ég hef þá vikið að brtt., sem ég flyt á þskj. 582, og skal aðeins víkja nokkrum orðum að brtt. hv. þm. Barð., sem eru á þskj. 576 og hann hefur þegar gert grein fyrir frá sinn sjónarmiði.
Um 1. brtt., sem er þess efnis, að tryggingaráð, en ekki ráðh., skuli skipa eða ráða forstjóra stofnunarinnar, einn eða fleiri, vil ég segja það, að ég er henni andvígur, og ég fæ ekki séð, að þau rök, sem hv. flm. bar fram, sýni eða sanni, að þörf sé á þessari breytingu. Ég álít þvert á móti, að eins og tryggingaráðið er skipað, kosið ettir pólitískum linum, ef svo mætti segja, af Alþ., sé ekki heppilegt, að forstjóri sé skipaður eða ráðinn af því. Ríkissjóður leggur fram um þriðjunginn af starfsfé trygginganna. Samkvæmt lögunum lúta þær yfirstjórn félmrh. Tryggingaráðið er kosið allt af Alþ., og ráðh. skipar að vísu formann, en verður að velja einn af þeim, sem Alþ. hefur kosið í ráðið. Með tilliti til alls þessa og sérstaklega þess, að ráðh. á að hafa yfirumsjón trygginganna og ríkissjóður leggur fram fullan þriðjung af starfsfé þeirra, tel ég alveg eðlilegt og sjálfsagt, að sami háttur sé á um þessa stofnun og aðrar, sem svipað stendur á um, að ráðh. skipi forstjóra. Hitt er ég sammála flm. um, að ástæða gæti verið til að athuga, hvort ekki væri rétt að hafa heimild ráðh. til þess að hafa fleiri en einn forstjóra, ef þörf þætti, og skipta verkum á milli þeirra, en eftir þá breytingu, sem nú er gerð á tilhögun á stjórninni, verð ég að segja, að það er ekki jafnaðkallandi og mér að ýmsu leyti fannst það áður geta verið.
2. brtt. sama bv. þm. er um það, að tryggingaráð geti ákveðið, þó að sýslumenn og héraðsdómarar yfirleitt séu umboðsmenn trygginganna, að aðrir aðilar skuli annast umboðsstörfin, ef ástæða þyki til. Ég vil nú fyrst segja í þessu sambandi, að reynsla Tryggingastofnunarinnar af sýslumönnum og héraðsdómurum sem umboðsmönnum er yfirleitt góð. Þegar rætt var við þá um, hvort lögbinda skyldi þetta umboð í þeirra hendur, ætla ég, að þeir hafi látið þess getið, að þeim væri það ekki út af fyrir sig áhugamál, en ef á annað borð svo væri gert, þá teldu þeir eðlilegast, að það yrði meginreglan, það gilti alls staðar, en ekki aðeins í nokkrum stöðum og öðrum ekki. Þá afstöðu get ég út af fyrir sig skilið. Ég get þó ekki neitað því, að hugsanlegt er, að svo gæti staðið á, að ástæða þætti til að skipta um umboðsmann í elnstöku stað, án þess að þær ástæður væru fyrir hendi, að skipt yrði um dómara eða sýslumann samtímis. En aðeins í því tilfelli einu teldi ég ástæðu til þess, að þessi heimild væri til. Ég veit ekki, hvort hv. flm. till vildi taka þessa till. aftur til 3. umr., ef hægt væri að athuga breytingu á orðalagi á henni á milli umræðnanna. Eins og hún er núna orðuð, get ég ekki verið með henni og teldi til hins verra, ef hún yrði samþ. En væri þetta bundið við það, sem ég áðan drap á, að Tryggingastofnunin væri ekki ánægð með hlutaðeigandi sýslumann sem sinn umboðsmann, þá væri hægt með samþykki ráðh. að skipta um, en meginreglan héldist sú, sem gert er ráð fyrir í frv.
