06.02.1956
Efri deild: 62. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í C-deild Alþingistíðinda. (3001)

149. mál, jarðhiti til virkjunar

Tómas Árnason:

Herra forseti. Ég sé enga ástæðu til að bæta neinu við þessa mjög glöggu og greinargóðu framsöguræðu hv. þm. S-Þ. (KK) um málið sjálft og þau atriði þess, sem hann ræddi aðallega um. En í sambandi við málið tel ég rétt, að fram komi nokkru nánar við 1. umr. þess sú þýðing, sem það gæti haft hvað viðkemur auknum gjaldeyristekjum þjóðarinnar.

Höfuðatvinnuvegir þjóðarinnar eru, eins og kunnugt er, landbúnaður og sjávarútvegur svo og vaxandi iðnaður. Sjávarútvegurinn er sá atvinnuvegur, sem aflar beint nær alls gjaldeyris, sem þjóðin notar til neyzlu, uppbyggingar og framfara. Þessi atvinnugrein er hins vegar með þeim hætti, að ýmis óviðráðanleg atvik geta valdið því, að gjaldeyristekjur af henni hljóta að verða misjafnar. Nægir í því sambandi að benda á, hversu afar misjöfn aflabrögð eru, hvað veðrátta getur torveldað sjósókn og að við erum algerlega háðir erlendu verðlagi á sjávarafurðum okkar.

Þessar staðreyndir hljóta að leiða til þeirrar niðurstöðu, að það sé þjóðarnauðsyn að koma á fjölbreyttari atvinnuháttum í landinu, þannig að þegar einhver þau atvik, sem ég benti á áður, eða önnur steðja að sjávarútveginum, þá komi til stuðnings aðrar atvinnugreinar, sem eru ekki háðar sömu atvikum.

Þetta mál, sem hér er borið fram af hv. þm. S-Þ. og mér um heimild fyrir ríkisstj. til þess að láta gera leit að jarðhita til virkjunar, er liður í þeirri stefnu að gera atvinnuvegi landsins fjölbreyttari og hagnýta betur þá möguleika, sem landið hefur að bjóða, enn fremur til þess að spara gjaldeyri og mjög sennilega einnig efla gjaldeyristekjur þjóðarinnar.

Af viðtölum við verkfræðinga og því, sem ég hef lesið mér til, og síðast, en ekki sízt af þeirri reynslu, sem við höfum af hagnýtingu jarðhitans, virðist mér, að jarðhitinn kunni ef til vill að verða mjög þýðingarmikill aflgjafi í framtiðinni og meiri en menn gera sér nú almennt ljóst. Það dylst engum t.d., sem skoðar borholuna í Krýsuvík, hvílíkur ógnarkraftur kemur þar fram úr iðrum jarðar.

Tæknitímabil rafmagnsins stendur nú á hástigi. Hins vegar er runnin upp ný tækniöld, kjarnorkutímabilið. Þær stórstígu og fjölbreyttu framfarir, sem rafmagnið hefur fært mannkyninu, valda því, að menn hafa nú almennt tiltölulega opin augu fyrir þeim stórkostlegu möguleikum, sem friðsamleg notkun kjarnorku felur í sér. Allar þjóðir, bæði stórar og smáar, keppast við að vinna að framförum á sviði kjarnorkuvísinda. Sýningin „Kjarnorkan í þjónustu mannkynsins“, sem opnuð var í Reykjavík á laugardaginn, færir mönnum heim sanninn um það, hvílíkir feikna möguleikar eru fólgnir til framfara á ýmsum sviðum með hagnýtingu kjarnorku til friðsamlegrar notkunar.

Það liggur því í augum uppi þegar í morgunsári kjarnorkualdarinnar, að efni, sem þarf að nota við friðsamlega framleiðslu kjarnorku, hljóta að verða geysilega verðmikil. Talið er, enda reynsla fengin fyrir því, að álitlegt sé að hagnýta jarðhitann til framleiðslu á þungu vatni, sem er mjög þýðingarmikið efni í sambandi við kjarnorkuframleiðslu til friðsamlegra nota. Bandaríkjamenn hafa að vísu fundið upp nýlega aðferðir, sem eru taldar ef til vill enn þá betri en þær, sem styðjast við jarðhita, en þrátt fyrir það er enn þá framleiðsla á þungu vatni t.d. í Nýja-Sjálandi, þó að nýrri aðferðir hafi komið til.

Þótt þetta frv., sem hér liggur fyrir til umr., sé fyrst og fremst ætlað til virkjunar á jarðhita til hitaveitu fyrir byggðarlög og einstaka bæi og þótt þau önnur skilyrði, sem þarf til framleiðslu á þungu vatni, séu ekki alls staðar fyrir hendi, þar sem jarðhiti er, þá er þó auðsætt, að leit þarf að fara fram til að rannsaka skilyrði fyrir slíkri framleiðslu, og eðlilegt væri því og hagkvæmt, að hún færi fram jafnhliða, a.m.k. í sumum tilfellum, leitun að heitu vatni til hitaveitu eða annarra nota.

Á fjárlögum þeim fyrir árið 1956, er samþykkt voru á hæstv. Alþ. fyrir nokkru, eru veittar 250 þús. kr. til að gera tilraunir með framleiðslu á þungu vatni, en hugmyndin mun einmitt vera sú að hagnýta jarðhitann í því skyni. En þar sem skilyrði til hitaveitu og framleiðslu á þungu vatni fara saman, minnkar fjárhagsleg áhætta við leitun að jarðhita, þar sem þess má vænta, að meira komi í aðra hönd. Ef það kemur á daginn, eftir að tilraunir hafa verið gerðar, að hægt sé að hefja útflutning á þungu vatni, þá er þar tilkomin ný útflutningsatvinnugrein fyrir landsmenn, atvinnugrein, sem getur stuðlað að auknum gjaldeyristekjum fyrir þjóðina og enn fremur breikkað og styrkt grundvöllinn, sem öflun gjaldeyris byggist á.

Þótt ég hafi hér sérstaklega bent á, að líklegt sé, að hægt væri að hagnýta heita vatnið til framleiðslu á þungu vatni, þá er ég þess fullviss, að ýmsir aðrir möguleikar eru fólgnir í virkjun heita vatnsins auk hitaveitna, möguleikar, sem eflaust auka, þegar til kemur, útflutningsframleiðslu þjóðarinnar.

Til þess að framkvæmdir þær, sem frv. gerir ráð fyrir, verði hafnar og haldið áfram, þarf ríkissjóður að leggja fram fé á fjárlögum, eins og hv. fyrri flm. drap á. Þar sem verulegar líkur eru til, að þau fjárframlög kunni í sumum tilfellum að leiða til útflutningsframleiðslu og þar af leiðandi aukins innflutnings til landsins, sem gefur ríkissjóði miklar tekjur í aðra hönd, þá vil ég sérstaklega beina þeim tilmælum til hv. fjvn., að hún leggi til við hæstv. Alþ., að fé verði veitt á næstu fjárlögum til þeirrar starfsemi, sem frv. gerir ráð fyrir, ef það verður gert að lögum.