27.03.1956
Sameinað þing: 50. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 131 í D-deild Alþingistíðinda. (2999)
193. mál, kaup á hlutabréfum í Flugfélagi Íslands
Frsm. (Pétur Ottesen):
Eins og þáltill. þessi ber með sér, er það eftir tilmælum ríkisstj. eða hæstv. flugmálaráðherra, að n. flytur hana.
Flugmálaráðherra, sem kom á fund n. og ræddi við hana um þetta mál, sagði, að þetta væri gert í stuðningsskyni við Flugfélagið, sem eins og kunnugt er veitir landsmönnum mikla þjónustu við erfið rekstrarskilyrði á flugleiðum hér innanlands. Það taldist því eðlilegur stuðningur við þessa starfsemi, að orðið yrði við tilmælum Flugfélagsins um, að ríkissjóður keypti hlutabréf í félaginu, sem nemi ½ millj. kr. Að vísu gat hæstv. ráðh. þess, að Flugfélag Íslands hefði farið fram á, að þessi upphæð yrði nokkru hærri, eða allt að 1 millj. kr., en niðurstaðan varð sú, sem í þessari till. felst.
Ég vil í sambandi við þetta skýra frá því, að fjvn. barst bréf í morgun, sem mun hafa verið lagt inn á skrifstofu Alþingis í gær, frá stjórn flugfélagsins Loftleiða. Þetta bréf hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Hjálagt leyfum við okkur að senda hv. fjvn. Alþingis afrit af símskeyti, sem við höfum í dag sent Flugfélagi Íslands h/f varðandi kaup á hlutabréfum, allt að 500 þús. kr. Teljum við það eðlilegra en að ríkissjóður hlaupi undir bagga í þessu efni. Væntum við þess, að hv. fjvn. Alþingis taki mál þetta til nánari athugunar vegna breyttra aðstæðna.“
Svo fylgir hér með eftirrit af símskeyti um þetta, þar sem í er falið þetta tilboð til Flugfélags Íslands.
Fjvn. hefur að sjálfsögðu ekki haft neitt tækifæri til þess að kynna sér nánar um þetta bréf. Hins vegar hef ég skýrt hæstv. flugmrh. frá því, að n. hafi borizt þetta bréf. Fjvn. hefur ekki heyrt neitt frá ríkisstj. um, að þetta tilboð frá Loftleiðum til Flugfélags Íslands breyti neinu um afstöðu hennar til málsins, og stendur það því óbreytt.
Með tilliti til þess, að Flugfélagið fór fram á helmingi hærri hlutafjárkaup, virðist hafa borið hér vel í veiði fyrir Flugfélagið, þar sem Loftleiðir bjóða því nú að auka hlutaféð um það, sem á milli ber. Er þetta að sjálfsögðu mjög vel farið, og það því fremur sem það er ekki daglegur viðburður nú, þegar menn eru að leita fjáröflunar, að slík höpp reki á fjörur manna.