Þá er 3. brtt. hv. þm. Barð., þess efnis, að ríkissjóður endurgreiði Tryggingastofnuninni allan endurkræfan barnalifeyri, sem Tryggingastofnunin innir af hendi til mæðra óskilgetinna barna, fráskilinna kvenna og annarra þeirra, sem greinin fjallar um. Þá vil ég segja það, að sem starfsmanni Tryggingastofnunarinnar þætti mér að sjálfsögðu talsvert unnið við, að þessi till. yrði samþ. Hins vegar er á það að líta, að Tryggingastofnunin er nú búin að koma á nokkurn veginn skipulegum reglum um innheimtu þessara endur. kræfu barnsmeðlaga eða barnalífeyris, sem að sjálfsögðu mundi ekki breytast mikið, þó að ríkissjóður tæki við þessu. Hins vegar hefur meiri hluti heilbr.- og félmn., eins og till. þremenninganna á þskj. 581 ber með sér, fallizt á að rýmka mjög kröfufresti og kveða skýrar á um endurkröfurétt trygginganna á hendur bæði framfærslusveit og á hendur ríkissjóði, ef framfærslusveit bregzt sem greiðandi. Tel ég, að nú megi, úr því að á annað borð var ekki horfið frá því að láta Tryggingastofnunina greiða þennan barnalífeyri, eftir atvikum við þetta una með með þeim breytingum, sem gert er ráð fyrir á þskj. 581. Ef vanskil verða að lokum hjá framfærslusveit, á Tryggingastofnunin samkvæmt þessari till. skýlausan rétt á hendur ríkissjóði til greiðslu fjárins og hefur allt að tveggja ára tíma til þess að gera tilraunir til innheimtu, áður en þessi leið er farin. Ég get því eftir atvikum fallizt á þá breytingu á 18. gr., sem gert er ráð fyrir á þskj. 581, og verð því á móti till. hv. þm. um, að ríkissjóður sé krafinn strax eftir fyrstu greiðslu af hálfu Tryggingastofnunarinnar.
4. brtt. er við 24. gr., að 4. málsgr. falli niður, en 4. málsgr. ákveður, að uppbótagreiðslur á elli- og örorkulífeyri allt að 100% greiðist að 2/5 af hlutaðeigandi sveitarsjóði og 3/5 af Tryggingastofnuninni. Mér skilst, að einnig eigi að falla niður ákvæðin um, að 7% af heildarupphæðinni skuli varið í þessu skyni. Þá hygg ég, að nauðsynlegt sé, ef þessi till. skyldi verða samþ., sem ég tel fráleitt, satt að segja, að setja eitthvert ákvæði inn í staðinn fyrir þessi 7%, sem þarna er um að ræða, því að varla getur verið um það að ræða, að tryggingaráð hafi alveg óbundnar hendur um að hækka upp í allt að 100% þann lífeyri, sem hægt er að veita eftir þessari grein. Það yrði svo óútreiknanlegur fjárhagslegur baggi fyrir tryggingarnar, að torvelt yrði að gera útreikning um það fyrir fram. Það yrði að sjálfsögðu að setja einhver ákvæði til þess að skapa þann ramma, sem hægt væri að framkvæma þetta innan, ef að lögum verður.
Þá er 5. brtt., um b-liðinn, að hann falli niður. Henni hefur nú verið breytt þannig, að hann á aðeins við 5 og 10 kr. gjaldið, sem hinum tryggðu er ætlað að greiða, og get ég látið nægja út af þeirri till. að vísa til þess, sem ég áðan sagði um brtt. mína í þessu sambandi. Ég álít, að það sé rétt, og hef fallizt á að ganga til móts við læknana í þessu atriði, þó ekki lengra en það, að ef greiðslur hinna tryggðu fara fram úr vissri upphæð, þá endurgreiðist af sjúkrasamlaginu það, sem fram yfir er þá upphæð.
Við 55. gr. flytur hv. þm. brtt. þess efnis, að í gerðardóminn skuli hæstiréttur skipa mann, ef læknasamtökin tilnefna ekki mann í gerðardóm, og taldi fráleitt að halda orðalaginu eins og nú er á þeirri grein. Ég tel, að veruleg bót sé að því, þó að ég ekki sé ánægður með þessa gr. að öllu leyti, að fá inn þau gerðardómsákvæði, sem nú eru í lögunum. Hins vegar liggur fyrir yfirlýsing frá félagsskap lækna um, að þeir muni fyrir sitt leyti nefna mann í gerðardóminn, hvenær sem kæmi til, að til þess yrði stofnað, að hann yrði myndaður. Ef svo skyldi fara síðar, að gerðardómur yrði ekki fullskipaður fyrir það, að læknarnir neituðu að nefna til sinn mann, þá er það augljóst mál að kröfur þeirra eru þannig, að þeir búast ekki við að fá þær viðurkenndar af gerðardómi, og það segir það sama sem að það, sem þeir ætluðust til að fá í greiðslu, yrði það þungur baggi á tryggingunum, að iðgjöld hinna tryggðu yrðu að hækka verulega til að mæta þeim.
Þá er sagt hér, að þá skuli falla niður veiting bóta, eftir því sem við á, samkvæmt b- og e-lið 53. gr., þ.e.a.s., að þá greiði ekki sjúkrasamlögin læknum fyrir læknishjálp, veitta utan sjúkrahúsa, þá læknishjálp, sem veitt er á þeirra eigin lækningastofum. Lengra er nú ekki gengið í því. Öll læknishjálp á sjúkrahúsum er greidd að sjálfsögðu eftir sem áður. Það er aðeins sú læknishjálp, sem greidd er á stofum læknanna og er ekki svo mikilsháttar, að það þurfi að leggja manninn inn á sjúkrahús til þess að fá aðgerðina. Ég skal játa, að þetta er veruleg skerðing á þeim fríðindum, sem menn njóta. Því er gert ráð fyrir því, að ef til þessa kæmi. sé heimilt að verja því fé, sem sparast, ef iðgjöld eru ekki lækkuð tilsvarandi, til þess að hækka greiðslu sjúkradagpeninga, hækka greiðslu fjölskyldubóta til þess fólks, sem við þetta býr, eða greiða ákveðna upphæð upp í læknishjálpina, sem veitt er. Því er ekki að neita, að sjúkrasamlaginu hefur stundum reynzt erfitt að ná að því er það telur viðhlítandi samningum við læknana, og ætlunin er sú, að með þessu verði það greiðara, ef hægt er að sýna þeim fram á, að þeir þurfi framvegis að innheimta sjálfir tekjur sínar hjá sjúklingunum í staðinn fyrir að eiga þær vissar hjá sjúkrasamlaginu. Ég verð að játa, að ýmislegt bendir til, að þetta hafi við rök að styðjast. Loks vil ég benda hv. þm. Barð. á, að með þessu er ekki loku fyrir það skotið, að einstök sjúkrasamlög, eftir því sem við á, geti greitt þetta, þó að ekki sé fullskipaður gerðardómur, sem fellir úrskurð um þetta atriði, því að í 53. gr., seinustu málsgr., er tekið fram, að hverju samlagi sé heimilt í samþykktum sínum að ákveða viðtækari hjálp vegna veikinda en lögskipuð er í þessum kafla. Ég held því, að hættulaust sé, þó að ég játi það, að orðalagið sýnist nokkuð ákveðið þarna, að samþ. gr. eins og hún er, og hún skapar vissulega nokkurt aðhald.
Hv. þm. Barð. spurði, hvers sjúkrasamlagsmeðlimir á fyrsta verðlagssvæði ættu að gjalda, að þessi greiðsla skyldi aðeins ná til þeirra. Því er auðsvarað. Utan fyrsta verðlagssvæðis eiga menn yfirleitt alls staðar kost á því að snúa sér til héraðslækna, sem starfa eftir ákveðnum, lögbundnum taxta, sem er tiltölulega lágur og miklu lægri en greiðslur til lækna í Reykjavík, sem er eðlilegt, vegna þess að héraðslæknar hafa allir föst laun. Þess vegna hafa ekki verið neinir sérstakir örðugleikar á því að ná samningum við þessa lækna, nokkurn veginn viðhlítandi fyrir sjúkrasamlagsmeðlimi, því að þeir mega ekki taka hærra fyrir sína hjálp en taxti ákveður hverju sinni, og nú er fullkomið samkomulag um þann taxta. Það er því ekki af þeim ástæðum, að það sé verið að gera þyngri hlut meðlimanna hér í Reykjavík eða á fyrsta verðlagssvæði en annarra á landinu, umfram það, sem nú er, því að læknakostnaður samlagsmanna hér í Reykjavík hefur alltaf verið stórkostlega miklu hærri en læknakostnaður samlagsmanna úti um land, af þeirri ástæðu, eins og hv. flm. er kunnugt um, að mikill hluti tekna héraðslækna úti um land er greiddur úr ríkissjóði sem föst laun, og þar af leiðandi taka þeir minna gjald fyrir viðtöl og aðgerðir á sjúklingum en þeir læknar hér í Reykjavík, sem eingöngu hafa sínar tekjur frá sjúklingunum og engin laun úr ríkissjóði.
Þá er 7. brtt., að fyrri málsgr. 64. gr. falli niður, ef bótaþegi flyzt til útlanda. Það má segja kannske, að þetta skipti ekki ákaflega miklu máli. Yfirleitt er þeirri reglu fylgt og hefur verið í tryggingalöggjöfinni hjá okkur og eins í tryggingalöggjöfum annarra landa, sem ég þekki, að lífeyrisgreiðslur eru ekki greiddar út úr landinu nema í sérstökum undantekningartilfellum, þegar um skamma dvöl er að ræða eða menn leita til læknis. Nú eru í vændum samningar milli Norðurlandanna um gagnkvæmi í ,þessu efni, og þarf því ekki ákvæði þeirra vegna, og ég sé ekki ástæðu til þess að hafa þetta rýmra en nú er í frv. Þar er gert ráð fyrir, að allir geti a.m.k. verið tólf mánuði án þess að missa nokkurt fé af bótum. Sé hins vegar um að ræða, að þeir séu að leita sér lækninga eða annars slíks, má greiða þetta lengur, og er það að sjálfsögðu gert.
Þá er að lokum síðasta till., 8. till. Ég vil taka undir það með hv. frsm., að ég teldi, að þessi grein ætti frekar heima í sérstakri þál. en beinlínis inni í tryggingalöggjöfinni, ekki sízt með tilliti til þess, sem hv. tillögumaður drap á, þm. Barð., því að það er ráðuneytið, sem ákveður lánveitingar úr erfðafjársjóði, að vísu að fengnum till. tryggingaráðs, en það er félmrn., sem hefur yfirstjórn þess sjóðs og ákveður lánveitingarnar hverju sinni.
Ég skal annars geta þess, að nú er í ráði að sérstakur maður verði ráðinn sameiginlega af ríkisstj., Reykjavíkurbæ og Tryggingastofnuninni til þess að fara með öryrkjamál, bæði með hagsmuni Tryggingastofnunarinnar, öryrkjanna sjálfra og sveitarfélaganna fyrir augum, og að sjálfsögðu verður þessi athugun gerð einn veg eða annan, þó að mér finnist ekki ástæða til að setja grein um þetta inn í tryggingalögin.
Ég skal svo að lokum segja það, að þó að ég telji, því miður, að ekki sé um verulega stórfelldar umbætur á tryggingalöggjöfinni að ræða að því er snertir réttindaaukningu eða fríðindi og ekkert bætt um það, sem ég teldi mest þurfa, frá því, sem nú er, þ.e.a.s. ekkert bætt um ákvæðin um það, hvernig skipta skuli kostnaðinum af tryggingunum á þá aðila, sem bera hann, þá tel ég þó, að rétt sé að samþykkja þetta frv. í von um, að síðar verði innan þess ramma, sem þar er skapaður, hægt að koma fram þeim umbótum, sem ég hér hef drepið á að vanti, því að í heild sinni verður ekki annað sagt en að frv. veiti fullkomlega jafnmikil og heldur meiri fríðindi en núgildandi löggjöf, og fjárhagur trygginganna er að því leyti betur tryggður, að ekki þarf að sækja til Alþingis í hvert skipti um breytingu á lögunum til þess að geta undirbyggt áætlun næsta árs, svo að fjárhagsöryggi trygginganna sé ekki stefnt í voða.